13.03.1973
Sameinað þing: 57. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2485 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)

174. mál, fyrirgreiðsla vegna hitaveituframkvæmda

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að beiðnir Hitaveitu Reykjavíkur um gjaldskrárhækkanir byggjast á því skilyrði, sem Alþjóðabankinn hefur sett Hitaveitunni vegna lántöku Hitaveitunnar hjá honum þegar á árinu 1961, um 7% arðgjöf Hitaveitu Reykjavíkur í rekstri. Það er enn fremur nauðsyn fyrir Hitaveituna sjálfa að hafa þessa arðgjöf, ef hún á að vera þess umkomin að leggja hitaveitu jafnóðum í ný hverfi innan Reykjavíkurborgar, eins og hún hefur gert á undanförnum árum. Og loks er þetta skilyrði fyrir því, að Hitaveitan geti gengið til samninga við nágrannasveitarfélög um að leggja hitaveitu í ný eða eldri hverfi þar.

Þetta er sem sagt hagsmunamál allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og þetta er hagsmunamál alþjóðar, því að í þessu felst mikill gjaldeyrissparnaður. Það er og álitið, að það spari hvert heimili helming hitakostnaðar að fá tengsl við Hitaveitu Reykjavíkur eftir 20% hækkunina. Það sparar hverri meðalfjölskyldu 14 þús. kr. á ári, hverjum einstaklingi innan sveitarfélagsins um 4 þús. kr. á ári. Fyrir 25 þús. manna byggð á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur sparar þetta 100 millj. kr. á ári.

Ég hygg, að ríkisstj, hafi með seinkun á afgreiðslu á gjaldskrármálum Hitaveitu Reykjavíkur frestað því um eitt ár, að þetta hagræði til handa íbúum á höfuðborgarsvæðinu hafi komizt á. Það er dæmi um það, hvernig óraunhæf verðlagshöft eru til þess fallin að valda vöruskorti, gera það að verkum, að fólkið fær ekki þá þjónustu, sem því er nauðsynleg á hverjum tíma.