08.03.1973
Neðri deild: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2435 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)
170. mál, orkulög
Stefán Gunnlaugsson:
Herra forseti. Hér er til umr. athyglisvert mál, sem mér virðist, að miði að því að tryggja hagnýtingu jarðvarma til þjóðarheilla, en eins og við vitum, þá er ein helzta auðlind lands okkar jarðhitinn, sem við hlið vatnsaflsins, fiskimiðanna og gróðurmoldarinnar á vafalaust eftir að verða undirstaða framfara, bættra lífskjara og velmegunar þjóðarinnar á komandi árum. Enn sem komið er er þessi orkugjafi lítt nýttur, en framtíðarmöguleikarnir til orkuframleiðslu og ýmiss konar annarra nota eru fjölmargir. En eins og kunnugt er hafa not hans til þessa verið bundin við húsahitun og gróðurhúsarækt fyrst og fremst.
Hæstv. ráðh. benti á það, að um 90% af nýtanlegu varmaafli á Íslandi sé að finna á svæðum, sem nefnd hafa verið háhitasvæði, en svo nefna vísindamenn jarðhitasvæði, þar sem ofan 1000 m dýpis finnst 200 gráðu heitt vatn eða heitara. Frv. gerir ráð fyrir, að ríkið fái allan rétt til umráða og hagnýtingar jarðhita á háhitasvæðum með vissum takmörkunum. Sú meginhugsun, sem liggur til grundvallar þessu frv., á að mínum dómi vissulega fullan rétt á sér, þ. e. að ein af helztu auðlindum þjóðarinnar, jarðhitinn, komist í almannaeign, svo að hagnýting hans verði til heilla og hagsældar íbúum viðkomandi byggðarlaga og þjóðinni í heild. En mér sýnist, að til þess að því markmiði verði náð, sé fullnægjandi, að ákvæði frv. nái einungis til þeirra jarðhitasvæða, sem eru í eigu einstaklinga. Ég get ekki séð neina þörf á, að ríkið yfirtaki einnig jarðhitasvæði, sem eru í eigu sveitarfélaga og þau hafa eignazt í sumum tilfellum a. m. k. með ærnum tilkostnaði. Slíkar eignir sveitarfélaga er væntanlega fyrirhugað að hagnýta til almannaheilla. En rétt er, að sveitarfélögum sé gert að skyldu að hafa samráð við Orkustofnun ríkisins um, á hvern hátt þau hyggjast nýta þá orku, sem bundin er á jarðhitasvæðum þeirra, til að tryggja skynsamlega og skipulega nýtingu jarðhitans í landinu, þannig að til mestrar þjóðarheillar megi verða. Ég er andvígur fyrir mitt leyti þeim ákvæðum í frv., sem gera ráð fyrir, að ríkið geti yfirtekið réttindi sveitarfélaga til umráða og hagnýtingar á hitasvæðum þeirra. Og þrátt fyrir það, sem hæstv. ráðh. sagði hér áðan, get ég nú ekki séð gild rök fyrir því, að ríkið taki í hendur sínar þann eignarrétt, sem hér um ræðir. Öðru máli gegnir, þegar einstaklingar eiga hlut að máli. Ég hef því lagt fram brtt. við frv., sem er á þskj. 349, við 1. gr. frv., en hún er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Við 1. gr. frv. bætist eftirfarandi mgr: Sveitarfélög skulu eiga allan rétt til umráða og hagnýtingar jarðhita á háhitasvæðum, þar sem landareign er í eign sveitarfélagsins, þrátt fyrir önnur ákvæði laga þessara:
Eitt þeirra háhitasvæði, sem nefnt er í frv. og gert er ráð fyrir, að ríkið fái umráð og hagnýtingarrétt yfir, er Krísuvík, land, sem er í eigu Hafnarfjarðarbæjar. Árið 1941 afsalaði ríkisstj. Íslands jarðhita í Krísuvík til Hafnarfjarðarbæjar til eignar án nokkurrar takmörkunar á jarðhitanum niður á við eða á annan hátt. En jafnframt var Hafnarfjarðarbær skyldaður til þess að selja ríkinu aftur jarðhita, sem bærinn þyrfti ekki að nota, með nánar tilteknum skilyrðum. Ríkið hafði áður tekið þessi réttindi eignarnámi og greitt andvirði réttindanna til fyrri eigenda. Tilgangur Hafnarfjarðarbæjar með kaupum á Krísuvík og hitaréttindunum þar á sínum tíma var að nýta hitaorkuna til hags og heilla fyrir íbúa Hafnarfjarðar og þjóðina í heild. Eðlilegt hefði þess vegna verið að undirskilja í frv. Krísuvík og önnur háhitasvæði, sem svipað stendur á um og eru í eigu sveitarfélaga. Hafnarfjarðarbær hefur lagt í mikinn kostnað við rannsóknir á möguleikum í Krísuvík. og þá skal bent á, að samkv. núgildandi lögum er Hafnarfjarðarbæ skylt að selja ríkinu jarðhita, sem bærinn þarfnast ekki til eigin nota. Það atriði í þessu frv., sem hér liggur fyrir og gerir ráð fyrir, að ríkið yfirtaki rétt Hafnarfjarðar til umráða og hagnýtingar bæjarfélagsins á háhitasvæðum í landareign þess, hefur komið til umr. í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Og það var samdóma álit allra bæjarfulltrúa að mótmæla bæri þeirri fyrirætlun, að ríkið yfirtæki þessi réttindi. Í því sambandi gerði bæjarstjórnin svo hljóðandi ályktun í einu hljóði um þetta efni með leyfi hæstv. forseta:
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir fram komnu frv. til l. til breyt. á orkul. að því er tekur til eignarupptöku ríkisins á hitaréttindum í Krísuvík, sem Hafnarfjarðarbær keypti af ríkissjóði með afsali, dags. 24. febr. 1941, samkv. heimild í lögum nr. 101/1940, sbr. og lög nr. 11/1936, og skorar á Alþ. að samþykkja brtt. Stefáns Gunnlaugssonar við frv.
Jarðhiti í Krísuvík hefur verið nýttur í mörg ár fyrir þarfir staðarins, og er nú áformuð aukin nýting hitaorkunnar þar, t. d. fyrir skóla. Þá skal á það bent, að Hafnarfjarðarbær hefur lagt í mikinn kostnað við rannsóknir og boranir á hitasvæðinu og reiknað hefur verið með möguleika á nýtingu jarðhitans fyrir jarðvarma eða raforkuvinnslu fyrir Hafnarfjarðarbæ. Lítur bærinn svo á, að ákvæði frv., a. m. k. að því er tekur til Krísuvíkurlands, brjóti í bága við 67. gr. stjórnarskrárinnar:
Þessi ályktun er ótvíræð og sýnir, svo að ekki verður um villzt viðhorf bæjarstjórnarinnar til málsins. Ég leyfi mér að vona, að hv. þd., a, m. k. meiri hl. hennar, geti fallizt á þá skoðun, að eðlilegt sé, að ríkið taki ekki í sínar hendur eignarrétt Hafnarfjarðarbæjar yfir Krísuvík eða háhitaréttindunum þar. Ég hef áður í þessum fáu orðum mínum hér leitazt við að sýna fram á, að ekki sé þörf á því, að ríkið yfirtaki hitaréttindi sveitarfélaga í sínar hendur til að tryggja hagnýtingu í þágu almenningsheilla, og ég skal ekki endurtaka það, sem ég hef sagt um það efni. En ég vil að lokum leggja áherzlu á, að megininntak þessa frv. er sú hugsun, að tryggt sé, að jarðhiti í landinu komist í almenningseign með það fyrir augum, að nýting hans verði skipuleg og með hagsmuni þjóðarinnar í heild og einstakra byggðarlaga að markmiði. Er hún í alla staði réttmæt að dómi okkar Alþfl.-manna, en því markmiði er auðvelt að ná, að mínum dómi, án þess að ríkið yfirtaki eignir sveitarfélaga, sem þau hyggjast hagnýta í þágu almennings.