14.02.1973
Efri deild: 58. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)
29. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Bjarni Guðbjörnsson:
Herra forseti. Við 2. umræðu þessa máls hér í hv. deild komu fram óskir um, að sjútvn. athugaði þetta mál nokkru nánar, áður en 3. umr. færi fram. Bæði var það svo, að hv. 5. þm. Vestf. hafði borið fram brtt., sem hann tók aftur til 3. umr., og einnig hafði 2. þm. Vesturl., sem sæti á í sjútvn., en var fjarstaddur vegna veikinda, þegar málið var afgreitt úr nefnd, óskað eftir því, að málið yrði rætt frekar.
Sjútvn. tók þetta mál á ný til athugunar á fundi sínum s.l. mánudag, og varð nefndin sammála um að flytja brtt, þá, sem hér liggur fyrir á þskj. 298. Í brtt. felast tvær meginbreytingar frá frv., eins og það liggur hér fyrir eftir 2. umr. Í fyrsta lagi er með þessari brtt. ákveðið sagt, að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins skuli starfrækja rannsóknastofur utan Reykjavíkur eftir nánari ákvörðun ráðherra og að fengnum till. aðila fiskiðnaðarins, en í frv. segir, að stefnt skuli að því o.s.frv. Þá er einnig lagt til í brtt. n. að fella burt að binda staðsetningu slíkra rannsóknastofa við fjórðungana. Nefndin taldi fjórðungana ekki æskileg svæðismörk í þessu efni. Eðlilegra hefði verið að binda þetta við kjördæmin, ef um þrengri svæðismörk væri að ræða. En eðlilegast telur sjútvn., að svæðismörkin séu ekki nánar tilgreind, en að segja aðeins í lögunum utan Reykjavíkur. Koma þá að sjálfsögðu til þau rök, að þeir, sem njóta eiga þjónustunnar, velji þá staði, sem að mestu gagni koma í þessu efni. Nefndin gat ekki fallizt á að tiltaka ákveðna staði og allra sízt einn stað, enda kom það fram í umsögnum, er fyrir lágu, bæði frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og LÍÚ, að alls ekki væri rétt að staðbinda aðsetur slíkra rannsóknastofa í lögum. Hin meginbreytingin í þessari brtt. er varðandi stofnkostnaðinn. Frv. gerir ráð fyrir, að leita skuli samstarfs við fiskiðnað og fleiri aðila um stofnsetningu og starfrækslu slíkrar rannsóknastofu. Í brtt. n. er þetta skýrar ákveðið, þar sem helmingur stofnkostnaðar skal greiðast af þeim, er þjónustunnar njóta. Eins og kunnugt er, hefur ein rannsóknastofa verið sett á stofn utan Reykjavíkur, líkt og hér er gert ráð fyrir. Vestmanneyingar komu á fót rannsóknarstofu og greiddu sjálfir allan stofnkostnaðinn. Enda þótt rannsóknastofan í Vestmannaeyjum verði sennilega á ýmsan hátt fyrirmynd annarra slíkra, er síðar verða settar á stofn, taldi sjútvn. ekki fært að ganga lengra í þessu efni en brtt. gerir ráð fyrir, þ.e. að heimaaðilar greiði helming stofnkostnaðar. Hins vegar mun sá samningur, sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins gerði við Vestmanneyinga um reksturinn, vafalítið verða fyrirmynd annarra, en Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hefur með þeim samningi skuldbundið sig til að hafa einn sérfræðing og aðstoðarmann að staðaldri í Vestmannaeyjum og greiða laun þeirra en þó má sú greiðsla ekki fara fram úr fjárveitingu Alþ. til þessa verkefnis, en allur annar kostnaður verður greiddur af tekjum af seldri þjónustu og framlögum fiskiðnaðarins. Þessi rannsóknastofa er því nánast útibú frá aðalstöðvunum hér í Reykjavík.
Ég hef hér að nokkru gert grein fyrir þeim breytingum, sem felast í till. sjútvn. Telur n., að með þeim breyt. sé stefnt mjög í rétta átt. Þörfin fyrir rannsóknastofur utan Reykjavíkur hefur aukizt ár frá ári, m.a. vegna aukinna krafna frá viðskiptaþjóðum okkar. Einnig er augljóst, að ein rannsóknastofa staðsett í Reykjavík kemur alls ekki að fullum notum fyrir byggðarlög víðs vegar um landið, og kemur þar margt til, sem ekki verður rakið hér.
Þá þarf og að sníða fyrirkomulag slíkra stofnana eftir aðstæðum á hverjum stað.
Eins og ég gat um í upphafi, stendur sjútvn. óskipt að þessari tillögu. Einn nm., Oddur Ólafsson, var þó ekki á fundinum, en hann hafði áður tjáð sig efnislega sammála því, sem brtt. gerir ráð fyrir. Ég vil þó aðeins, áður en ég lýk máli mínu, beina þeim tilmælum til hv. 5. þm. Vestf., að hann dragi brtt. sína til baka. Efnislega er enginu ágreiningur, og þær breytingar, sem sjútvn. gerir, ganga að nokkru leyti í átt til brtt. hans. Það má svo bæta því við, að vafalítið yrði Ísafjörður fyrir valinu á Vestfjörðum af mörgum augljósum ástæðum, sem ekki er þörf að rekja frekar hér, þegar slík rannsóknastofa yrði sett á stofn á Vestfjörðum. Hefur komið fram, að fiskvinnslustöðvar á Vestfjörðum hafa áhuga á að veita hliðstæða aðstoð og Vestmanneyingar hafa gert.