12.03.1973
Neðri deild: 63. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2480 í B-deild Alþingistíðinda. (1872)
74. mál, vélstjóranám
Frsm. (Ingvar Gíslason) :
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. menntmn., var n. sammála um að leggja til, að þetta frv. yrði samþ. með þeirri viðbót, að umrædd vélstjóranámskeið megi einnig halda í Ólafsvík, og um þetta er brtt. flutt af n. á þskj. 353. N. leggur sem sagt til, að frv. verði samþ. með þeirri breytingu, sem fram kemur á þskj. 353.