20.02.1973
Sameinað þing: 46. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2000 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)
Umræður utan dagskrár
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég skil vel, að hæstv. forseta langi til að komast að dagskrá fundarins. Hins vegar er sannleikurinn sá, að ég efast um, að á dagskránni sé nokkurt mál, sem er eins þýðingarmikið vandamál og það mál, sem við erum hér að ræða, a. m. k. svo sem sakir standa nú. Það var að vísu ekki ætlun mín að fara sérstaklega að taka til máls hér, en það voru ýmis atriði í ræðu hæstv. sjútvrh., sem ollu því, að ég réðst í að fara hér upp í stólinn, og ég skal reyna að bregðast ekki áskorun hæstv. forseta um að eyða ekki óþarflega löngum tíma, þó að ég þurfi kannske að nota nokkrar mínútur.
Það, sem ég fyrst og fremst vildi hér segja og láta í ljós undrun mína yfir og raunar harma, er, að hæstv. ráðh. skyldi ráðast að hv. 2. þm. Reykv. með jafnósæmilegum hætti og hann gerði hér áðan. Satt að segja furðar mig, að jafnglöggur maður og þingvanur skuli halda því fram, þegar hv. 2. þm. Reykv. vitnaði í skýrslur Fiskifélags Íslands um afla brezkra togara á Íslandsmiðum, að þá sanni það, að þessi hv. þm. sé hér sérstaklega að ganga erinda Breta. Ég veit ekki til þess, að hæstv. ráðh. gerði nokkra tilraun til að hrekja þessar tölur, og ég veit ekki, hvort Fiskifélag Íslands birtir rangar tölur eða ekki. Ég hygg, að það birti þær tölur, sem það veit sannastar og réttastar. Og þetta nefndi hv. 2. þm. Reykv. aðeins til að benda á alvöru þess, að hér væru erlendir togarar að moka upp fiski. Ég held, að það þurfi æðimikla hugvitssemi til þess að geta fundið það út úr orðum hans, að hann væri hér í landhelgismálinu að ganga erinda Breta. Þetta vona ég, að hæstv. ráðh. sjái sjálfur, að hafi verið ómaklega og ódrengilega sagt.
En sannast sagna vekur margt af því, sem hæstv. ráðh, sagði, undrun manns í sambandi við vinnubrögð í þessari deilu. Það var að vísu svo um margt í fyrri og síðari ræðu hans, að þar var ekki fullt samræmi á milli skoðana hans varðandi hans eigin afstöðu og hvernig hann lítur á það mál, sem hér er við að fást og við getum áreiðanlega öll tekið undir, að er eitt hið alvarlegasta. Skal ég þá alveg láta liggja á milli hluta, hvað fyrr og síðar hefur verið sagt í þeim efnum af einum og öðrum, en aðeins halda mér að vinnubrögðunum í málinu og hvað eðlilegt hefði verið að gera, hvort hæstv. ráðh. hafi farið rétt að.
Það er vissulega lofsvert, að hann skuli, rétt áður en deilan hófst, hafa haldið marga og stranga fundi, jafnvel nætur og daga, með aðilum til að reyna að ná sáttum, þannig að ekki kæmi til verkfalls. En þegar þessu lýkur, þá satt að segja hverfur hrifning manns af afskiptum hæstv. ráðh. af þessari deilu, og vægast sagt kemur nokkur undrun í staðinn yfir því, sem síðar hefur gerzt. Hæstv. ráðh, segir, og held ég, að allir hv. þm. hafi tekið eftir því, að það hafi borið mjög lítið á milli, þegar þetta verkfall skelfur á. Engu að síður skellur á þessi vinnudeila, þó að eitthvað lítið beri á milli, sem hann tíundaði að vísu ekki nánar. Og ekki aðeins skellur hún á, heldur hefur farið svo, að í tvær vikur hefur ekki verið haldinn sáttafundur. Hvað veldur því, ef aðeins er um smávægileg atriði að ræða, að ekki er haldinn sáttafundur um langa tíma? Það hef ég aldrei vitað fyrr, að hafi gerzt í vinnudeilu, nema af því að mikið ber á milli og sáttasemjari tefur, að ekki hafi þýðingu að kalla aðila saman til funda. En ég held, að ýmislegt af því, sem hæstv. ráðh. sagði, gefi vissar hugmyndir um það, hvar hnúturinn hér er.
Hæstv. ráðh. segist að vísu ekki vilja taka afstöðu með einum eða öðrum aðila í deilunni, en hins vegar gefur hann þó vissar, athyglisverðar yfirlýsingar. Annars vegar ætlast hann til þess, m. a. af hv. 2. þm. Reykv., að hann beiti áhrifum sínum hjá togaraeigendum til að leysa deiluna. Hins vegar segist hann að vísu ekki vilja tala mikið um kröfur sjómanna, en segir þó í seinni ræðu sinni, að það sé sjálfsagt, að þessir menn beri úr býtum það, sem eðlilegt sé, og togaraeigendum beri að semja á þeim grundvelli. Við erum auðvitað ekki að deila um það, og ég er sammála hæstv. ráðh. um það, að almennt eiga kjarasamningar að gerast með frjálsum samningum vinnuveitenda og launþega. Um það deilum við ekki. En það liggur hins vegar ljóst fyrir og enda kemur fram í orðum hæstv. ráðh., að hér stendur svo sérstaklega á, að vinnuveitendur hafa í þessu tilfelli enga möguleika til að semja um þær kröfur, sem fram eru bornar, nema með því að auka hallarekstur sinn. Það er viðurkennt, að togaraflotinn hafi verið gerður út með styrk á s. l. ári, að vísu ekki mjög miklum styrk úr ríkissjóði, en þó nokkrum. Og undanfarin ár, held ég, að hann hafi alltaf fengið einhvern styrk langflest árin. Og hæstv. sjútvrh. taldi ekki óeðlilegt, að það mundi koma til þess, að þennan styrk yrði að veita í einhverju formi, en vill þó ekki gefa upp neitt um það, hvað verði veitt í styrk.
Það getur vel verið, að það sé álitamál, hvort ríkið eigi að gefa upp í vinnudeilu, hvað það sé reiðubúið að leggja fram til þess að styrkja togaraflotann. En ég spyr í alvöru talað: Eiga togaraeigendur að semja, ef það liggur ljóst fyrir, að það verði halli, — eiga þeir þá að ganga að öllum kröfum í skjóli þess, að ríkið muni að lokum borga reikninginn, þegar hann er lagður fram? Er skynsamlegra að hvetja til þess, að það verði gert, heldur en að hið opinbera, úr því að það telur, að það muni þurfa að koma þarna til, geri það þá strax og reyni að leiða málin, ekki endilega með því að fara að beita úrskurðarvaldi á Alþingi, heldur halda áfram þeim viðræðum, sem hæstv. ráðh. hóf, og láta ekki málin skipast svo, að ekkert gerist í tvær vikur eða lengur og flotinn liggi, þegar þetta liggur ljóst fyrir, og láti það stranda á því einu, að ríkið sé ekki reiðubúið og það sé talið óskynsamlegt að segja mönnum, hvað ríkið sé reiðubúið að ganga þarna til móts? Þetta held ég, að geti ekki gengið og sé engin von til þess, að deilan leysist með því að ætlast til þess fyrst, að togaraeigendur gangi að kröfum þeim, sem fram eru bornar, — ég læt alveg liggja á milli hluta, hversu sanngjarnar þær eru, þær geta vel verið allar sanngjarnar, ég veit ekkert um það, — en vitandi það, að þeir geta ekki greitt þær nema fá peningana einhvers staðar að, en ríkisstj. segir hins vegar: Þið getið komið með óskir ykkar eftir á, þegar þið eruð búnir að semja.
Nú finnst mér að vísu einkennilegt, ef það er rétt, að togaraeigendur hafi ekki sett fram við ríkisstj. neinar hugmyndir um það, hverju þeir þurfi að halda til þess að ná saman endum. Mér skildist á hæstv. ráðh, að engar kröfur hefðu frá þeim borizt. Ég er ekki að véfengja, að hæstv. ráðh. segi það rétt og satt, en það er mjög undarlegt. Ég veit ekki hvort ég hef heldur skilið það rétt, en hæstv. ráðh. leiðréttir það þá, ef það er rangt skilið, að þessi svokallaða athugunarnefnd hafi alls ekki verið sett á laggirnar strax í byrjun deilunnar til þess að rannsaka hag togaraútgerðarinnar, heldur hafi það ekki komið til fyrr en löngu seinna og þessi n. sé ekki búin að skila niðurstöðum sínum. Ég held, að það hljóti í rauninni að vera réttur skilningur minn á því efni, vegna þess að það þarf enginn mér að segja, að það sé margra daga verk, miðað við þá könnun, sem hefur verið gerð á hag útgerðarinnar árlega, nú síðast um síðustu áramót í sambandi við bátakjarasamningana, að gera sér grein fyrir því, hversu togaraflotinn standi að vígi. Auðvitað verður alltaf að ganga út frá óljósum og óvissum forsendum, eins og er með bátaútgerðina yfir höfuð einnig, um það, hvernig afkoman verði á árinu 1973, en í meginefnum hlýtur að liggja nokkuð ljóst fyrir, að þetta eigi að geta gerzt á örfáum dögum, þannig að það hefði átt að geta verið búið að gera þetta fyrir löngu, hvort sem ríkisstj. hefði viljað birta þau plögg togaraeigendum eða ekki, það er auðvitað hennar mál. En ég vek athygli á því, að hæstv. ráðh. sagði hér áðan, að hann teldi, að það mundi fara að komast hreyfing á þetta mál, þegar þessari athugun væri lokið. Þess vegna fæ ég ekki annað skilið en út úr þessu hljóti að verða að lesa og sé eðlilegt að lesa, að ef þessi athugun hefði legið fyrr fyrir, þá hefði hreyfing komizt fyrr á málið og líkur til úrlausnar.
Ég sé í rauninni ekki annað en stefnt sé í algert öngþveiti, ef hæstv. ráðh. ætlar að halda svona á þessu máli og segja: Semjið þið, svo skulum við ræða um það á eftir, hvort ríkið ætlar að styrkja ykkur eða ekki. — Það eru a. m. k. allt önnur vinnubrögð en hæstv. ráðh. hafði núna, þegar bátakjarasamningarnir voru gerðir og fiskverðið var ákveðið. Þá sat hann með samningsaðilum eða var í nánu sambandi við þá til þess að tryggja, að ekki kæmi til öngþveitis. Það var a. m. k. hans mat, að til þess að ná þeim samningum þyrfti viss opinber aðstoð að koma til, og þá var nákvæmlega eins ástatt og nú gildir um togarana. Ég held, að ég hafi ekki misskilið hann, að það liggi ljóst fyrir, að einhver opinber aðstoð þurfi að koma til, Á því allt annað hér við heldur en um almenna kjarasamninga, eins og ég áðan sagði, þar sem byggt er á því, að atvinnureksturinn geti staðið sjálfur undir þeim kjörum, sem samið er um. En varðandi bátakjarasamningana sat hæstv. ráðh. með samningsaðilum og gaf yfirlýsingar. Ég skal ekki fara út í þá sálma, hvaða heimildir hann hafði til að gefa þær, það er innanríkisstjórnarmál, þar sem hann létti álögum af bátaútgerðinni, til þess að samningar gætu tekizt. Ég er ekkert að lasta hæstv. ráðh. fyrir þetta, en hann viðhafði þarna allt önnur vinnubrögð. Hann hafði forustu um málið. Þegar hann sá, hvað á milli bar, reyndi hann að brúa það bil, en sagði ekki bara: Semjið þið og komið svo og ræðið við mig eftir á, þegar þið eruð búnir að semja, og þá skal ég íhuga, hvað hægt er að gera. — Ég er ekki viss um, að sú stefna sé rétt, og ég held, að sú stefna, sem hefur verið að þessu leyti viðhöfð í togaradeilunni, stefni út í algera ófæru og geti ekki annað gert. Ef það er mat hæstv. ráðh. t. d., að togarasjómenn fái of lítið kaup og það eigi að ganga að einhverjum tilteknum hluta af þeirra kröfum, þá er sjálfsagt að taka það líka inn í athugunina á rekstrarafkomu togaraflotans, sem nú stendur yfir, og ef það er skoðun hans, að það verði veitt ríkisaðstoð til að brúa þetta bil, þá verði það tekið einnig með í dæmið. En ég skil ekki, að hæstv. ráðh. ætlist til þess undir neinum kringumstæðum, að togaraeigendur geri út togaraflotann á næsta ári með sannanlegum stórhalla. Því trúi ég ekki, og ég veit, að hann hefur þann hug til útgerðarinnar, að það getur ekki verið.
Mér sýnist, að allar þær umr., sem hér hafi farið fram, bendi ótvírætt til þess, að ekki hafi verið haldið á þessu máli sem skyldi og hér hafi átt sér stað einhver seinagangur og mistök, sem eru í rauninni lítt skiljanleg, miðað við þá yfirlýsingu hæstv. ráðh. sjálfs, að hann hafi í rauninni verið búinn að leiða málið að verulegu leyti til lykta, þegar verkfallið hófst. Engu að síður stendur það um mánaðarskeið og engir samningafundir haldnir í hálfan mánuð. Þurfum við áreiðanlega ekki að deila um við einn eða neinn, hvorki ég né hæstv. ráðh, né hv. þm., að þetta er hið alvarlegasta mál.
Ég skal svo ekki, herra forseti, eyða fleiri orðum að þessu efni. En mér sýnist, að eins og málum er hér háttað, ætti hæstv. sjútvrh. að grípa í taumana, áður en til ófarnaðar er lengra komið, og halda á málum á þann veg, að það takist að leysa þessa deilu. Ef það eru aðeins smáatriði, sem á milli ber, og stærri atriðin öll hafi verið leyst, eins og hann áðan sagði, þá hlýtur það að verða manni óskiljanlegt, hvernig stendur á því, að þessi stórvirku framleikslutæki liggja bundin í höfn. Ég veit að vísu ekki, hvort hæstv. ráðh. vill nokkuð um það segja hér, en manni verður að spyrja, ekki sízt eftir þau ummæli, sem komu hér fram frá hv. 4. þm. Austf. um afkomuhorfur skuttogara, hvort það sé grundvallarstefna, sem hefur verið mörkuð af hæstv. ríkisstj. eða hæstv. sjútvrh., að það komi ekki til mála, hvað sem athugun á afkomuhorfum togaraflotans líður, að veita skuttogurum styrk. Ég skal taka undir það með honum, að það væri mjög geigvænlegt, ef skyldi þurfa að grípa til þess með þessi stórvirkustu og nýjustu framleiðslutæki, sem nú eru í stríðum straumum að koma til landsins og menn binda miklar vonir við, að reka þau með styrk. En mér sýndust þær tölur ekki glæsilegar, sem hér voru birtar áðan, og gefur það tilefni til að spyrja hæstv. ráðh. um, hvort það sé fyrir fram útilokað eða hvort ríkisstj. telji, að það komi til álita að veita einnig einhvern styrk til útgerðar þeirra togara, ef sú athugun, sem ríkisstj. sjálf stendur að, skyldi sýna, að ekki væru horfur á, að þeir gætu staðið undir álögum þeirra.
En aðeins að lokum þessi orð til hæstv, ráðh., sem ég vil á engan hátt vera að dreifa á að öðru leyti : Ég veit, að hann hefur góðan hug á að leysa þetta mál, þó að ég álíti, að það, sem hann upplýsir um vinnubrögðin í því, sýni, að þau hafi ekki verið heppileg. Hér er svo mikið í húfi, að það er mikils um vert, að nú sé rösklega að því gengið að leysa málið og það helzt án þess, að það þurfi að beita löggjafaraðferðum til að knýja fram lausn þess.