22.02.1973
Sameinað þing: 48. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (1610)

11. mál, starfshættir skóla

Fram. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Allshn, hefur tekið til athugunar þá þáltill., sem hér fara fram framhaldsumr. um Nál. er á þskj. 296, en till. sjálf er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta rannsaka: 1) aðstöðu til líkamsræktar í skólum landsins, 2) vinnuálagið í skólum. Rannsókninni skal hraða svo sem tök eru á, og gera skal Alþ. grein fyrir árangri þegar að rannsókn lokinni.“

Þannig eru tvö meginatriði, sem till. vekur sérstaklega athygli á, — atriði, sem sérstök þörf er talin á að gefa verulegan gaum, þegar skólamál her á góma. Í fyrra lagi vil ég ræða vinnuálagið. Það er talið í ýmsum tilvikum vera meira en góðu hófi gegnir, og eru í grg. fyrir till. nokkur dæmi tekin um það, t. d. eins og það, sem segir í grg., að starfstími, einkum stúlkna í skólum, geti farið yfir 80 klst. á viku eða m. ö. o. tvöfaldur sá vinnutími, sem viðurkenndur er í fjölda starfsgreina hér á landi. Þá má segja það, og það er alkunna, að víða úti um land og eins hér í Reykjavík, þar sem ræðir um heimanaksturs- eða heimangönguskóla, þá fara nemendur margir hverjir mjög langan veg. Þeir fara að heiman frá sér kannske 7–7.30 að morgni og koma í mörgum tilvikum ekki heim fyrr en seinni part dags og jafnvel ekki fyrr en um kvöldmatarleyti, og er þá auðsætt, að mjög skammur tími er til undirbúnings fyrir næsta eða næstu daga.

Svo kemur hitt til, að fjölmiðlar svo sem sjónvarp og útvarp, sjá um það víða að trufla eða útiloka kvöldstarf unglinga og barna, þó að eigi komi til annað eins og t. d. mismunandi aðstaða til náms og annarrar heimavinnu á heimilum. Vissulega má þykja nægilega að verið, þó að ekki komi til undirbúningsvinnu svo síðla sem ég hef getið, nema þá í hreinum undantekningartilfellum. Þá má geta þess, að víða, þar sem mér er kunnugt, er sá háttur orðinn á, að kennsla fellur niður á laugardögum. Fyrir þá sök vex að sjálfsögðu verkefnið hina dagana sem því svarar, því að yfir ákveðið námsefni verður að sjálfsögðu að komast á skólaárinu. Þegar þannig er, virðist eðlilegast að taka til þess ráðs að láta mestan hluta bóknáms og þar með allan undirbúning að næsta degi eða næstu dögum fara fram í kennslustundunum sjálfum, og hefur slík ábending komið oftar en einu sinni fram og m. a. hér á hv. Alþ. ekki alls fyrir löngu. Færi þá fram í sjálfum skólunum allt reglulegt nám, a. m. k. að því er varðar hina yngri nemendur. Hlutverk kennaranna verður að sjálfsögðu að sama skapi mikilsverðara og mun vandasamara en ella, en hins vegar komast kennarar við þetta í betri tengsl, nánari tengsl við nemendurna og munu þá komast að raun um það, að því er varðar hvern einstakan nemenda, ef þeir eru ekki of margir í bekk, hvernig hverjum og einum nemanda tekst að vinna að verkefnunum. En við nánari rannsókn þessara mála munu mörg fleiri dæmi koma til úrlausnar, þannig að leiðréttingar munu í mörgum þessum efnum og fleiri koma til við frekari athugun þessa máls.

Hvað sem öðru líður, er óhætt að fullyrða, að vinnuálag í skólum er tímabært rannsóknarefni og niðurstöður þeirra rannsókna geta orðið til verulegs og jafnvel ómetanlegs gagns um, hvert framhaldið verður hagkvæmast og bezt, bæði fyrir nemendur og kennara.

Það liggja fyrir hjá allshn. umsagnir frá Landssambandi framhaldsskólakennara og Sambandi ísl. barnakennara. Hvor tveggja þessi aðili kveðst fagna þessari þáltill. Landssamband framhaldsskólakennara getur þess m. a., að fyllsta ástæða væri til þess, að jafnhliða færi fram rannsókn á aðstöðu til verklegrar kennslu svo og aðstöðu til mötuneytis fyrir nemendur í skólum. Samband ísl. barnakennara tekur fram m. a. í sinni umsögn, að rannsókn á vinnuaðstöðu nemenda og kennara, hvort tveggja í senn, væri einnig verðugt verkefni. Þessar ábendingar frá aðilum, sem gjörþekkja þessi mál og aðrar hliðar skólamála, virðast mjög eðlilegar og eigi annað sýnna en þessar ábendingar rúmist vel innan ramma þeirrar rannsóknar, sem till. fer fram á.

Annað meginefni þáltill. fjallar um rannsókn á aðstöðu til líkamsræktar í skólum landsins. Vafalaust verður að telja, að aðstaðan, að því er varðar líkamsrækt eða íþróttir, sé misjöfn. Sums staðar mun hún ærið bágborin og jafnvel ekki vera til staðar í sumum skólum. En það segir sig sjálft, að engu að síður verður að leggja áherzlu á stundun íþrótta, herðingu líkamans við skipulega áreynslu en námið sjálft að öðru leyti, og því meira og tímafrekara, sem bóknámið verður og námskröfur hertar, og ég tala ekki um, ef nemendur sækja fast sitt nám og þar að auki kemur svo til langvinn skólaseta, því nauðsynlegri verður þessi þáttur í skólastarfinu. Það er augljóst.

Stjórn Íþróttakennarafélags Íslands hefur sent umsögn um þetta atriði málsins til n., og segir m. a. í þeirri umsögn, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn Íþróttakennarafélags Íslands leyfir sér að taka fram, að hún er þeirrar skoðunar, að rík ástæða sé til að rannsaka ítarlega aðstöðu til líkamsræktar í skólum landsins. Stjórnin telur, að niðurstöður slíkrar rannsóknar geti m. a. haft veigamikil áhrif á fyrirhugaða endurskoðun á námsskrá fyrir skólaíþróttir og orðið til þess, að athuga verði leiðir til úrbóta. Stjórn Íþróttakennarafélags Íslands vill stuðla að því, að þessi raunsókn verði látin fara fram, og leyfir sér því að styðja þáltill.“

Og í þeim tveim umsögnum, sem ég drap á áður, er einmitt vikið að þessum lið till. og þar talin nauðsyn rannsókna í þessu efni.

N. hefur ekki, svo að neinu nemi, borið saman þau skólafrv., sem nýlega hafa komið fram á Alþ., við þáltill., en þykist þó viss um, að þau haggi engan veginn þeirri nauðsyn, sem telja verður á þeirri athugun, sem till. gerir ráð fyrir. Allshn. hefur þannig einróma fallizt á að mæla með samþykkt þáltill.