30.10.1972
Neðri deild: 7. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í B-deild Alþingistíðinda. (196)
Umræður utan dagskrár
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka hæstv. forsrh. fyrir það, hve röggsamlega hann tók undir orð mín hér áðan. Og ég get tekið heils hugar undir allt það, sem hann sagði í fyrri ræðu sinni hér áðan, sérstaklega þá uppástungu hans, að togaraeigendur kynni sér, hvað í húfi er hér á Íslandsmiðum að vetrarlagi, með því að skreppa svo sem eina ferð á togara hingað á mið okkar. Ég þekki suma þessa menn persónulega og veit, að þeir voru fyrrum togaramenn sjálfir. En þeir, sem fara fram með mestum ofsa af þeirra hálfu hafa hins vegar, mér vitanlega, aldrei á sjó komið. Það gildir t.d. um hinn margfræga Mr. Austin Laing. Ég held, að hann mætti gjarnan skreppa sem svaraði svo sem einni veiðiferð út úr hlýjunni á skrifstofu sinni hingað norður á íslandsmíð að kynna sér, hvað það er að stunda hér veiðar að vetrarlagi.