15.02.1973
Sameinað þing: 45. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (1548)
107. mál, íbúðarlán úr Byggingarsjóði ríkisins
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson) :
Herra forseti. Hér er nú til umr. þáltill. um að breyta lánsupphæð úr 600 þús. í 900 þús. og búið að upplýsa, að þegar sé búið að framkvæma hækkun úr 600 í 800 þús. Þá hefði ég vænzt þess, að hv. tillögumaður hefði sagt sem svo: Ég er ekki ánægður með þessar 800 þús., ég tel mína tölu vera lágmark, og þar með hefði ræðuhöldum hans verið lokið, því að þetta var í raun og veru það, sem eðlilegt var, að hér færi fram. En hann hefur nú sýnt það, að hann er listamaður á vissan hátt, svo að hún sótti á mig, vísan hans Stephans G. Stephanssonar, mér liggur á hjarta að koma henni á framfæri, þetta er ferskeytla, hún er svona:
List er það líka og vinna
lítið að tæta í minna,
alltaf í þynnra að þynna
þynnkuna allra hinna.
Í þessu er hv. þm. listamaður.
En varðandi það, að ég hafi nefnt, að það vantaði um 500 millj í húsnæðismálakerfið, til þess að öruggt væri, að það stæði við skuldbindingar sínar í upphafi árs, þá hef ég áreiðanlega haft þá tölu frá húsnæðismálastjórn. Og þar sem reynslan var skárri en þetta, hefur hún verið of svartsýn að þessu leyti, það þurfti ekki að útvega eins mikið fé og hún gerði ráð fyrir í upphafi árs, og er ekkert við því að segja. En þessi hv. þm. og ýmsir fleiri voru alltaf að klifa á því, að það yrði að útvega a. m. k. þessa upphæð og ekki minni. Ég lét fylgjast með þróun málsins fram eftir árinu og kanna, hvernig stæði, og fór síðan í fjárútvegun, sem nægði til þess að stofnunin gat staðið við allar sínar skuldbindingar. Mér virðist, að að árinu 1972 liðnu með þessari niðurstöðu sé hvorki við mig né aðra að sakast um útkomuna.
Meira þarf ég ekki að segja um þetta mál, annað en það, að ég vil til endurgjalds fyrir öll gífuryrðin í minn garð minna á það, að fyrir nokkuð mörgum áratugum hér á Alþ., þegar Jón Þorláksson var formaður íhaldsins, kom ungur þm. í þingsalina, flugmælskur andskoti og andríkur þar eftir, og hann var ekki í flokki Jóns Þorlákssonar þá, þótt hann yrði það síðar. Þá sagði Jón Þorláksson um ræðumennsku þessa manns: „Allt, sem fram kemur af munni þessa manns, er eins og vatn, en þó ekki alveg eins og vatn, heldur eins og slepja.“ Og nú vona ég, að ekki verði hellt yfir okkur meiru af slepju.