07.03.1973
Neðri deild: 61. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (1825)

145. mál, atvinnuleysistryggingar

Flm. (Bjarni Guðnason) :

Herra forseti. Það frv. til l., sem ég flyt hér á þskj. 279, varðar breytingar á l. um atvinnuleysistryggingar. Meginefni þessara breyt. er hækkun bótagreiðslna úr sjóðnum, og um leið fylgja svo aðrar minni háttar breytingar.

Aðalástæðan fyrir breyt. þeim, sem hér eru fluttar, er sú, að um rúmlega þriggja ára skeið hefur engin breyting verið gerð til hækkunar á bótagreiðslum l., þegar frá eru taldar hækkanir vegna vísitölubreytinga. Sem dæmi skal á það bent, að í okt. 1969 voru byrjunarlaun hafnarverkamanna í Reykjavík 66.09 kr. á klst. í dagvinnu, en þá voru dagpeningagreiðslur atvinnuleysistrygginga til kvæntra manna 341 kr., en eru í dag 427 kr., hafa aðeins hækkað um 25%, en byrjunarlaun hafnarverkamanna hafa frá því í okt. 1969 til dagsins í dag hækkað úr 66.09 kr. í 118.04 kr. eða hækkað um 78.7%. Sama gildir að sjálfsögðu um aðrar bótagreiðslur. Af þessu leiðir, að í þessu frv. er gert ráð fyrir, að bótagreiðslur hækki um 78.7%, þannig að í frv. er gert ráð fyrir, að dagpeningagreiðsla til kvænts manns eða giftrar konu skv. 5. gr. núgildandi l., sem nú er 266 kr., hækki í 610 kr. á dag, 230 kr. til einstaklinga hækki upp í 527 kr., og til bótaþega fyrir hvert barn á framfæri yngra en 16 ára hækki úr 25 kr. í 57 kr. og aðrar breytingar í samræmi við það. Hér er því í raun aðeins verið að leiðrétta misræmi, sem skapazt hefur, síðan lög þessi voru síðast endurskoðuð á árinu 1969.

Um fjárhagshlið þessa máls er það að segja, að gildandi lög gera ráð fyrir, að iðgjöld til trygginga hækki samhliða hækkun verkamannakaups, og greiðslugeta sjóðsins verður því ekki lakari, þótt bótagreiðslurnar hækki í sama hlutfalli og iðgjöldin. Það er því enginn vafi á því, að sjóðurinn er fullkomlega fær um að standa undir þeim hækkunum, sem hér er gert ráð fyrir. Í þessu sambandi má og benda á, að nágrannaþjóðir okkar hafa stórhækkað dagpeningagreiðslur, þannig að þær nema nú allt að 90% þeirra dagvinnutekna, sem bótaþegi hafði, áður en hann varð atvinnulaus. Einnig má benda á það, að í undirbúningi eru till. um að afnema biðtíma vegna atvinnuleysisbóta í þessum löndum.

Þetta er m. ö. o. meginatriði frv. En um leið fylgja aðrar breyt., sem eru í raun og veru minni háttar. Þar er fyrst að geta breytingar á sjóðsstjórninni. Í núgildandi l. er gert ráð fyrir því, að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs skipi 7 menn, 2 tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Íslands og 4 kosnir af Sþ. með hlutfallskosningu. Nú má á það benda, að á Norðurlöndum, þar sem um svipaða löggjöf ræðir, koma hv. alþm. ekki nálægt slíkum sjóðsstjórnum, heldur skipa þær menn vinnumarkaðarins, þ. e. a. s. fulltrúar vinnuveitenda og vinnuþega. Er að vísu ekki gengið svo langt í þeim breytingum, sem hér eru lagðar til, en þó a. m. k. stigið nokkurt skref í þá átt, sem tíðkast annars staðar. Í samræmi við það eru gerðar till. um, að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs skipi enn 7 menn, tveir séu tilnefndir af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, einn tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Íslands, einn tilnefndur af Vinnumálasambandi samvinnufélaganna og tveir kosnir af Sþ. með hlutfallskosningu, þ. e. a. s. í stað þess, að Alþ. kjósi 4 í sjóðsstjórnina, þá komi inn 2 nýir aðilar vinnumarkaðarins, sem fái þá hvor sinn fulltrúa, þ. e. a. s. Farmanna- og fiskimannasambandið og Vinnumálasamband samvinnufélaganna. Með þessu er tryggt, að þessir stóru aðilar hafi eitthvað að segja í stjórn þessa volduga sjóðs. Jafnframt er gerð sú breyting á sjóðsstjórninni, að ráðh. er heimilt að skipa þann formann sjóðsstjórnarinnar, sem honum sýnist, en formannsskipunin ekki bundin við fulltrúa Alþingis.

Aðrar minni háttar breytingar, sem hér eru gerðar á 5. og 15. gr. frv., eru til samræmis við lög um 40 stunda vinnuviku. Breytingar á 16. gr. eru tvær. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir, að ekki sé hægt að svipta mann bótum, þótt hann færist undan eða neiti að taka upp starf utan heimabyggðar sinnar. Rétt þykir, að umsækjendur um bætur séu ekki beittir þvingunum eða nauðungarflutningum með hótunum um sviptingu bóta. Þá er og gert ráð fyrir, að vinnumiðlunarskrifstofur kynni sér, hvort nokkurt vanhæfi sé á þeirri vinnu, sem þær bjóða. Það vill nokkuð brenna við, að fólk fær vinnu í þeirri góðu trú, að hún sé goldin samkv. samningum og vinnutími og annað sé í samræmi við samninga. En oft vill verða misbrestur á því, og er þá oft óhægt fyrir launþegana að ná rétti sínum, sérstaklega þegar vinna er sótt til fjarlægra staða. Þetta á t. d. við ýmiss konar vinnu, t. d. við sumarhótel og skóla og alls konar rekstur, sem er stundaður utan þéttbýlis, þar sem varðstaða verkalýðsfélaganna er minni.

Ég skal nú ekki hafa um þetta öllu fleiri orð, þar sem hæstv. heilbr.- og félmrh. tilkynnti hér áðan, að hann mundi á næstunni leggja fram nokkra endurskoðun á atvinnuleysistryggingal., m. a. um bótagreiðslur og ýmsar aðrar breyt., En ég vil láta þess getið, að ég mun að sjálfsögðu leggja mig í líma, að þær breytingar, sem eru í þessu frv., komist til skila í því frv., sem hæstv. heilbr.- og trmrh. kemur til með að leggja fram.

Að lokum vænti ég þess, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn.