16.10.1972
Efri deild: 3. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
3. mál, bygging og rekstur dagvistunarheimila
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Það mál, sem hér er lagt fram, kom fyrir síðasta þing skömmu fyrir þingslit og er nú endurflutt óbreytt. Þegar fyrst var farið að mæla fyrir stofnun og starfi dagvistunarheimila barna hér á landi, voru slíkar stofnanir nokkuð umdeildar. Þær raddir heyrðust, að rekstur slíkra barnaheimila væri til þess fallinn að veikja fjölskyldubönd og slíta uppvaxandi kynslóð með nokkrum hætti úr eðlilegu sambandi við foreldra sína og nánasta umhverfi. Ég veit ekki betur en nú sé svo komið, að þessar raddir séu þagnaðar með öllu. Mér vitanlega draga engir lengur í efa þörfina fyrir dagvistunarstofnanir fyrir börn og sömuleiðis kostina, sem þær hafa að bjóða. Kostir ýmiss konar dagvistunarstofnana barna eru a.m.k. þríþættir.
Í fyrsta lagi hafa þessar stofnanir mikið uppeldisgildi, sérstaklega eins og nú er komið samfélagsháttum í þéttbýli hér á Íslandi. Heimilin, sem nú ala upp börnin, eru alls ekki sambærileg við hin fjölmennu heimili, sem fyrri kynslóðir þekktu. Það er fátítt mjög í þéttbýlinu, að fleiri en tvær kynslóðir séu á heimili, gjarnan aðeins foreldrar og eitt eða tvö börn þeirra. slíkt heimili býður miklu fábreyttari uppeldisskilyrði heldur en hin fjölmennu heimili, sem tíðust voru fyrir nokkrum áratugum, þegar ekki aðeins voru á heimilinu foreldrar og afkvæmi þeirra, heldur einnig þriðja kynslóð, afar og ömmur, og einnig mjög víða óvandabundið eða kannske vandabundið vinnufólk. Það er allra manna mál, sem kynnt hafa sér uppeldisáhrifin á hinum fámennu og jafnvel einangruðu heimilum nútímans, að þar geti svo farið, að áhrifin af umhverfinu verði svo einhæf, að þau tefji fyrir eðlilegum þroska barnanna. Þá er úrræðið, sem næst liggur, að skapa fjölbreyttara og fjölmennara umhverfi á uppeldisstofnun, sem kemur til liðs við heimilin á því aldursskeiði, þegar ekki er enn hafin skólaganga barnanna. Til þess eru ýmist fallin dag vistunarheimili, sem taka börn til gæzlu næstum heila daga eða leikskólar svo kallaðir, þar sem börnin dvelja mun skemmri tíma.
En hér kemur einnig til annað atriði. Það er öryggi þessara ungu barna í borgarumhverfinu, sem þeim er búið, þegar út fyrir veggi heimilisins kemur. Óllum er kunnugt, að mjög skortir á, að heppileg og hættulaus leiksvæði séu til umráða, einkum og sérstaklega fyrir börn, sem eru á óvitaaldri eða rétt að komast af honum. Úrræðið til að tryggja öryggi þeirra að leik er gjarnan að vista þau á dagvistunarheimili.
En enn er eitt atriði og ekki hið veigaminnsta. Það er hin félagslega þýðing dagvistunarheimilanna í þjóðfélagi eins og okkar er orðið, þar sem mjög er algengt, að báðir foreldrar á hinum fámennu heimilum leita atvinnu eða stunda nám utan heimilis. því hefur raunin orðið sú, að á þeim dagvistunarheimilum, sem reist hafa verið og nú starfa, ganga jafnan fyrir börn einstæðra foreldra, sem nauðsynlega þurfa framfærslu heimilisins vegna að koma börnum sínum í gæzlu, meðan vinnutími þeirra sjálfra stendur eða þá börn af heimilum, þar sem foreldrar eru á því reki, að báðir eru í framhaldsnámi, bæði faðir og móðir. Og það er viðurkennt, að ákvæði um jafnan rétt kvenna og karla til atvinnu og til menntunar eru síður en svo raunhæf, nema séð sé fyrir aðstöðu fyrir börn þeirra mæðra, sem þurfa að stunda störf utan heimilis eða leggja kapp á að stunda nám til þess að búa sig undir störf, nema þessum mæðrum sé gert fært að koma ungum börnum sínum í umönnun á öruggum og hentugum stöðum meginhluta dagsins.
Þörfin á fleiri dagvistunarheimilum en nú eru fyrir hendi er óumdeild. Kannanir munu vera af skornum skammti, en þó veit ég til, að þær hafa farið fram í Reykjavík og í Kópavogi og á báðum stöðum leitt í ljós mjög mikla þörf fyrir fjölgun dagvistunarheimila. í málefnasamningi ríkisstj. setti hún sér það mark m.a., að sett verði löggjöf um hlutdeild ríkisins í byggingu og rekstri barnaheimila, elliheimila og annarra hliðstæðra stofnana og séð fyrir fullnægjandi menntunaraðstöðu starfsliðs þeirra. Elliheimili heyra öðru rn. til, þótt rætt sé um þau í þessari sömu mgr. En hvað barnaheimilin varðar, er leitazt við að uppfylla þetta ákvæði málefnasamnings ríkisstj. með flutningi þess frv.. sem hér liggur fyrir. Þetta frv. er verk n., sem skipuð var fyrir tæpu ári og í áttu sæti Stefán Ólafur Jónsson fulltrúi, formaður, Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi, Gyða Sigvaldadóttir forstöðukona, Svava Jakobsdóttir alþingismaður og Þóra Þorleifsdóttir. Þessi n. skilaði frv., sem nú er lagt fyrir Alþ. í annað sinn. Meginefnishættir þess eru, að ríkinu sé gert að leggja fram fé bæði til stofnunar dagvistunarheimila og til rekstrar þeirra. Þetta á ekki aðeins við um dagvistunarheimili, sem rekin eru á vegum opinberra aðila, sem sé sveitarfélaga, heldur einnig áhugafélaga, húsfélaga fjölbýlishúsa og starfsmannafélaga. Nefndinni þótti rétt að gera þegar í stað ráð fyrir þeim möguleika, að aðilar eins og húsfélög og starfsmannafélög gætu notið styrks til að koma upp dagvistunarheimilum og reka þau, ef þeim byði svo við að horfa.
Í 4. gr. frv. er tekið fram, hvaða dagvistunarheimili gert er ráð fyrir, að njóti fjárframlaga samkv. þessum l. Þar er um að ræða dagheimili fyrir börn frá þriggja mánaða aldri til skólaskyldualdurs, þar sem börnin geta dvalið a.m.k. 5 klukkustundir á degi hverjum, í öðru lagi skóladagheimili fyrir börn á skólaskyldualdri og í þriðja lagi leikskóla fyrir börn á aldrinum frá tveggja ára til skólaskyldu, þar sem börnin geta dvalið a.m.k. 3 klukkutíma á dag.
Í 5. gr. er ákvæði um það, að dagvistunarheimili skuli starfa a.m.k. 4 mánuði samfellt á ári hverju til þess að geta orðið aðnjótandi ríkisframlags. Í 6. og 7. gr. eru síðan ákvæði um, hverju ríkisframlög til dagvistunarheimilanna, sem um er að ræða, skuli nema. Í 6. gr. er gert ráð fyrir, að framlag til stofnkostnaðar dagheimila og skóladagheimila skuli vera hið sama og framlag ríkisins til annarra skólastofnana, sem sé 50% áætlaðs stofnkostnaðar. Hins vegar er gert ráð fyrir, að framlag til leikskóla sé hálfu minni hluti stofnkostnaðar, eða 25%. Af rekstrarkostnaði er gert ráð fyrir í 8. gr., að af ríkisfé séu greidd til dagheimila og skóladagheimila allt að 30%, en til leikskóla þriðjungi minna, allt að 20%. Þessi rekstrarframlög eiga að greiðast að loknu ársuppgjöri og skal þar miðað við meðalrekstrarkostnað samsvarandi dagvistunarheimila um landið allt. Í 9. gr. er kveðið svo á, að þetta ríkisframlag, bæði til stofn- og rekstrarkostnaðar dagvistunarheimila skuli bundið því skilyrði, að aðstandendum barnanna sé ekki gert að greiða hærri hluta af kostnaði en 30% í dagheimilum og skóladagheimilum og í leikskólum 50% af rekstrarkostnaði.
Síðan eru í IV. kafla frv. ákvæði um það, hvernig fara skuli með umsóknir, sem berast um framlög úr ríkissjóði til stofn- og rekstrarkostnaðar dagvistunarheimila. Þar er tekið fram, að með þau mál skuli aðilar snúa sér til menntmrn., sem athugar umsóknir og kveður á um gildi þeirra, og í 15. gr. er tekið fram, að eigi sé heimilt að hefja framkvæmdir við slíkar stofnanir fyrr en fé hefur verið veitt til þeirra í fjárl. og fyrir liggur skriflegt samþykki menntmrn. Til að fjalla um þessi mál gerir 16. gr. ráð fyrir því, að rn. fái í þjónustu sína starfsmann, sem til þess er sérstaklega hæfur að fjalla um málefni dagvistunarstofnana. Loks er í V. kafla ákvæði um, að forstöðumenn dagvistunarheimila og starfslið skuli hafa hlotið fóstrunarmenntun, nema eigi sé unnt að fullnægja því skilyrði, þá má veita frá því undanþágu, en þessi skal vera aðalreglan.
Ég vil vænta þess, að þetta mál geti orðið að lögum á þessu þingi, og legg til, herra forseti, að því sé eftir þessa umr. vísað til 2. umr. og menntmn.