20.03.1973
Sameinað þing: 60. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2598 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)

302. mál, inngönguréttindi kennara í háskólanum

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Mig langar í sambandi við þessa fsp. að beina annarri einfaldri en mikilvægri fsp. til hæstv. menntmrh. Svo sem kunnugt er, voru fyrir tveim árum sett lög um Kennaraháskóla Íslands, og starfar hann nú á öðru ári, en nám í Kennaraháskólanum er ráðgert í lögum að standi í þrjú ár. Í lögunum er ákvæði um það, að lögin skyldi endurskoða innan tveggja ára. Fsp. mín er um það, hvort sú endurskoðun hafi verið hafin og hvort hægt sé að gefa nokkra vísbendingu um, að hún muni leiða til einhverra breytinga á skipulagi náms í Kennaraháskólanum. Ástæða þessarar fsp. er sú, að mér er kunnugt um það, að meðal nemenda Kennaraháskóla Íslands þykir ríkja nokkur óvissa, sem valdið hefur óánægju, varðandi það, að þau réttindi, sem prófið úr Kennaraháskóla Íslands eigi að veita, séu ekki nógu skýrt ákveðin, og sérstaklega skorti á það, að afstaða brautskráðra kandídata úr Kennaraháskóla Íslands til kandídata úr Háskóla Íslands, jafnvel í svipuðum greinum, sé nógu skýrt mótuð, og nemendurnir vita ekki gerla, að hverju þeir ganga í þeim efnum.

Nám til BA-prófs í heimspekideild Háskóla Íslands tekur 3 ár, eins og ákveðið hefur verið um nám í Kennaraháskóla Íslands. Hins vegar hljóta nemendur í Háskóla Íslands, heimspekideildinni, ákveðinn akademískan titil að loknu sínu þriggja ára námi. Að því er mér skilst, hefur enn enginn ákvörðun verið tekin um það, hvort nemendur úr Kennaraháskólanum hljóti akademískan titil, og ekki heldur, hvernig staða þeirra verður metin í hlutfalli við nám í svipuðum eða skyldum greinum í Háskóla Íslands. Þetta var eitt af þeim atriðum, sem taka átti til athugunar í endurskoðunarnefndinni, og ég óska upplýsinga um, hvort eitthvað hafi verið gert í málinu.