13.03.1973
Sameinað þing: 57. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2493 í B-deild Alþingistíðinda. (1893)

293. mál, Tækniháskóli Íslands

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það er rétt, sem síðasti ræðumaður sagði, að mikið hefur verið rætt um að koma á fót tækniskóla eða tækniháskóla á Norðurlandi. Ég ætla ekki að bæta neinu við þær umr. Ég vil aðeins minna á, að það eru mörg ár síðan ákvæði var sett í tækniskólalög um það, að stefnt skyldi að stofnun fullkomins tækniskóla á Akureyri, en af því hefur enn ekki orðið. En ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, er sú, að mig langar að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. ráðh., hvort nokkur þeirra manna, sem hann hefur skipað í undirbúningsnefnd tæknimenntunar, sé búsettur á Akureyri. Ég kannaðist ekki við alla mennina, sem nefndir voru, og má vera, að einhver þeirra sé þaðan. En hvað sem því líður, finnst mér vera þörf á því, að í n. sé maður eða menn búsettir á Akureyri. Ef svo er ekki, vil ég spyrjast fyrir um það hjá hæstv. ráðh., hvort hann vill ekki taka til athugunar að bæta í n. einum eða tveimur mönnum frá Akureyri eða Norðurlandi, sem væru þá t. d. tilnefndir af bæjarstjórn Akureyrar eða Fjórðungssambandi Norðlendinga. Mér finnst það skipta allmiklu máli til þess að tryggja það, að norðlenzk sjónarmið komist að í sambandi við undirbúning þessa máls.