15.02.1973
Sameinað þing: 45. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (1533)

155. mál, fjáraukalög 1970

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 289 er frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1970. Þetta frv. er samið af fjmrn. eftir till. yfirskoðunarmanna ríkisreiknings fyrir það ár. Ríkisreikningur fyrir árið 1970 hefur ekki komið til umr. hér á hv. Alþ. að þessu sinni, en verið á dagskrá nú í þessari viku, en þar sem sá þm., sem er í hópi yfirskoðunarmanna ríkisreikningsins, hefur verið fjarverandi vegna veðurs, hef ég óskað eftir því, að sú umr. yrði dregin. En eins og kemur fram í aths., er um að ræða till. yfirskoðunarmanna um, að heimildar verði leitað fyrir öllum umframgreiðslum á árinu 1970, og fjallar þetta frv. þar um. Það skýrir sig sjálft, og þarf ekki frekari framsögu fyrir því að hafa.

Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjvn.