30.10.1972
Efri deild: 7. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (184)
24. mál, tímabundnar efnahagsráðstafanir
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég held, að ég hafi komizt svo að orði við upphaf þessarar umr., að ég hafi hlustað með athygli á ræðu hæstv. forsrh. og þótt hún að ýmsu leyti merkileg, og ég skal játa, að ég hef hlustað líka með mikilli athygli á þessa ræðu hans hér, vegna þess að hún er vissulega einnig eftirtektarverð, en þó dálítið á annan veg heldur en fyrri ræðan. Mér hugkvæmist ekki að halda því fram og gerði það heldur ekki við 1. umr. þessa máls, að hæstv. forsrh. hafi ekki leyfi til þess, eins og hver annar þm., að hafa persónulega skoðun og láta hana í ljós. Mitt mat er ekki það, að það brjóti á neinn hátt í bága við stjórnarskrá. Hitt er annað mál, sem ég leyfði mér þá að segja og fleiri hafa bent á, að það er auðvitað alls ekki sama, hver maðurinn er, sem lýsir sinni persónulegu skoðun. Og það hlýtur auðvitað að verða litið allt öðrum augum á það, sem maður, sem er oddviti ríkisstj., segir sem sína persónulegu skoðun, heldur en hver og einn okkar hv. þm. eða aðrir borgarar í þjóðfélaginu, þegar þeir taka til máls. Það hefur enda komið í ljós, að þetta hefur verið tekið sem meira en almenn persónuleg skoðun og talið í rauninni viss stefnumörkun, m.a. í blaði hæstv. forsrh. Mig undrar það ekki neitt, þó að það sé gert, því að það liggur algerlega í augum uppi og það er það, sem hefur verið gagnrýnt hér á Alþ., en ekki það, að hæstv. ráðh. megi ekki hafa sína skoðun, heldur hefur það verið gagnrýnt, hvernig hann hefur borið hana fram, og það hefur verið talið og ég tel einnig, að það sé mjög varhugavert og þurfi a.m.k. að íhugast vel hjá oddvita ríkisstj., hvenær hann má opinberlega lýsa sinni persónulegu skoðun og hvort það getur ekki frekar aukið vandann heldur en dregið úr honum. Og ekki hvað sízt skiptir það máli fyrir hann persónulega. Það er auðvitað hans mál, má segja, hvað hann leggur upp úr því, ef það kemur á daginn við endanlega lausn mála, að hans persónulega skoðun hefur algerlega verið fyrir borð borin eða orðið undir. Ég veit ekki, hvað hæstv. núv. forsrh. telur viðunandi fyrir mann, sem fer með forsæti í ríkissj., að sætta sig við mikið frávik frá sinni skoðun, þegar endanleg tillögugerð fer fram, hvort hann telur það mögulegt fyrir sig t.d. að sitja áfram sem oddviti ríkisstj. ef það kemur á daginn, að ekkert af því eða harla lítið, sem hann hefur talið vera sín stefnumið og sína skoðun á heppilegustu úrlausn mála, nær fram að ganga. Þetta held ég, að hljóti öllum að vera ljóst og hæstv. ráðh. einnig. Og það er nákvæmlega þetta, sem menn hafa verið undrandi yfir, að hæstv. ráðh. skuli lýsa hér opinberlega á Alþ. yfir ákveðinni skoðun á lausn mesta vandamáls, sem ríkisstj. hefur nú við að glíma, áður en fyrir liggja endanlegar till. og meðan enn er verið að kanna málið, eins og hann sjálfur lýsti yfir í frumræðu sinni, að væri verið að gera.
Það hefur enda komið skýrt í ljós, að aðrir hæstv. ráðh. og aðrir, sem rætt hefur verið við í stjórnarliðinu og á opinberum vettvangi, hafa talað af mikilli varúð um þetta mál, ekki viljað tjá sig um sínar persónulegu skoðanir eða skoðanir sínar á persónulegum skoðunum forsrh., og held ég, að afstaða þessara manna hafi í rauninni verið allmiklu hyggilegri. Og ég sé ekki, hvernig það má verða til þess að greiða fyrir lausn vanda eins og þessa að varpa fram slíkum skoðunum, til þess að menn fari að fjalla um þær, eins og hæstv. ráðh. sagði, á almennum vettvangi sem alvarlegar till., sem ekki var annað skilja en hann ætti við, þegar hann ræddi um, að þetta gæti orðið til leiðbeiningar fyrir aðila vinnumarkaðarins. Hvernig getur það farið saman, að hann ætlast til. að það sé aðeins tekið sem persónuleg skoðun sín, sem hann er að segja, en telur þó rétt, að aðilar vinnumarkaðarins fari að ræða þessa stefnumörkun hans, þessa persónulegu stefnumörkun, enda þótt ekkert sé vitað um það, hvort niðurstaðan verður sú, að hæstv. ríkisstj. í heild telji þetta vera rétta stefnumörkun eða ekki?
Það er rétt hjá hæstv. ráðh., að það hefur verið mikið frjálslyndi í ríkisstj. með skoðanaskipti á opinberum vettvangi. En það var a.m.k. kenning fyrrv. ríkisstj. og starfshættir hennar að ræða sínar persónulegu skoðanir fyrst og fremst innan ríkisstj. og reyna síðan að koma fram sem heild út á við með ákveðna stjórnarstefnu. Þetta held ég, að sé rétta formið í sambandi við starfshætti ráðh. Það dettur engum annað í hug en þeir eigi að hafa sínar persónulegu skoðanir og vinna þeim fylgi, en að halda, að það séu heppileg vinnubrögð og verði til að skapa traust á stjórnarstefnu, að ráðh. séu í orrahríð hver við annan á opinberum vettvangi, það held ég, að sé ekki giftusamlegt. Ég er hissa á því og tel það raunar ákaflega ólíklegt, að jafngætinn maður og hæstv. forsrh. sé þeirrar skoðunar, að þessi vinnubrögð séu heppileg, heldur sé réttara að kanna til þrautar, hvort menn ná ekki samkomulagi innan ríkisstj., og þá eftir atvikum taka því með stjórnskipulegum hætti, ef ríkisstj. getur ekki orðið sammála um úrlausn mála. Og það gerist að sjálfsögðu ekki með nema einum hætti, annaðhvort fari einstakir ráðh. úr ríkisstj. eða ríkisstj. biðji sjálf lausnar, nema því aðeins að menn geri ekkert mark með sínar persónulegu skoðanir og láti það lönd og leið, hvort þær verða undir eða ekki. En ég vil a.m.k. ekki trúa, að hæstv. núv. forsrh. sé þeirrar manngerðar, þá þekki ég hann illa, sem sé algerlega sama um það, hvort hans persónulegu skoðanir sem oddvita í ríkisstj. verði undir eða ekki, og hann geti svo komið fram fyrir þjóðina og barizt af jafnmikilli sannfæringu fyrir allt öðrum skoðunum en hann hefur lýst, að væru sínar. Þá fer nú að höggva nokkuð nærri því stjórnarskrárákvæði, sem hann vék hér að áðan, að menn séu aðeins bundnir af sannfæringu sinni, því að þá er auðvitað ætlazt til þess um leið, að þeir fari eftir sannfæringu sinni. Ég held, að hann komist í dálítið mikinn hnút með málið, ef svo skyldu fara leikar að lokum.
En það, sem vakti sérstaka athygli mína við þessa ræðu hæstv. ráðh. og kemur mér ákaflega á óvart og ég fæ satt að segja ekki skilið með nokkrum hætti, það er, þegar hann fer að halda því fram, að hann með orðum sínum hér um daginn, — sem ég skal játa, að ég tók alvarlega, eins og hann sagði, og reyndi að ræða á málefnalegum grundvelli, — að með þeim orðum hafi hann aðeins átt við framhald á núverandi verðstöðvun til lausnar á efnahagsvandanum. Drottinn minn dýri! Ég skil ekki, að nokkur maður, hvorki í þessari hv. þd. né yfirleitt nokkur borgari í landinu hafi tekið orð ráðh. á þennan hátt, því að þá var þetta auðvitað allt saman marklaust, sem hæstv. ráðh. var að tala um. Hann sagði í sinni ræðu eitthvað á þá leið, að það væri að vísu enn þá verið að kanna þessi vandamál, en hann hefði ákveðnar, persónulegar skoðanir á því, á hvaða grundvelli ætti að leysa vandann. Og málgagn hans hefur hvað eftir annað — og það í feitletruðum leiðara — talað um þetta sem ábendingu um úrlausn efnahagsvandans. Nú hefur hæstv. ráðh. dregið svo hagkvæmlega í land, — kannske vegna þess, að það var alveg ljóst, eins og ég benti á við upphafsumr. málsins, að þær 800 millj., sem hann nefndi í sinni tölu, væru auðvitað gersamlega út í hött, — þá hefur hann dregið svo í land, að hann segir: Ég átti ekki við neitt annað en það að halda áfram núverandi verðstöðvun. En að öðru leyti skildist mér á ræðu hæstv. ráðh. nú, að hann vildi ekkert um efnahagsvandann fjalla í sinni fyrri ræðu. Hver í þessari hv. þd. skildi ræðu hæstv. forsrh, á þennan veg? Ég gerði það ekki, og mér þætti fróðlegt að vita, hvort nokkur hafi skilið hana á þennan veg, m.a. vegna þess, að þá hefði verið algerlega ástæðulaust fyrir hæstv. ráðh. að vera með ýmsar þær bollaleggingar, sem hann var með um breytingar á vísitölu og annað af slíku tagi, vegna þess að þá þurfti hann ekki að fara að ræða þau atriði. Ef hann átti aðeins við að framlengja með niðurgreiðslu, eins og gert hefur verið til þessa, stöðvun þeirra vísitölustiga, sem stöðvuð hafa verið með verðstöðvunarl., sem við erum hér að fjalla um staðfestingu á, þá fæ ég með engu móti það dæmi til að ganga upp, af hverju hæstv. ráðh. var þá um leið að fjalla um þessar hugleiðingar sínar varðandi breytingu á útreikningi vísitölu, sem allar hnigu í þá átt að draga úr hækkun vísitölunnar. Og ég held, að það liggi alveg ljóst fyrir, að vandanum verður ekki skipt með þessum hætti, þá eru allar þessar hugleiðingar hæstv. ráðh. í upphafi þessara umr. hrein markleysa. Það getur vel verið, að það sé út af fyrir sig hægt að taka aðstoðina til atvinnuveganna út úr dæminu, en þó verður það auðvitað ekki gert nema með þeim hætti, að afla annaðhvort sérstaklega fjár til þeirrar aðstoðar, sem ég skal ekki á þessu stigi segja um, hvað er mikil, eða þá að það megi með einhverjum aðgerðum öðrum draga svo úr tilkostnaði útflutningsframleiðslunnar, e.t.v. með breytingu á vísitölu, að þess fjár gerist ekki þörf að afla. Þennan vanda er út af fyrir sig bægt að taka út úr dæminu. En það er alveg ljóst, og það held ég, að hæstv. forsrh. hljóti að vera jafnljóst sjálfum, að ef ekki verða gerðar sérstakar ráðstafanir um næstu áramót í sambandi við verðlagsmálin, þá kemur vísitalan til með að hækka um 4–5 stig, þ.e.a.s. eitthvað nærri þeirri kaupgjaldsvísitölustigatölu, sem haldið er í skefjum með núverandi verðstöðvunarákvörðun. Og á þá að gefa út ný verðstöðvunarlög til þess að mæta þessum vanda? Eða hvað á að gera?
Eins og ég ræddi um í upphafi þessa máls, er það spurning út af fyrir sig, hvort menn eru sammála eða ekki hugleiðingum hæstv. ráðh. um lausn efnahagsvandans. En ef á að taka alvarlega það, sem hæstv. ráðh, sagði núna, að hann hefði ekkert átt við nema stöðvun þessara tilteknu stiga, sem eru í þessu dæmi hér, þá sé ég ekki annað en málið allt sé orðið svo gersamlega ruglað, að þá hefði verið betra, að hæstv. ráðh. hefði aldrei sagt sína persónulegu skoðun, vegna þess að þá er málið gersamlega botnlaust. Og það þarf enginn mér að segja, að hæstv. ráðh, meini þetta í raun og veru. Það er eitthvað, sem veldur því, að hann dregur nú í land frá þeim kenningum, sem hann var með í upphafi þessara umr. og ég taldi áðan, eins og hann réttilega vitnaði til mín um, að væri sjálfsagt að taka til alvarlegrar íhugunar, en þá er ómögulegt að taka það til alvarlegrar íhugunar, vegna þess að það er botnlaust. (Forsrh.: Ég nefndi 800 þús. kr. til að halda áfram þeim niðurgreiðslum, sem nú eiga sér stað). Já, en það er bara ekki dæmið. (Gripið fram í). Þetta er alger misskilningur hjá hæstv. ráðh. Af hverju var hann þá að bollaleggja um lækkun vísitölunnar með sérstökum aðgerðum? Þá er þetta orðið allt eintómt rugl. Ég vildi taka hæstv. ráðh. alvarlega, að hann væri hér að ræða um lausn vandamálsins í heild. Það hefur enga þýðingu og ég trúi því ekki, að hæstv. ríkisstj. láti sér til hugar koma, að það eigi að framlengja verðstöðvun í sambandi við 6 vísitölustig. Hvað á að gera við hin 5 stigin, sem koma um áramótin? Á að láta þau svífa í lausu lofti? Á að setja ný verðstöðvunarlög, og hvað eiga þau lög að innihalda? Þetta er til að rugla málið svo gersamlega, að menn skilja hvorki upp né niður í því. Annaðhvort eru menn að tala um vandann og annaðhvort hefur hæstv. forsrh. einhverja skoðun á vandanum, sem við er að glíma, eða hann hefur ekki á honum skoðun. En að við framleigjum þessi lög, sem hér liggja fyrir, eftir áramót, það hef ég ekki nokkra minnstu trú á, að hæstv, ríkisstj. muni leggja til. Það hljóta að verða ráðstafanir af allt öðrum toga spunnar. Það getur vel verið, að þær muni felast í því að greiða að einhverju leyti niður og skerða vísitöluna að einhverju leyti, eins og hæstv. ráðh. sagði í upphafsræðu sinni. Ég benti á, að það mundi kosta um 2500 millj. kr. Ég hygg, að sú tala sé of lág, ef vandamál útflutningsatvinnuveganna eru íhuguð ofan í kjölinn. Mér hefur verið á það bent og það m.a. af flokksmönnum hæstv. ráðh., sem hafa unnið að athugun þess máls, að það muni vera nær, að heildarvandinn sé 3000 millj. heldur en 2500 millj., þannig að ég nefndi þar sannarlega ekki neina öfgatölu. En ef okkur vantar 3000 millj. kr., tel ég það ekki ómaksins vert af forsrh. að fara að ræða um það sem eitthvert þjóðráð, hvernig eigi að mæta 800 millj. af þeim vanda. Ég trúi þessu ekki. Mér finnst satt að segja, að ekki sé hægt, — og það þykir mér mjög miður, — að taka hæstv. forsrh. alvarlega, ef hann ræðir málið á þessum grundvelli. Og eins og ég sagði áðan, þá hef ég misskilið hann gersamlega og ekki aðeins ég, heldur hans eigið málgagn og allir þeir, sem um þetta mál hafa talað síðan og tjáð sig um það, — að svo miklu leyti sem þeir vilja gera það, — hvað hæstv. forsrh. átti við í fyrri ræðu sinni, því að það hafa allir skilið það svo, að hann hafi verið að orða hugleiðingar um það, sem var góðra gjalda vert, hvernig ætti í stórum dráttum að leysa þann efnahagsvanda, sem við glímum við. En að leysa 800 millj. af vandanum og skilja 2200 millj. eftir einhvers staðar í lausu lofti, það auðvitað er engin lausn, og ég vil bæði vegna hæstv. forsrh. og þjóðarinnar allrar vonast til, að þetta sé alls ekki það, sem hæstv. ráðh. meinar, vegna þess að þá, eins og ég sagði áðan, hefur þessi kenning, sem hann varpar hér fram og vakið hefur jafnmikla athygli og hún hefur gert, aðeins orðið til þess að skapa hreina ringulreið á skoðunum manna um það, hvaða skoðanir hæstv. ríkisstj. eða a.m.k. hæstv. forsrh. hafi á eðli þess vanda, sem við er að glíma. Og þá er í rauninni ekki hægt að ræða þessar hugleiðingar af alvöru.
Þessum vanda, sem við er að glíma, verður ekki deilt í marga hluti. Og það er ekki mörg úrræði, sem eru til þess að mæta honum. Hæstv. forsrh, hefur sagt, að honum yrði ekki mætt með gengislækkun, á meðan núv. hæstv. ríkisstj. situr. Þá vitum við það. Nú veit ég ekki, hvort það merkir, að hún ætli þá að fara. Það er önnur saga, en sleppum því. Það liggur fyrir. Og það liggur enn annað fyrir frá hæstv. forsrh., sem hann sagði hér við umr. um daginn og styður þá skoðun mína, að hann hafi átt við vandann í heild, þegar hann var með hugleiðingu sína þá, vegna þess að hann sagði, að það yrði að ríghalda í, að vísitalan hækkaði ekki upp úr 117 vísitölustigum. Ef hann er hér aðeins að tala um verðstöðvunina núna og ef hann samtímis heldur því fram, að það verði að ríghalda í 117 vísitölustig, þá fæ ég alls ekki séð, hvernig hann ætlar að samrýma sínar eigin kenningar, ef hann ætlar að hörfa til baka nú, draga í land og segja, að hann hafi aldrei í rauninni meint það, sem allir álitu, að hann ætti við. Hér er þó aðeins eitt úrlausnarefni eftir. Ef á að ríghalda vísitölunni í 117 stigum, þá hljóta að koma til stórfelldar niðurgreiðslur á þessum vísitölustigum, sem hljóta þá að bætast inn í þessa verðstöðvun, sem hér er talað um, þannig að ég sé ekki, að hæstv. forsrh. komist með nokkrum hætti undan þessu heildardæmi, hvernig sem hann ætlar að snúa þessu fyrir sér. Og ég held í rauninni, að þjóðin eigi harla mikla kröfu á því að fá að vita, hvað hæstv. ráðh. raunverulega á við, þegar hann er að tala hér í hv. þd. um þessi mál. Það hefði í rauninni verið betra, að hann hefði aldrei byrjað á því, því að eins og dæmið liggur fyrir, þá á að halda vísitölunni í 117 stigum, það á aðeins að nota niðurgreiðslur, sem nægja til þess að halda henni í því horfi, sem hún er nú, en látið liggja á milli hluta, hvað verði um 5 vísitölustig um áramót. Það á ekki að láta hana hækka, en það á þó ekki að skerða hana. Það á ekki að lækka gengið til þess að jafna vanda útflutningsframleiðslunnar. Á þá að stórauka skatta til þess að mæta þessum 2500–3000 millj.?
Ég skal ekki orðlengja um þetta frekar. En mér finnst, að persónuleg skoðun hæstv. forsrh. sé orðin svo þokukennd, að það hefði verið heppilegast, bæði fyrir hann og alla, að hann hefði aldrei látið hana í ljós. Ekki það, að hann stjórnskipulega geti ekki gert það, því dettur mér ekki í hug að halda fram, heldur vegna þess, að honum hefur þó lánazt með þessari síðari ræðu sinni hér að gera þetta mál svo flókið, að það er gersamlega útilokað að botna í því, hvað er í rauninni verið að fjalla um. Það hlýtur að vera eitthvað af persónulegum skoðunum eftir í pokahorninu hjá hæstv. ráðh., því að ég trúi því ekki, að hann viti ekki, hvað vandinn er stór. Og þó að það geti verið gott og blessað að treysta á, að einhverjir spekingar finni einhver lausnarorð, þá vitum við allir, að þær úrlausnir eru ekki margar, sem koma til álita. Og eins og ég sagði við fjárlagaumr., held ég, að það sé ákaflega mikill barnaskapur, ef hæstv. ríkisstj. heldur, að það geti gerzt, þó að það gerist í ævintýrunum, að menn finni einhvers staðar gullkistu um áramótin, sem geri mögulegt að leysa vandann, án þess að það komi við nokkurn mann. Það held ég, að sé ekki raunhæft.
Ég vildi í upphafi taka alvarlega hugleiðingar hæstv. forsrh. um hans persónulegu skoðun á þessum mikla vanda, sem þjóðin óneitanlega stendur andspænis. Við getum látið liggja á milli hluta, eins og hann sagði, hverjum þessi vandi er að kenna og af hverju hann stafar. Ég skal ekki fara út í þá sálma. Við erum vafalaust ekki sammála um það, við hæstv. forsrh., en það finnst mér ekki kjarni málsins, heldur hitt, að til þess að leysa vandann, hver sem hann er, þá verða menn þó að skilja eðli hans og umfram allt verður sá maður, sem ætlar að leiða þjóðina, að skilja eðli þess vanda, sem hann á við að glíma. Hamingjan hjálpi þjóðinni, ef sá maður skilur hann ekki. Hvernig er þá hægt að búast við, að nokkur annar þjóðfélagsborgari skilji hann?
Hæstv. forsrh. hefur með þessari ræðu sinni hér og með því að draga í land með sínar persónulegu skoðanir að 2/3 a.m.k., ef ekki 3/4, tekizt að hylja sig í þeim reykmekki, sem hann reyndi að blása upp hér síðast í ræðu sinni áðan. Þetta mál hefur komizt inn á enn þá óljósari brautir og ég verð að segja ekki sérlega gagnlegar fyrir þá aðila í þjóðfélaginu, hvort sem það eru verkalýðssamtök, vinnuveitendur eða aðrir, sem eiga að reyna að gera sér grein fyrir því og hljóta þá auðvitað að hlusta á það, sem ráðamenn þjóðarinnar láta í ljós sem skoðun sína á eðli vandans.
Það var svo fróðlegt út af fyrir sig að heyra það hjá hæstv. forsrh., að gefnu tilefni frá hv. 2. þm. Reykv., að hans mat væri það, að launahækkanirnar s.l. haust hefðu verið hóflegar og þær væru ekki orsök í þessum vanda. Ég sagði í ræðu minni, að annaðhvort væri allt það, markleysa, sem hæstv. núv. ríkisstj. og talsmenn hennar hafa sagt áður um þá hrollvekju, sem mundi biða, þegar verðstöðvun fyrrv. ríkisstj. lyki, eða þá að kauphækkanirnar s.l. haust hefðu verði allt of miklar og vandinn, sem við var að glíma, hefði verið vanmetinn. Hæstv. ráðh. hefur nú lýst því yfir hér, að kauphækkanirnar hafi ekki verið óhóflegar, það hefði undir eðlilegum kringumstæðum verið hægt að rísa undir þeim geysilegu kauphækkunum ásamt vinnutímastyttingu, sem varð á s.l. hausti. En þá er líka í eitt skipti fyrir öll, ef á að trúa þessari skoðun hæstv. ráðh., kveðinn niður sá áróður hv. núv. stjórnarflokka, að það hafi verið safnað í sarpinn einhverjum stórfelldum vandamálum með fyrri verðstöðvun. Þau gátu ekki verið til staðar, úr því að hægt var að hefja nýja kjarasókn fram á við.
Við vorum satt að segja aldrei það bjartsýnir, að við álitum, að það væri hægt að framkvæma mjög stórfelldar kauphækkanir á s.l. hausti eftir þær miklu kjarabætur, sem höfðu orðið árið áður. Við lögðum á það áherzlu, að reynt yrði að meta vandann efnislega, þegar nýir kjarasamningar yrðu gerðir. En með yfirlýsingu hæstv. forsrh. hefur hann sannarlega gefið fyrrv. ríkisstj. fullkomna syndakvittun fyrir það, sem hún hafði gert, því að hún hafði þá engum vanda safnað, heldur beinlínis lagt grundvöll að því, að hægt væri að bæta kjör fólksins í landinu þegar á s.l. hausti svo geysilega sem hæstv. ráðh. var hér að lýsa með þeim tölum, sem hann las hér upp. Þetta sannar bezt, hvernig allt talið um slæman viðskilnað fyrrv. ríkisstj. hefur verið gersamlega út í hött.
Ég skal ekki fara að ræða það, sem ég er auðvitað ekki sammála hæstv. ráðh. um, hvernig standi á því að þessi vandi hafi komið upp, sem orsakaði verðstöðvunaraðgerðir á miðju ári. Það getum við látið liggja á milli hluta. En vitanlega gerðist ekkert stórkostlegt í þeim efnum varðandi aflarýrnun og annað, sem hefur leitt til þess vanda, sem nú er við að glíma. Það a.m.k. er aflarýrnun, sem er svo lítil móts við það, sem þekktist á erfiðleikaárunum, — þá var okkur sagt, að 50% samdráttur á útflutningsverðmæti væri ekkert til að tala um, en nú er rætt um, að 7% séu alveg óskaplegar ófarir, enda þótt samtímis verði 7% verðhækkun eða meiri á útfluttum vörum. Það virðist ekki vera sama, hver á heldur, og þetta stafar þá kannske af því, að menn telja, að það sé hægt að ætlast til mismunandi af þeim sem með völdin fara í landinu, þegar 50% er talið lítið sem ekkert, en 7%, sem mætt er fyllilega með verðhækkun, eru talin ófarir. Á þessu ári hefur ekki orðið nein tekjurýrnun að neinu leyti til varðandi útflutningsframleiðsluna, því hefur verið mætt með því að ganga á vörubirgðir, en það auðvitað verður ekki gert ár eftir ár. En við skulum láta þetta liggja á milli hluta.
Ég lýk máli mínu með því að harma það, að það sýnist ekki mögulegt að halda áfram að ræða þetta mál á þann hátt, sem gert var í upphafi þessara umr., vegna þess að annað hvort hafa skoðanir hæstv. forsrh. gersamlega breytzt þessa daga yfir helgina eða þá hann lítur vandann allt öðrum augum nú en þá, ef marka má ræðu hans. Það gerir það að verkum, að raunverulega er ekki hægt að ræða alvarlega þær hugleiðingar, sem hann setti fram í sinni fyrri ræðu og ég vildi ræða efnislega, eins og hann vék að í sínu máli, því að þetta, sem hans skoðanir lýsa nú, er ekki lengur nein lausn á vandanum, þannig að hann er jafnóleystur eftir sem áður, þó að farið sé eftir þeim hugmyndum, sem hann befur varpað fram. Ég harma það mjög, að hann skuli þá ekki hafa talað a.m.k. svo ljóst, að menn gerðu sér grein fyrir, hvað hann átti við, og fólk því haldið, að hér væri verið af hálfu forsrh. landsins að ræða alvarlega um lausn vanda, sem við er að glíma. En svo kemur á daginn, að hér er alls ekki verið að ræða um lausn á neinum vanda. Hér er aðeins verið að taka út úr brot af vandanum, sem aldrei verður hægt, heldur hlýtur að verða að taka vandann í heild föstum tökum. Það verður því að stokka spilin upp að nýju, og við getum þá hætt í rauninni að ræða um persónulegar skoðanir forsrh., vegna þess að þær virðast ekki vera til staðar.