13.03.1973
Sameinað þing: 57. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2488 í B-deild Alþingistíðinda. (1886)
174. mál, fyrirgreiðsla vegna hitaveituframkvæmda
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins í sambandi við þetta vekja athygli á því, að hæstv. ráðh. svaraði ekki beint, eins og fyrirspyrjandinn sagði í annað skiptið, þegar hann tók til máls, — svaraði ekki beint seinni lið fsp. varðandi sérstaka fyrirgreiðslu fyrir þessi sveitarfélög, ef þau vildu ráðast sjálf í framkvæmdir. En ég vek athygli á því, að 9. mál, sem lagt var hér fram á Alþ. í haust, var till. frá okkur tveimur þm. um lánsfé til hitaveituframkvæmda, þar sem ályktað var, að Alþ. skori á hæstv. ríkisstj. að gera ráðstöfun til að tryggja sveitarfélögum lánsfé til hitaveituframkvæmda, því að það er augljóst mál, að mikill áhugi er á Suðurnesjum og víðar úti á landi um að virkja hið heita vatn, sem við höfum til ráðstöfunar. Það er aðeins spurning um peninga, og þessar framkvæmdir munu allar kosta mörg hundruð millj. Enn hefur þessi till. ekki fengizt afgreidd í fjvn. Hins vegar liggur fyrir jákvæð afstaða frá sveitarstjórnum eða a. m. k. sambandi sveitarstjórna, þar sem lagt er til efnislega, að till. sé samþ. og aukið fjármagn sé tryggt. Það er skýrsla til núna um virkjun á Svartsengi fyrir Suðurnesin, þar sem ótvírætt er mælt með virkjun, en það vantar fjármagn. Og það kom hér fram áðan, að heitt vatn fyrir um 25 þús. manns mun spara um 100 millj. kr. Það er ekki svo lítil hagsbót. Þetta á víðar við en um nágrannabæi Reykjavíkur. Ég vil því undirstrika það og beini því til hæstv. iðnrh., að hann athugi þessi mál í nýju ljósi og leggi því lið, ef hægt er, að tryggja einhverja lágmarksupphæð. Það hefur komið fram, að Alþjóðabankinn gerir kröfu um 7% arðsemi, ef hann lánar hér fé til. Það getur verið, að það sé nokkuð há arðgjöf, ég veit það ekki. En það er brýn nauðsyn að tryggja mikið fjármagn, svo að þessi sparnaður geti átt sér stað.