27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)

291. mál, störf stjórnarskrárnefndar

Fyrirspyrjandi (Gísli Guðmundsson) :

Herra forseti. Hæstv. forsrh. beindi þeim ummælum til hv. þm. Ellerts Schram, að hann hefði átt að bera fram fsp. sína í flokki sínum, en ekki á. þinginu. Ég hlýt að taka þetta einnig til mín, og ég vil andmæla því, að það sé eitthvað rangt við það að bera fram fsp. á Alþingi Íslendinga og að menn eigi í þess stað að bera fram fsp. í flokkum.