15.03.1973
Sameinað þing: 59. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2554 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)
126. mál, endurskoðun fræðslulaga
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð um þetta mál almennt. Ég trúi, að mér fyrirgefist það, vegna þess að ég á sæti í Ed. og þar af leiðandi hef ég ekki komið neitt inn í þær grunnskólaumr., sem hér hafa orðið miklar og að mörgu leyti merkar í hv. Nd.
Ég vil lýsa því alveg sérstaklega yfir, að ég fagna því, að grunnskólafrv. er komið fram í þeirri mynd, sem það er. Ég er í meginatriðum hlynntur því aðalmarkmiði, sem grunnskólafrv. felur í sér, og tel, að með því sé stefnt í rétta átt í langflestum atriðum, þótt þar kunni að mega um bæta um sumt. Ég held nefnilega, að allar umr. um grunnskólafrv, á undanförnum vikum hafi leitt í ljós, að þarna er orðið nokkuð skammt öfganna á milli, því að ef það er svo, að fylgjendur grunnskólafrv., m. a. sú n., sem það samdi, séu farnir að líta á það, eins og ég heyrði sagt nú á dögunum, sem eins konar biblíu sína, sem ekki megi neitt við hagga, þá er áreiðanlegt, að helztu andmælendur þessa frv. hafa líka lent býsna langt í sinni gagnrýni, hafa m. a. lent út í svo miklar öfgar að mínu viti, að maður bíður bara eftir því, að sumir þeirra segi, að það sé bezt að leggja alla skólaskyldu hreinlega niður. Nú á þetta ekki við umr. hér á Alþ., að því er ég hef bezt fengið séð, en það á a. m. k. við um töluvert af þeim umr., sem fram hafa farið utan veggja þingsins.
Það er mikið talað um námsleiða nemendanna, og mér þykir svolítið leitt, hvað margir skólamenn taka drjúgan þátt í þessu námsleiðatali, ýkja það jafnvel og margfalda á þann veg, að mig furðar á því. Þó að ég sé með því, að sjálfsgagnrýni geti verið nokkuð góð, má hún ekki ganga út í öfgar, þannig að kennarastéttin má örlítið vara sig á því að taka of djúpt í árinni. Hér á hún of stóran hlut að máli til þess, að mér finnist það réttmætt, að kennarar geri svo gífurlega mikið úr þessu, þ. e. a. s. hvað skólarnir og þeir sjálfir um leið séu drepleiðinlegir fyrir nemendurna og hvað í raun og veru allt annað sé betra fyrir þessa sömu nemendur heldur en í raun og veru að vera í skólunum. Það liggur nefnilega við, að svo langt sé gengið í tali og jafnvel skrifum sumra þessara sjálfspyntingaraðila. Það er alveg rétt, að námsleiði er til og ekki skal ég úr honum draga. En ég vil líka nefna það, að líka er til starfsleiði, og hversu algengur er ekki starfsleiði hins fullorðna fólks? Verður ekki þetta fólk þó að þrauka við sitt starf ævina út og öðlast af því óneitanlega nokkurn þroska að berjast við ýmsa erfiðleika í sinu starfi? Ég held nefnilega, að nemendurnir hafi að sumu leyti gott af því að berjast við vissa fyrirhöfn í sinu starfi. Hitt er svo annað mál, að skólinn á auðvitað að reyna að koma til móts við þessa nemendur, sérstaklega þá seinfærari, á allan þann hátt, sem mögulegt er, og það tel ég, að grunnskólafrv. geri einmitt mjög greinilega. Ef það markmið þess, sem mér sýnist vera aðalmarkmiðið, verður að veruleika, er ég ekki hræddur við þetta eina ár, sem þarna á við að bætast.
Það er talað um, að skólamenn viti þetta vel, þeir viti ósköp vel, hvað þeir nemendur, sem eru komnir upp fyrir skylduna, geri það með miklu glaðara geði að læra heldur en hinir, sem enn þá eru í skyldunni. Ég hef að vísu lítil kynni af þessu, aðeins einn bekk til viðbótar þessari skyldu, en ég fullyrði, að á þessu hefur verið sáralítill munur í mínum skóla. Aðrir kunna kannske að segja aðra sögu í þessu efni. En ég held, að þarna sé líka nokkuð málum blandið, þegar gengið er eins langt af sumum í þessu efni og raun ber vitni. Ég held, að þessum nemendum veiti einmitt ekki af því að fá þetta eina ár til viðbótar, sem þarna er ráð fyrir gert. Þegar það er framkvæmt á þann máta, sem ráð er fyrir gert í grunnskólafrv., að strax í 7. eða 8. bekk sé farið að velja töluvert úr um námsgreinar og kennsluval, þá held ég, að það hljóti að vera hægt að finna leiðir, sem duga til þess, að hver nemandi finni þar eitthvað við sitt hæfi, þ. e. a. s. þeir, sem eru ekki svo vangefnir, að þeir eigi í raun og veru ekki heima í venjulegum skólum.
Ég hef haft af þessu töluverða reynslu í sambandi við þetta eina ár. Ég hef barizt fyrir því í mínum skóla að fá þetta ár viðurkennt, og það hefur gengið misjafnlega að fá það frá ári til árs. Ég hef venjulega spurt nemendur mína að því, áður en ég hef nokkuð farið að minnast á það við foreldra þeirra eða aðra, hvort þeir mundu vilja skuldbinda sig til þess að vera eitt ár í viðbót, til þess að fá þessa kennslu, og af þessum nemendum, sem ég tel lauslega að séu milli 70 og 80, hefur einn verið, sem hefur ekki viljað skuldbinda sig til þessa. Nú segja einhverjir, að þarna sé einmitt frelsið í sinni fegurstu mynd. En það er alls ekki svo, vegna þess að nemendunum er vel ljós sú kvöð, sem þeir eru að taka á sig með þessu, og þeir vita vel í öllum sínum námsleiða annars bekkjarins, öllum þessum námsleiða, sem þeir verða að þrauka í gegnum, eins og fólk segir, — þeir vita þá vel, hverju þeir eiga von á einmitt hjá sömu kennurunum næsta vetur, sömu drepleiðinlegu kennurunum sem þeir hafa haft að undanförnu og þeir verða að þola aftur veturinn eftir. Ég kannast þess vegna ekki af eigin reynd við raddir þessara skólamanna. Þær eru ekki í takt við það, sem ég veit bezt sjálfur í þessum efnum.
Ég held, að við megum mjög vara okkur á því að láta þetta atriði eitt skyggja á hið raunverulega markmið grunnskólafrv., það markmið, að skólinn lagi sig að nemandanum, en nemandinn lagi sig ekki skilyrðislaust að skólanum, eins og oft hefur viljað við brenna. Þetta var greinilega undirstrikað, bæði hér á Alþingi og þó sérstaklega í sjónvarpsþætti um daginn. Ef að þessu verður stefnt í alvöru, að skólinn lagi sig að nemendunum, að þörfum hvers nemanda og alveg sérstaklega þörfum þeirra, sem hafa á einhvern hátt önnur áhugasvið en beint hið bóklega nám, þeirra, sem eiga í einhverjum erfiðleikum með bóklega námið, þá held ég, að það sé fyllilega rétt, að þetta frv. nái fram að ganga og þessir nemendur endi ekki á þann hátt, sem þeir enda nú, í einhverri vitleysu varðandi unglingastigið, sem gefur ekki í raun og veru nein réttindi, heldur endi þeir með sem allra jafnasta aðstöðu, eins og ráð er fyrir gert í frv. Annars er ekki ástæða til að vera að tala um þetta nú, og ég ætla ekki að fara að vekja neinar umr. um þetta, það er sjálfsagt ekki rétt á þessu stigi.
Um þessa einstöku till. vil ég aðeins það segja, að sjálfsagt er rétt að taka ýmis atriði hennar til athugunar. En ég tek ýmsu af því, sem hún hefur inni að halda, með töluverðri varúð, svo að ekki sé meira sagt. Ég held, að hún sé svolítið í ætt við þær öfgar, sem þarna hafa fram komið og ég gat um áðan. Ég hef reynt í mínu starfi að laga kennsluna að nemendum, eftir því sem ég hef getað, með takmarkaðri getu að vísu og takmörkuðum möguleika til þess að gera það. En ef við gerum þetta, þurfum við ekki að vera að tala um þennan óskaplega námsleiða. Þá skulum við bara hreinlega tala um leti, því að hún er líka til. Það er rétt, að menn gái að því, það eru alveg eins til löt börn eins og latt fullorðið fólk. Það er mjög mikið um það, að börn eiga til að svíkjast um í sínu námi, nákvæmlega eins og það er mikið um það, að fullorðið svíkist um í sínu starfi. Þetta er þess vegna ekkert annað en spegilmynd í raun og veru af sjálfu lífinu og ástæðulaust að vera að láta það út af fyrir sig villa sig af réttri braut í þessu efni.