27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

291. mál, störf stjórnarskrárnefndar

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég verð að lýsa undrun minni og furðu á því svari, sem fæst hjá hæstv. forsrh. vegna þeirrar fsp., sem hér er borin fram. Bæði er ég undrandi og furðu lostinn á því, að það skyldi hafa dregizt í 4 mánuði að kalla saman n., og eins hinu, að hæstv. forsrh. skýtur sér undan því að svara rannverulega til um það, hvað áunnizt hefur hjá n. á þeim tíma, sem hún þó hefur starfað. Ég var einn af þeim þm., sem samþykktu þessa þáltill. á síðasta þingi, og ég man ekki betur en það hafi verið mjög einróma samþykkt og í ljós hafi komið mjög almennur áhugi hjá þingheimi á því, að þessi till. næði fram að ganga og eitthvað raunhæft væri nú gert varðandi endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þegar svona svör berast og í ljós kemur, eins og hv. fyrirspyrjandi gefur í skyn, að allar líkur séu á því, að verið sé að svæfa þessa n. og störf hennar, þá vaknar að sjálfsögðu sú spurning, hvað líði almennt framkvæmd á þeim þáltill., sem hér eru samþykktar. Eru þær einasta settar í n. og teknar í hinn stóra sarp, án þess að frekar sé unnið að framkvæmd þeirra?

Hæstv. forsrh. kvaðst lítið vita um störf n. og gaf í skyn, að hlutverk hans hefði verið það eitt að koma n. saman, kalla hana saman til fyrsta fundar. En eins og ég sagði áðan, skaut hann sér undan því að svara raunverulega, hvað n. sjálf hefði aðhafzt. Nú kemur þetta mér spánskt fyrir sjónir, vegna þess að ég hef skilið það svo hingað til, að þegar fsp. hefur verið beint til ráðh., þá leiti þeir upplýsinga hjá viðkomandi aðilum um það, hvað fram hafi farið, og það er viðtekin venja hér, að þeir jafnvel vitni beinlínis til þeirra skýrslna og þeirra upplýsinga, sem þeir fá hjá viðkomandi aðilum. (Forseti: Hv. þm, hefur lokið ræðutíma sínum.) Já, ég skal ljúka þessu. Ég vil aðeins að lokum af þessu tilefni nota tækifærið og beina fsp. til þeirra nm., sem í þessari n. eiga sæti, hvort þeir séu ekki tilbúnir til að veita frekari upplýsingar, og þá hef ég sérstaklega í huga, að formaður þessarar n. mun vera hæstv. félmrh.