13.03.1973
Sameinað þing: 57. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2498 í B-deild Alþingistíðinda. (1902)
295. mál, afhending skuttogara fyrir Útgerðarfélag Akureyringa
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Út af ummælum hv. 5. þm. Norðurl. e. í sambandi við breytingu á samningsgerð í sambandi við þessa togara, vil ég taka fram, að það var ekki hlutverk núv. fjmrh. að standa að samningum í sambandi við smíði á þessum togurum úti á Spáni. Mér hafði ekki heyrzt, að þeim aðilum, sem var fengið það verk í hendur, væri vantreyst til þeirra samninga. Það var í framhaldi af því, sem vissum aðilum var fengið það verkefni að semja við Spánsku skipasmíðastöðina um að smíða þessa tvo togara einnig, þegar talið var hyggilegt að færa þá frá Akureyri af þeim ástæðum, sem ég áðan greindi, m. a. vegna þess, að þessi skipasmíðastöð fékkst til að kaupa þau tæki, sem búið var að festa fé í, á um 200 millj. kr. vegna smíði þessara togara. Mér var ekki kunnugt um það, þegar þeir samningar voru gerðir á s. l. sumri, að fjárhagur skipasmíðastöðvarinnar á Spáni væri hæpinn, eins og nú hefur komið í ljós. Hins vegar var brugðið hart við af hálfu rn., þ. e. fjmrn. og sjútvrn., að kynna sér þessi mál, og verður ekki gengið frá þeim við þessa skipasmíðastöð, nema fyrir liggi öruggar tryggingar fyrir því, að skipin verði smíðuð og afhent á því verði, sem um var samið.