22.02.1973
Sameinað þing: 48. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2045 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)

Umræður utan dagskrár

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég býst við, að mér nægi 5 mínútur. — Ég vil taka undir það, sem hv. 2. þm. Reykv. og hv. 3. landsk. sögðu hér áðan í sambandi við verðlagsmálin og útlitið í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar. Það hlýtur að vera öllum áhyggjuefni, hvert stefnir í þessum málum. Kaupgjaldið hækkar um næstu mánaðamót um 14.3%, og eins og hv. 3. landsk. þm. sagði hér áðan, er útlit fyrir, að kaupgjaldsvísitalan hækki á árinu um allt að 20% eða meira, og þá sjá allir, hvernig atvinnulíf þjóðarinnar er komið. Kostnaðarverðbólgan gengur laus nú eins og oftast áður, síðan núv. ríkisstj. kom til valda.

Hæstv. ríkisstj. hefur talað mikið um aflabrest og talið, að gengislækkunin í des. og efnahagserfiðleikarnir væru þess vegna. Mér er þó kunnugt um, að sumir hæstv. ráðh. hafa gert sér fulla grein fyrir ástæðunum og hafa séð í gegnum þennan vef. Aðrir hæstv. ráðh. virðast ekki hafa gert sér grein fyrir þessu. Ég heyrði ekki nema lítinn hluta af því, sem hæstv. fjmrh. sagði í gær á beinni línu, en eitt heyrði ég, sem gaf mér tilefni til að fá glöggar heimildir um réttmæti fullyrðinga hæstv. ráðh. Hann sagði, að efnahagsvandinn og gengislækkunin hefðu átt sér stað vegna aflabrests, vegna þess að aflamagnið og aflaverðmætið hefði minnkað um tæp 11% á s. l. ári. Í tilefni af þessu hringdi ég í örugga stofnun, sem gaf mér upplýsingar í morgun. Þar segir, að heildarútflutningur landsmanna hafi verið 1970 12 milljarðar 915 millj., 1971 13 milljarðar 175 millj, og 1972 16 milljarðar 895 millj. Þar af voru sjávarafurðir 1970 10 milljarðar 111 millj., 1971 11 milljarðar 56 millj. og 1972 12 milljarðar 318 millj. Og aflamagnið var 1970 733 þús. lestir. 1971 681 þús. lestir og 1972 739 þús. lestir. Ef hæstv. fjmrh. hefur sagt flest annað álíka satt í áheyrn allra landsmanna í gærkvöld eins og þetta, þá er illa farið.

Ég verð að segja, að það er algerlega þýðingarlaust fyrir hæstv. ráðh. að segja, að efnahagsörðugleikarnir séu vegna aflabrests eða vegna þess, að aflaverðmætið sé minna, vegna þess að það hefur hvorugt gerzt, að það sé aflabrestur eða að verðlagið sé ekki í lagi. Það vita allir, að það er í hámarki. Erfiðleikarnir eru til komnir af allt öðrum ástæðum. Þeir eru heimatilbúnir. Og nú er svo komið, að flestir eru farnir að gera sér grein fyrir hættunni, sem þjóðfélaginn stafar af þessu. Hæstv. ríkisstj. hefur ekki traust hjá launþegunum eða stéttasamtökunum. Hún hendir hér í skyndi inn frv., sem hefur ekki stuðning stjórnarflokkanna, káki, sem getur ekki leyst neinn vanda. Úr því að svo er komið, er vitanlega hætta á ferðum, og spurningin er, hversu lengi við getum búið við þetta. Verða ekki atvinnuvegirnir að stöðva rekstur sinn, þegar kemur fram á árið, þegar allt er með tapi og ekkert bólar á lausn togaradeilunnar? Stærsta stjórnarblaðið — (Forseti: Þm. hefur talað í 5 mínútur.) Ég skal ekki níðast á því, ég efast ekki um, að hæstv. forseti hefur lög að mæla, þegar hann takmarkar ræðutímann. Ég hef ekki flett upp í þingsköpunum, en ég efast ekkert um það. En ég ætlaði aðeins að segja það, að Tíminn er með ádeilur á ríkisstj. í morgun fyrir það, hversu slælega hefur verið unnið að því að leysa togaradeiluna, og bragð er að, þá barnið finnur. En ég vona, að hæstv. ríkisstj. geri nú eitthvað meira í því að leysa togaradeiluna, þótt kannske megi lítils af henni vænta.