20.02.1973
Sameinað þing: 46. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1996 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
Umræður utan dagskrár
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég skal reyna að verða við óskum hæstv. forseta, enda þótt hér sé vissulega vikið að máli, sem ég að öðru leyti vildi hafa töluvert um að segja. En allt orkar þó tvímælis, þar sem talið verður með réttu, að ég eigi hér vissa aðild að, og því mikið vafamál, hversu kann að henta í viðkvæmu deilumáli, að aðilar ræði það opinberlega.
Hæstv. sjútvrh. gat þess, að skoðun hans væri sú, að samningar ættu að leysast eftir því sem hann nefndi eðlilegum leiðum, með frjálsu samkomulagi milli aðila vinnumarkaðarins, og að þeir ættu sjálfir um þetta að sjá. Nú er ég honum sammála að þessu leyti og hef verið lengi, að ríkisvaldið ætti sem minnst að grípa inn í hina frjálsu samninga vinnumarkaðarins. En ég vil benda á, að þetta er alveg nýtt viðhorf hjá hæstv. sjútvrh. og hans flokki, og á það var hent rækilega áðan af hv. 2. þm. Reykv., að það var ekki liðinn nema hálfur mánuður, þegar hið alvarlega verkfall geisaði hér í ársbyrjun 1971, þegar Þjóðviljinn, málgagn hæstv. sjútvrh., fór um það hinum hörðustu orðum, að ríkisvaldið bæri ábyrgð á því, hvernig þessi mál stæðu, af hverju það tæki ekki til sinna ráða að leysa vandamálið, eins og því bæri heilög skylda til. Það liggur alveg ljóst fyrir, að þetta var kenning fyrrv. stjórnarandstæðinga alla þá tíð, meðan viðreisnarstjórnin stóð, — það man ég með fullri vissu, — að ríkisvaldið ætti að skerast í leikinn og leggja sitt af mörkum til að leysa vinnudeilur, þegar þær komu upp.
Hæstv. sjútvrh. gat þess, sem rétt er, að jafnvel áður en verkfall skall á hafi verið mjög mjótt á mununum um, að samningar tækjust, að aðila hefði ekki skilið mjög á í þrætunni. Þetta er alveg hárrétt. Og það er staðreynd, að vegna kjaranna sjálfra skilur mjög lítið í milli. Þetta játaði og þessu lýsti hæstv. sjútvrh. yfir. Fyrir því er það, að allt, sem segir í stjórnmálaleiðara Þjóðviljans laugardaginn 17. febr., er hreint slúður, vegna þess að þar er fullyrt, að vinnustöðvunin á togaraflotanum sé af því einu saman, að togaraútgerðarmenn, eins og orðað er, snautast ekki til að borga togarasjómönnum eins og þeim ber. En nú hefur mjög borið á góma hér í umr. launakjör. Nú ætla ég að taka það fram, að það, sem ég segi um þau hér, má ekki skiljast á þann veg, að ég vilji neitt draga úr því, að þessi hópur manna eigi skilið hin beztu kjör, því að vissulega vinna þeir störf, sem eru ákaflega þýðingarmikil, þau eru ákaflega erfið að öllu jöfnu, og þeir eru langtímum fjarverandi frá heimili sínu, sem allir hljóta að skilja, að hlýtur einnig að verða að gjalda vel fyrir. Þess vegna má ekki skilja orð mín um launakjörin á þann veg, að ég sé að telja eftir þau launakjör, sem hafa gilt, eða álíti, að ekki þurfi að borga þessum mönnum sómasamlega. En ég heyrði ekki betur en hv. 8. landsk. þm. segði, að grundvallarstaðreynd væri, að undirmenn á togurum hafi haft lægst laun af öllum sjómönnum á undanförnum missirum. Að vísu hef ég ekki í höndunum neitt, sem afsannar þetta, en ég leitaði mér upplýsinga um það, að á togaranum Maí frá Hafnarfirði voru laun háseta á s. l. ári 549 748 kr. eða 45 812 á mánuði, netamenn höfðu 578 þús., bátsmaður 623 þús. og skipstjóri 1624 þús. kr. eða 135 330 kr. á mánuði, og mundi jafnvel þm. þykja það sæmileg laun fyrir sig. Á Hallveigu Fróðadóttur var kaup netamannsin 479 þús. kr. eða tæpar 40 þús. kr. á mánuði. Til samanburðar við þetta vil ég láta þess getið, að mánaðarlaun Dagsbrúnarverkamanns í fiskvinnu eftir 2. texta Dagsbrúnar eru 19 943 kr., fyrir utan orlof, en í hinu dæminu var orlof talið með.
Það er fullkomin ástæða til að rifja þetta upp, af því að aðalsannleikspósturinn, sem út er gefinn hér á landi, Nýtt land, skrifar um þetta mál sérstaka grein í blaðinu fimmtudaginn 15. febr., þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Til glöggvunar lesendum birtast hér mánaðarlaun á togurum samkv. gildandi samningum miðað við vísitölu 117 stig“ o. s. frv., eins og þar stendur. Og þar segir þetta blað, sem var til þess stofnað að moka út úr fjósinu í íslenzkum stjórnmálum og halda sannleiksfánanum hæst á lofti, að mánaðarlaunin séu fyrir háseta 18 837 kr., netamenn 21 176 kr., bátsmenn og matsvein 24 702 kr. Þeir tala um mánaðarkaup. Síðan segja þeir, með leyfi hæstv. forseta: „Þegar svo þessir menn fara fram á að fá í laun tæpar 25 þús. kr. á mánuði, er skellt á þá hurðum. Útgerðarmenn þykjast ekki geta rekið skipin með slíkum launagreiðslum.“ Ég bið að heilsa þeim heiðarleika, sem stýrir þessum penna.
En hvernig eru svo ástæðurnar hjá útgerðinni? Ég er fjarri því maður til að dæma um það að svo komnu máli, þar sem ég hef örstutta reynslu af þessu. En ég gerði yfirlit yfir eina af söluferðum skuttogarans Vigra, það var sú söluferðin, sem gaf bezta raun. Hann seldi í Þýzkalandi 7. jan. fyrir 5 476 602 kr. Hagnaður af þessari söluferð, sem stóð í 29 daga alls, án afskrifta og vaxta er 378 755 kr. Vil ég þó geta þess, að þarna er ekki tekinn með í dæmið viðgerðarkostnaður, enda skipið nýtt og mjög erfitt að áætla hann. Hagnaður án afskrifta og vaxta var sem sé 378 þús. kr. Síðan kemur ráðstöfunin samkv. þeim reglum, sem farið er eftir, að tekin eru frá til vaxta og afborgunar af lánum 20% af brúttóverðmæti aflans og þess vegna tekið frá í þessu tilfelli 1 097 484 kr., og þegar svo hagnaðurinn án afskrifanna kemur hinum megin, þá er halli á rekstrarfjárstöðu útgerðarinnar 718 729 kr. Ég vil láta þess getið, að þessi sala, 5 millj. 476 þús. kr., er langtum hærri en meðaltal, sem gerzt hefur á s. l. ári, því að í 92 söluferðum er heildarsöluverðið 364 millj. kr., sem þýðir 3 millj. 959 þús. kr., á hverja söluferð hvers togara, þannig að þetta er langt yfir því. Að sjálfsögðu verður útgerð að geta skilað til vaxta og afskrifta. En það er alveg ljóst, að grundvöllurinn er ekki aðeins hæpinn, heldur liggur sem sé fyrir, að grundvöllur er enginn til rekstrar á þessum skipum, eins og stendur. Að vísu ber þess að geta, að það hefur verið mjög mikið tregfiski um langa hríð, og enn fremur ber þess vitanlega að geta, að þessi skip, — og ber ég þar fyrir mig vana togarasjómenn, — hafa að mörgu leyti mikla yfirburði yfir gömlu skipin. Það sýnir sig, að yfirburðir þeirra eru mjög verulegir, ekki einvörðungu vinnuaðstaðan, sem er gjörbreytt frá því, sem verið hefur, og mætti líka taka tillit til hennar, þegar rætt er um launakjör, heldur allir hæfileikar þessara skipa til að fiska, þótt þess gæti e. t. v. minna í tregfiski, þar sem þeir verða að nota allan tímann, sem þeir mega vera á úthaldinu, áður en þeir þurfa að skila afla sínum í land. Við höfum nýleg dæmi um það, að þessi skip hafa gífurlega möguleika. Geymslan á fiskinum, á hráefninu er framúrskarandi og öll aðstaða til þess að nýta aflann hin bezta og er gerbreytt frá því, sem verið hefur. Vil ég t. d. geta þess, að sala skuttogarans Ögra, sem eftir nýju gengi var 10 millj, og 70 þús. kr., byggðist ekki sízt á því, að töluverður hluti af fiskinum var settur í kassa og allt var nýtt, m. a. ísuð hrogn o. s. frv. Þetta og öll meðferð aflans, sem færi gefst á að meðhöndla með miklu betri hætti en áður hefur verið, gerði það að verkum, að þessi feiknarlega sala átti sér stað. En hvort sem manni líkar betur eða verr, þá er grundvöllurinn ekki fyrir hendi.
Nú er auðvitað hárrétt, sem hæstv. sjútvrh. segir, að útgerðarmönnum ber vitanlega skylda til að skila till. um það, í hverju úrbæturnar eiga að vera fólgnar. Ég tel mig ekki hafa aðstöðu til þess að varpa fram neinum sérstökum till. í því efni, enda mundi það e. t. v. verða strax túlkað sem kröfur af minni hálfu, og það vil ég ekki gera á þessum stað. Ég vil aðeins geta þess, að það hlýtur þó að verða að liggja fyrir, en ég er upplýstur um, að engin sérstök velyrði liggi fyrir um það, að þessum atvinnurekstri verði veittur fjárhagsstuðningur á þessu ári, engin fyrirheit. Enda þótt manni hafi löngum skilizt, að þessi atvinnuvegur væri nokkurs konar olnbogabarn, hefur hann þó hér á árum áður notið allverulegs stuðnings. Ég vil líka taka það fram, svo að ekki valdi misskilningi, að við, sem höfum ráðizt í kaup á hinum nýju skipum, höfum fengið mjög góða fyrirgreiðslu, eins hjá hæstv. núv. sjútvrh. og af hálfu fyrri stjórnar, sem að vísu hafði um það frumkvæði. En ég vil aðeins geta þess, að árið 1966, þegar fjárlög voru 4.7 milljarðar, voru veittir styrkir til togaraútgerðarinnar 60 millj. kr. Á s. l. ári voru veittar, eins og kom fram hjá hæstv. sjútvrh., 45 millj. kr. og allir muna, hver upphæð fjárlaga var þá. Árið 1967, þegar fjárlög voru 6 milljarðar og 240 millj., voru einnig veittar 60 millj., og á árunum 1963–1965 voru veittar frá 40–51 millj., þannig að þarna er um verulegan stuðning til þessa atvinnuvegar að tefla. En eins og ég sagði, það er erfitt að gera till. Við höfum fengið frábæra fyrirgreiðslu til að kaupa þessi nýju skip, sem við bindum miklar vonir við. En ég held þó, að enda þótt allur rekstur þurfi og eigi að geta skilað afskriftum og vöxtum, þá verði að sjá einhver ráð til þess, að því verði kannske ekki öllu frestað um sinn, en að verulegu leyti. Það er gersamlega útilokað, að reksturinn þoli, að 1/5 af brúttóverðmæti aflans sé þegar í stað frystur. Það er mér alveg ljóst, hvernig svo sem að öllu öðru þarf að standa.
Frá því er rekstrargrundvöllur hinna nýju skuttogara var reiknaður út árin 1969 og 1970, þegar allt aðrar ástæður voru og miklu meira fiskirí, hefur mjög hallazt á þennan atvinnurekstur, að ekki sé meira sagt, enda kom það í ljós, að þá vildu helzt allir kaupa togara. Í sambandi við allt verðlag á efni og vörum til atvinnuvegarins, þá hefur það hækkað gífurlega, enda skiptum við í því efni við þau lönd, þar sem breyting á genginu hefur orðið okkur mjög óhagstæð. Að vísu má einnig geta þess, að það hefur komið okkur til góða varðandi sölur á fiski í Þýzkalandi og Bretlandi, meðan það var.
Þetta eru aðeins stærðir, sem ég vildi nefnda í þessu sambandi og mér fyndist, að hæstv. ríkisstj. ætti hið fyrsta að ljá máls á, hvort möguleiki er á því að minnka þetta hlutfall, sem tekið er frá til greiðslu vaxta og afborgana. Ég er ekki fjarri því, að að nokkrum árum liðnum, eftir reynslunni af gangi mála í sambandi við okkar fjármál, muni e. t. v. þessi atvinnutæki vera miklu hæfari til þess að standa undir vöxtum og afborgunum og jafnvel geta bætt upp það, sem greinilega hallar nú svo mjög á um.
Ég held, að það sé svo ekki fleira í þessu sambandi, sem ég vil tíunda, en get þó aðeins nefnt, að í þessari söluferð Vigra, sem tók 29 daga, var hásetahluturinn 59 765 kr. Netamaður hafði 62 216 kr. og bátsmaður og matsveinn 65 950 kr., og þetta er eftir gildandi samningum. Það er mín skoðun, að þótt hækki um einhverjar þús. kr. á fastakaupi til skipverja, þá skipti það engu höfuðmáli í sambandi við heildarreksturinn, — alls engu höfuðmáli. En þegar menn stöðugt hamra á því, að þessir launþegar þurfi vissulega að bera úr býtum til jafns við aðra, þá er þó ástæða til að láta þetta koma fram. Að mínum dómi bera þeir ekki að meðaltali mjög skarðan hlut frá borði. Ég á a. m. k. eftir að sjá launakjör manna á bátaflotanum yfirleitt. Ég er þar ekki að miða við aflahæstu loðnuskipin, sem grípa upp á mánuði 250 þús. kr. í hásetahlut. Ég er aðeins að tala um meðaltal, t. d. á bátaflotanum, á bolfiskveiðiflotanum til að mynda. En þó eru vissar ástæður fyrir því, að þessir menn ættu að bera mikið úr býtum. Koma þar aðallega til hinar geysilega miklu fjarvistir frá heimilum þeirra. En að öðru leyti er með hinni nýju tækni vissulega miklu betri vinnuaðstaða fyrir velflesta þessara skipverja heldur en gerist og gengur á bátaflotanum yfirleitt, þar með talið á nótaveiðiskipum. Vinnudagurinn er langur, en hann er ekki eins langur og á bolfiskveiðiflotanum yfir netavertíð t. d., ekki nálægt því, það vil ég leyfa mér að fullyrða.