27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2146 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)
290. mál, gufuaflsvirkjun til rafmagnsframleiðslu
Gunnar Gíslason:
Herra forseti. Eins og hv. 5. þm. Norðurl. e. benti á, virðist mér það mjög koma fram í svörum hæstv. iðnrh. við þessum fsp. um raforkumál í Norðurlandi að hann telur höfuðnauðsyn, að lögð verði fyrst lína frá Sigölduvirkjun norður. Um þetta er ágreiningur á milli okkar ýmissa manna í Norðurlandi og hæstv. ráðh. Við teljum, að það eigi að ráðast í virkjun heima, og leggjum á það höfuðáherzlu. Við vitum það, og þarf ekki að lýsa því, hversu mikils virði virkjun er fyrir það landssvæði, þar sem hún er byggð. Og við teljum, að virkjun fyrir norðan veiti okkur miklu meira öryggi í rafmagnsmálum heldur en línan norður yfir Sprengisand, þó að ekkert verði fullyrt um það, hvernig hún muni reynast. En ég vil leyfa mér að skjóta því fram hér, og hugsa þá til þeirra náttúruhamfara, sem nú eru að gerast í landi okkar, hvort það sé ekki óráðlegt að byggja allar stórvirkjanir landsins á því svæði, sem jarðfræðingar nefna eldgosasvæðið. Væri ekki hyggilegt að huga að því að byggja eitthvað af hinum stóru virkjunum utan þessa svæðis?