14.03.1973
Neðri deild: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2549 í B-deild Alþingistíðinda. (1949)

23. mál, framkvæmd eignarnáms

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ummæli síðasta hv. ræðumanns gefa mér ekki mikið tilefni til að flytja hér langt mál aftur. Hann lauk ræðu sinni með því að segja, að þetta frv. væri til mikilla bóta frá því, sem nú er. Ég hef alls ekki mótmælt því, að það geti sem slíkt verið til bóta. Þetta frv. hefur ekki verið gagnrýnt af mér í heild sinni, og ég tel vissulega, að þörf sé á að setja ný lög um framkvæmd eignarnáms, því að núgildandi lög eru orðin gömul, þannig að frv. sjálft er til bóta, ef það verður að lögum. Enda er það svo, að ég hef skrifað undir nál. um það, að þetta frv. nái fram að ganga, en áskildi mér rétt til að gera einstakar brtt., hvað ég nú hef gert. Það er ekki sanngjarnt að halda því fram, að ég hafi verið að gagnrýna frv. í heild sinni, enda þótt ég geri athugasemdir við tvær einstakar gr., sem að mínu áliti brjóta fullkomlega gegn meginanda frv. í heild sinni.

Út af hinum einstöku gr., sem minnzt er hér á eða til umr. eru, þ. e. a. s. 14. gr. og 12. gr., gat hv. síðasti þm. þess, að það, sem í 14. gr. er, væri ekki í núgildandi lögum. Það getur vel verið og er sennilega rétt, að það er ekki nákvæmlega um það fjallað í núgildandi lögum, hvernig með þetta skuli fara, sem hér er rætt um. En það breytir ekki því og fær mig ekki til að samþykkja einhverja gr., sem brýtur í bága við skoðanir mínar, enda þótt ekkert sé til um það áður í lögum. Það eru engin rök í málinu. Nú er verið að reyna að ráða bót á einhverri hugsanlegri eyðu, sem í lögunum hefur verið, og þá er sett þarna inn ákvæði, en þetta ákvæði er allsendis ófullnægjandi og stangast á við grundvallarhugsun málsins. Ég er þeirrar skoðunar og held því fram, að einmitt 13. gr. sé fullnægjandi varðandi meðferð og umráð á eignarnumdum hlut á fyrsta stigi málsins. Þ. e. a. s. að það megi taka umráð eignarnumins verðmætis af eignarnámsþola, þegar matið liggur fyrir. Það stendur tvímælalaust og ótvírætt í 13. gr., en í 14. gr. er síðan gefin heimild til undantekningar, eins og hv. frsm. gat um, en sú undantekning er óaðgengileg í mínum augum, vegna þess að þar er gefinn heimild eða undantekning, — hvernig sem við orðum það, — til þess að taka umráð hins eignarnumda hlutar, áður en matinu er lokið, áður en það liggur fyrir, hver matsupphæðin verður, jafnvel áður en nokkuð liggur fyrir um það, hvort eignarnámið er heimilt samkv. lögum eða ekki. Ég tel það vera útilokað og forkastanlegt að ætlast til þess, að þeir, sem fyrir eignarnámi verða og þurfa að hlíta því, þurfi jafnframt að láta af hendi umráð eigna sinna, áður en nokkuð liggur fyrir, hver úrslit málsins verða. Það er það, sem ég geri athugasemdir við. Ég held því líka fram, að sú trygging sé ófullnægjandi, sem setja á, ef eignarnámsþoli krefst, — það er nú ekki gengið lengra en það, hann verður að krefjast þess, að sett sé trygging, til þess að hún sé lögð fram, — engu að síður held ég, að tryggingin sé ekki fullnægjandi og komi ekki í veg fyrir það tillitsleysi, sem einstaklingnum, eignarnámsþola, er sýnt með þessu ákvæði. Ég fer ekki af þeirri skoðun minni.

Varðandi 12. gr., þá virðist gæta einhvers misskilnings hjá hv. þm. um, að ég hafi viljað skilja þessa gr. svo, að það mætti bæta t. d. húseignir með landskika eða öfugt. Það fólst alls ekki í mínum orðum, og ég hef ekki skilið þessa gr. svo. Ég skil gr. svo, eins og hún er reyndar orðuð, að það megi bæta fasteign með annarri fasteign, og ég hef gert ráð fyrir því, að t. d. ef tekinn er jarðarskiki, þá sé meiningin að bæta það eignarnámsþola með öðrum jarðarskika, a. m. k. hafa verið gerðar tilraunir til að skýra þetta ákvæði svo. Hv. þm. taldi það liggja í augum uppi og ætti að skilja ákvæðið svo. En ég er þá ekki betur gefinn en það, að ég hef ekki skilið annað en að fasteign geti náð yfir ýmislegt annað en jarðir, og ég held, að hv. þm., sem er hámenntaður lögfræðingur, eigi að vera kunnugt um, að fasteign er ýmislegt annað en jarðir. Ef við tökum ákvæðið eins og það liggur fyrir og lítur út, þá er talað um fasteignir: „Þegar fasteign eða hluti fasteignar er tekinn eignarnámi, getur matsnefnd ákveðið, að eignarnámsþola verði bætt tjón hans með einhverju eða öllu leyti með fasteign eða hluta fasteignar.“ Ég met mikils skilning hv. ræðumanns á þessu ákvæði, en engu að síður held ég, að þegar kemur að því, að dómstólar þurfi að fara að dæma eftir þessu ákvæði og þarf að fara að framkvæma það í reynd, að þá líti menn á ákvæðið eins og það stendur í lögunum. Ef átt er eingöngu við landskika, er ekkert einfaldara en að taka það fram í lögunum. Lög eiga yfirleitt að vera þannig gerð og þannig orðuð eins og á að skilja þau, en ekki á neinn annan hátt.