27.02.1973
Sameinað þing: 50. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2152 í B-deild Alþingistíðinda. (1698)

291. mál, störf stjórnarskrárnefndar

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Það var nú, þó að ég tali í annað skiptið, frekar til þess að bera af mér sakir, að ég stend hér upp, vegna þess að hæstv. forsrh. byrsti sig mjög í svari sínu eftir ræðu mína áðan, og vissi ég ekki almennilega, hvernig á þeim hita stóð, vegna þess að ég hafði ekki viðhaft þau stóryrði, sem hann lét í skína, að ég hefði viðhaft. Hins vegar held ég, að ástæðan sé kannske frekar sú, að málið er greinilega viðkvæmt og á því hefur verið slælega haldið, eins og reyndar hefur komið fram í þessum umr. Hins vegar skal ég góðfúslega draga til baka þau orð mín, að hann hafi skotið sér undan því að svara efnislega þessari fsp., vegna þess að það má frekar orða það þannig, sem reyndar hefur komið í ljós, að hann gat ekki svarað þessu öðruvísi, því að ekkert hafði gerzt í n. Þess vegna skal ég draga þau orð mín til baka, að hann hafi skotið sér undan svarinu. En ég vil segja það að lokum, að hæstv. forsrh. sagði í upphaflegu svari sínu, að oft fari svo, að það taki n. mörg ár að skila álitum, og ég held, að það sé ljóst öllum þingheimi, sem á þessar umr. hefur hlustað, að þessi n. mun ekki skila áliti fyrr en eftir mörg ár, ef áfram ríkir það hugarfar og það viðhorf til nefndarstarfa, sem fram hefur komið hjá forráðamönnum.