26.02.1973
Sameinað þing: 49. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2088 í B-deild Alþingistíðinda. (1639)

Umræður utan dagskrár

Jónas Árnason:

Herra forseti. Það er sannarlega ekki ófyrirsynju, að vakið er máls á landhelgisgæzlunni og ástandinu að því er varðar landhelgisbaráttu okkar Íslendinga í dag. Ég vil þó taka það fram, að ég fellst alveg á það, sem hæstv. dómsmrh. sagði hér áðan, að allir hljóta að viðurkenna, að varðskipin hafa haft ærnum verkefnum að sinna, því miður, öðrum en að gæta landhelginnar. Hinu er ekki að leyna, að mér virðist ef þetta heldur áfram eins og hefur verið, að þá kunni að stefna í óefni.

Hv. þm. hafa kannske tekið eftir því, að togaraeigendasambandið brezka segist hafa gert leynilega áætlun varðandi veiðar hér á Íslandsmiðum. Mér er að sjálfsögðu ekki kunnugt um, hvernig ætlunin er að framkvæma þessa áætlun í einstökum atriðum. En hitt get ég fullyrt, hvert takmark hennar er. Takmark hennar er að veiða hér á Íslandsmiðum sem allra fyrst 170 þús. tonn. Brezku togaraeigendurnir gera sér vonir um að geta verið búnir að þessu í júnímánuði, og þá miða þeir við 1. sept. s. l. Hugsum okkur, að þeir verði búnir að veiða 170 þús. tonn í lok júnímánaðar, þá hafa þeir veitt á 10 mánuðum það, sem hinir aldurhnignu spekingar í Haag sögðu, að hæfilegt væri, að þeir veiddu hérna á ári. Þetta er skýringin á því, hve fast þeir sækja sjóinn hér í kringum land okkar í dag, hvernig þeir ganga fram í því að drepa t. d. smáfiskinn. Þeir eru staðráðnir í því að hirða allt, sem þeir geta, af miðum okkar til þess að koma sér upp í þennan tonnafjölda. Úlfunum hefur verið hleypt lausum á lífsbjörg okkar Íslendinga. Og þegar að því kæmi í júní, að þeir væru búnir að veiða þessi 170 þús. tonn með þessum vinnubrögðum, þá er ætlunin að segja við umheiminn: Þetta er það, sem Haagdómstóllinn sagði, að hæfilegt væri, að við veiddum. Nú höfum við veitt það, og við erum löghlýðnir menn og okkar floti fer á önnur mið þangað til 1. sept. — Jafnframt ætla þeir að staðhæfa það, eftir að þeir eru búnir að koma sér upp í 170 þús. tonn með því að drepa smáfiskinn hér við Íslandsstrendur, að þetta sé líka sönnun þess, að nóg sé af fiski á Íslandsmiðum.

Í þessu er fólgin hættan fyrir okkur í dag. Þeir munu einskis svífast, þessir menn, til þess að ná þessu marki. Og til þess að aftra því, að þeir nái þessu marki er aðeins eitt ráð, og það er að efla landhelgisgæzluna. Ég er sannfærður um það og hef reyndar fyrir því orð manna, sem gerst mega um þetta vita, að með því áframhaldi, sem var á þessum málum, áður en gosið hófst í Vestmannaeyjum, væri hægt að takmarka afla Breta svo mjög, að hann væri kannske ekki nema eitthvað 25–30% af því, sem hann væri við eðlilegar aðstæður, og það með því eingöngu að beita þeim aðferðum, sem þá var beitt, þ. e. a. s. klippingum. En hins vænti ég jafnframt, að ef það dugir ekki, þá sýnum við það, að við getum tekið togara og fært þá til hafnar, og þá eigum við ekki að skila þeim aftur. Við eigum að skila einu, það er skipshöfninni, en halda hinu.