26.10.1972
Sameinað þing: 8. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (159)
264. mál, útbreiðsla sjónvarps
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Í fjarveru hæstv. menntmrh. hef ég verið beðinn að flytja svör við fsp. hv. 4. þm. Norðurl. e. En spurningar hans varða eingöngu Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur, eins og fram kom af hans málí rétt núna, og svörin miðast að sjálfsögðu við það.
1. liður spurningarinnar var þessi: „Hvenær má vænta þess, að sjónvarp nái til allra landsmanna?“ Og 2. liðurinn: „Liggur fyrir kostnaðaráætlun til að ná því marki?“ Svarið er þetta:
Að því er varðar 1. og 2. tölul. fsp., þá er þess að geta, að um 99% landsmanna hafa nú möguleika á að hagnýta sér sjónvarp, en um 1% eða samtals 471 sveitabýli búa við slæm eða ónothæf skilyrði til viðtöku sjónvarps. Sums staðar er um að ræða nokkra bæi, sem gætu notað sömu sjónvarpsstöð, og er stærsta svæðið með 17 býlum. Radiódeild Landsímans telur, að þurfa muni a.m.k. 150 stöðvar í viðbót við þær, sem fyrir eru, til þess að skapa öllum landsmönnum tæknileg skilyrði til sjónvarpsnota. Á síðustu áætlun Landsímans um þessi efni er lægsta kostnaðaráætlun fyrir litlar stöðvar uppsettar um 1.5 millj. kr. Hér er þó ekki um endanlega kostnaðaráætlun að ræða, heldur aðeins mjög lauslega. Það er því fyrst og fremst fjárhagsatriði, hvenær sjónvarp nær einnig til 471 sveitabæjar, sem nú eru án viðhlítandi skilyrða til viðtöku sjónvarps. Eins og nú hagar til um fjárhag og tekjumöguleika Ríkisútvarpsins, er ekki rétt að gera ráð fyrir, að á þessu verði nein skjót lausn.
3. liður spurningarinnar var á þessa leið: „Á hvaða stöðum er talin þörf á að byggja sjónvarpsstöðvar í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum, og hvenær er ráðgert, að það verði gert?“ Við þessum lið fsp. er svarið þetta:
Varðandi 3. lið fsp. er rétt að geta þess, að fullgerðar eru sjónvarpsstöðvar á Vaðlaheiði, Hálsi, Hóli hjá Dalvík, Svarfaðardal, Ólafsfirði og hjá Goðafossi. Enn fremur eru fullgerðar stöðvar á Fljótsheiði og í Axarfirði að öðru leyti en því, að þar á að setja sterkari magnara, sem munu hafa í för með sér minni háttar úrbót á styrkleika stöðvanna. Á Heiðarfjalli átti að setja upp 5 watta magnara 1. sept. 1972, en vegna mistaka hjá framleiðanda varð að endursenda hluta magnarans til lagfæringa, og hefur framkvæmdin tafizt af þessum sökum. Ráðgert er að reisa stöð á Húsavíkurfjalli, en Ríkisútvarpið segir, að ekki hafi reynzt unnt að fá byggingameistara fram að þessu, en væntanlega hefjast framkvæmdir á næsta sumri. Þessi stöð mun veita Tjörnesingum þjónustu og bæta einnig skilyrði til viðtöku sjónvarps í Grímsey. Af þeim stöðum í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum, sem ekki njóta sjónvarps, má nefna hluta af Öxnadal og Hörgárdal, hluta af Bárðardal, enn fremur nokkur svæði með allt að 5 bæjum, sem ekki njóta sjónvarps, í Sölvadal og Torfufellsdal í Eyjafirði, í Fnjóskadal, Köldukinn og framarlega í Reykjadal, Laxárdal og á Tjörnesi (Mánárbakki). Í framkvæmdaáætlun Landsímans fyrir árið 1972 er gert ráð fyrir 15 nýjum sjónvarpsstöðvum í landinu, sem mundu þá þjóna frá 17 og niður í 8 bæjum hver um sig. Í þeirri áætlun eru m.a. Hörgárdalur og Öxnadalur, en vegna fjárhagsörðugleika Ríkisútvarpsins hefur ekki reynzt unnt að hrinda þessum fyrirætlunum í framkvæmd.
Þetta er svarið. En vitanlega er það svo, að í flestum héruðum landsins, ekki sízt á Austfjörðum og Vestfjörðum, er svipaða sögu að segja og hér, að þar eru allmörg sveitabýli, sem annaðhvort hafa mjög slæma eða alls ófullnægjandi aðstöðu til þess að geta notið sjónvarps. Þar er ýmist um einstaka sveitabæi að ræða eða nokkra, og væri hægt að leysa vanda þeirra með útvarpsstöð, en þetta er vitanlega mjög kostnaðarsamt viðfangsefni.