07.03.1973
Efri deild: 66. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2384 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)
Umræður utan dagskrár
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Það hefur verið nokkurt hlé á því, að við gætum hafið fundarstörf hér í dag. Raunar undirstrikar það nú það, sem ég vil koma að, hve mikið er að gera í Nd., þar sem ég vildi mjög gjarnan, að hæstv. forsrh. væri viðstaddur, en hann var störfum hlaðinn þar.
Þegar við lítum á dagskrá Alþ. í dag, sjáum við, að þar er eitt mál á dagskrá þessarar hv. d., en 15 mál á dagskrá Nd. Á þessu væri ekki orð gerandi, ef þetta væri einsdæmi, en svo hefur verið, frá því að við tókum til starfa eftir jólaleyfi, að oftast nær hafa verið eitt eða tvö mál — kannske komið einu sinni fyrir 3 mál — á dagskrá í Ed., en þetta milli 10 og 20 mál að öllum jafnaði á dagskrá í Nd.
Þegar haft er í huga, að báðar d. þingsins eru jafnréttháar og að það skiptir verulegu máli fyrir vinnubrögð Alþingis, að verkefnum sé skipt nokkuð jafnt á milli beggja þd., þá sjá menn strax, að hér er nokkuð að. Það er ekki svo, að þetta sé í fyrsta skipti, sem ástæða hefur verið til þess að hreyfa aths. sem þessum, og ég er ekki að segja, að það hafi ekki komið fyrir, að það hafi verið ástæða til þess áður fyrr, áður en núv. ríkisstj. tók við völdum, og raunar hefur það verið gert. En mér þykir, að nú keyri alveg um þverbak í þessum efnum, og til stuðnings þeirri skoðun minni vil ég láta þess getið, að frá því að Alþ. tók til starfa eftir jólaleyfið hafa dagskrármál í þessari hv. d. verið 23, en í Nd. 103. En frv., sem hafa verið tekin fyrir á þessum tíma, hafa verið 12 í Ed., en 30 í Nd. Af þessum tölum er augljóst, að hér er mikið misræmi á ferðinni og þetta hlýtur að hafa veruleg áhrif á störf Alþ. Ég hygg, að ég þurfi ekki að fara að flytja hér langt mál til þess að færa sönnur á það. En þessar tölur, sem ég nefndi, gefa þó raunar ekki rétta mynd af ástandinu, því að ástandið er mun lakara en þessar tölur gefa til kynna. Það sjáum við, ef við athugum, hvers eðlis þau frv. eru, sem liggja fyrir hv. Nd. og hafa verið lögð fram á þessum tíma, sem hér um ræðir, og berum saman við þau frv., sem liggja fyrir þessari hv. d. og hafa verið borin fram á þessum sama tíma. Þá kemur í ljós, að það skiptir algerlega í tvö horn. Það er ekki að sjá, að ríkisstj. líti á báðar deildir sem hliðstæður í þessu efni.
Ríkisstj. hefur, á sama tíma og hún hefur látið þessa hv. d. vera nær verkefnalausa, hlaðið á Nd. fjölda stjfrv. um hin þýðingarmestu efni, sem varða heila lagabálka um flókin og vandasöm mál. Ég nefni sem dæmi frv. um framkvæmd eignarnáms, frv. um dvalarheimili aldraðra, frv. um breyt. á l. um skólakostnað, frv. um breyt. á l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins, frv. um skólakerfi, frv. um grunnskóla, frv. um skipulag ferðamála, frv. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1970. Það er ekki einu sinni hægt að treysta þessari d. fyrir tölum ríkisreikningsins, og hefur það þó verið í anda þess, sem d. hefur verið treyst fyrir, og kem ég nánar að því. Ég held áfram upptalningunni á stjfrv. í Nd. Þar er enn fremur um að ræða frv. um upplýsingaskyldu stjórnvalda, frv. um heilbrigðisþjónustu, frv. um Lyfjastofnun ríkisins, frv. um lyfjaframleiðslu, frv. um breyt. á orkulögum, frv. um breyt. á l. um atvinnuleysistryggingar.
Af þessari upptalningu er ljóst, að það er rétt, sem ég sagði hér áðan, að ríkisstj. hefur hlaðið á hv. Nd. stórkostlegum verkefnum, frá því að Alþ. tók til starfa eftir jólaleyfi, hinum þýðingarmestu og margbrotnustu málum. Hvers vegna gerir hæstv. ríkisstj. þetta? Manni verður að spyrja: Hefur hv. Ed. haft svo mikið fyrir stafni? Raunar var ég búinn að segja, og okkur er öllum ljóst, að við höfum verið meira og minna aðgerðalaus, frá því að þing kom saman á þessu ári. En ríkisstj. er ekki alls varnað, ef svo mætti segja, og kannske er það ofmælt að hafa þetta orðalag. Hvað er það, sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt fyrir þessa hv. d. á sama tíma? Það er frv. um breyt. á útflutningsgjaldi sjávarafurða og frv. um breyt. á l. um skipulag á löndun á loðnu til bræðslu. Það er naumast hægt að nefna annað. Bæði þessi mál eru ekki umfangsmikil og ekki til þess fallin, að það megi gera ráð fyrir miklum umr. eða miklum störfum í sambandi við þau. (Gripið fram í.) Látum ríkisstj. njóta sannmælis. Hún hefur lagt fyrir þessa hv. d. frv. til l. um breyt. á l. um meðferð opinberra mála. Hvað er það, sem ríkisstj. treystir þessari hv. d. að gera í þeim efnum? Það er að leiðrétta tölur í þessum l., sem á að breyta, til samræmis við verðlag, ekkert annað, — leiðrétta tölur til samræmis við verðlag. En svo hefur ríkisstj., hvort sem hún hefur ekki treyst sér til að gera það sjálf eða af hvaða ástæðum sem það nú er, farið fram á það við allshn. þessarar hv. d. að bera fram frv. um breyt. á l. um stofnun og slit hjúskapar. Það er frv., sem allshn, hefur borið fram á þskj. 327. Um hvað fjallar þetta frv?
Ég leyfi mér — með leyfi hæstv. forseta að lesa grg.
„Frv. þetta er flutt að beiðni dómsmrn. og fylgdi svofelld grg.:
Er frv. núgildandi l. um stofnun og slit hjúskapar var lagt fram á Alþ. vorið 1971, varð meðferð þess ekki lokið, og var frv. þá lagt fram að nýju á næsta þingi. Við framlagningu láðist að leiðrétta eitt ártal í l., og er þeirri leiðréttingu komið hér á framfær.“
Ég hef þá gert grein fyrir því, hvað hæstv. ríkisstj. hefur lagt fyrir þessa hv. d. á sama tíma og hún hefur hlaðið á hv. Nd. þeim stórmálum, er ég áður greindi. Ég tel með tilliti til þessa, að það hafi ekki verið að ófyrirsynju að hreyfa þessu máli hér. Hverjar eru ástæðurnar fyrir þessu? Er hér um að ræða algert hirðuleysi af hálfu hæstv. ríkisstj.? Eru vinnubrögð hennar algerlega skipulagslaus í þessum efnum? Er þetta tilviljun? Eða eru einhverjar sérstakar ástæður fyrir þessu? Telur hæstv. ríkisstj., að hv. Nd. sé betur til þess fallin að fá þessi verkefni, hin stærstu verkefni, yfirleitt fyrst og fjalla um þau þannig? Ég sé, að hæstv. forsrh. hristir höfuðið, og mér kemur það ekki á óvart. Ég hygg, að naumast enginn geti verið í efa um það, að þessi hv. d. er fullkomlega eins fær um að fjalla um hin vandasömustu mál og hv. Nd. En eigum við að gera ráð fyrir, að algert skipulagsleysi og hirðuleysi ráði gerðum ríkisstj. í þessu efni?
Áður en við gerum það væri ekki óeðlilegt, að við athuguðum samt málið nánar, hvort einhverjar skýringar kynnu að leynast, sem mönnum væru ekki ljósar, eitthvað sérstakt væri hér á ferðinni, sem ekki hefur áður verið. Við erum nýkomin af fundi í Sþ., þar sem atkvgr. var um vantraust á ríkisstj. og þar kom í ljós, að ríkisstj. hefur tapað einu atkv. Hv. þm. Bjarni Guðnason vildi ekki með atkv. sínu verja stjórnina falli. Hann lýsti þessu yfir í umr. um vantraustið. En það er ekki upphaf þessa máls. Þessi hv. þm. lýsti því yfir í umr. í Sþ. fyrir áramót, að hann hefði sagt sig úr þingflokki SF, og hann gaf það fullkomlega í skyn, að hann mundi fara sínar eigin götur, ekki láta skipa sér fyrir verkum. Þetta gerðist nokkru fyrir síðustu áramót, á síðustu dögum þingsins fyrir jólaleyfi. Getur verið, að það sé eitthvert samband milli þessa atburðar og þess, að hæstv. ríkisstj. hefur síðan tekið upp þau óeðlilegu vinnubrögð, sem ég var að lýsa áðan, að flytja hin þýðingarmestu mál fyrst í Nd.? Kann það að vera, að hæstv. ríkisstj. þyki ekki annað vogandi, eins og nú er komið og ljóst er af yfirlýsingu hv. þm. Bjarna Guðnasonar fyrir jól, en að leggja málin fyrst fyrir Nd., vegna þess að þessi þm. hefur sagt, að hann telji sig ekki bundinn af því að fylgja ríkisstj. nema í þeim málum, sem hann telur sjálfur, að verðskuldi slíkt.
Þessi hv. þm., sem á sæti í Nd., hefur sett sig í dómarasæti yfir hæstv. ríkisstj., og það er vitað, að þessi hv. þm. er harður dómari. Er það svo, að það sé það samband hér á milli, að hæstv. ríkisstj. óttist manninn með ljáinn í hv. Nd. og telji ekki ómaksins vert að hreyfa hér málum, fyrr en dómur er þar genginn? Ég hef ekki getað látið mér koma til hugar nokkra aðra skýringu á framferði ríkisstj., ef það er ekki svo, að hér sé um að kenna algeru hirðuleysi og skipulagsleysi í vinnubrögðum.
Nú þykir mér, að þessi hv. d. eigi rétt á því að fá skýringar frá hæstv. forsrh, um það, hvað hér er á seyði. Er hér um yfirsjón að ræða, og ætlar hæstv, forsrh. að lofa hót og betrun, eða eru dýpri ástæður fyrir því, hvernig hæstv. ríkisstj. hefur hagað sér í þessum efnum á síðustu vikum? Er það í sambandi við þann bláþráð, sem hæstv. ríkisstj. hangir á eftir yfirlýsingu hv. þm. Bjarna Guðnasonar?