27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2133 í B-deild Alþingistíðinda. (1665)
140. mál, virkjun Jökulsár eystri í Skagafirði
Fyrirspyrjandi (Gunnar Gíslason) :
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. orkuráðh. fyrir svör hans, og hef ég ekkert við þau að athuga. En ég leyfi mér af þessu tilefni, að rætt er um þessi mál hér, að leggja áherzlu á, að nauðsyn ber til þess, að athugun á virkjunarmöguleikum í fallvötnum nyrðra verði hraðað og undinn að því bráður bugur að ákvarða, með hvaða hætti eigi að sjá okkur Norðlendingum fyrir rafmagni. Þar er komið í mikið óefni. Við búum þegar við mikinn raforkuskort, og má gleggst sjá það á því, sem fréttaritari Morgunhlaðsins á Akureyri skýrði frá í blaðinu í morgun.