20.03.1973
Sameinað þing: 61. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2612 í B-deild Alþingistíðinda. (2005)

8. mál, kosningar til Alþingis

Auður Auðuns:

Herra forseti. Ég skildi orð hv. frsm. allshn. svo, að hann hefði talið felast í ræðu minni einhverjar ásakanir í garð allshn. Ég vil taka fram, að það hefur ekki verið viljandi af minni hálfu, ef mátt hefur leggja þann skilning í orð mín, síður en svo. Ég vil svo að endingu bara segja þetta: Hverju spillir það að samþykkja þessa litlu brtt? Það verður þá að metast af rn. og þeim, sem að undirbúningi standa, hvort það verði hægt, sem ég held, að ætti ekki að vera útilokað, að leggja fram till. til breytinga að því er varðar kosningarnar erlendis, en það bíður þá næsta þings eða ég veit ekki hvað lengi, eftir því sem hv. þm, talaði, að leggja fram till, um breytingar á ýmsum öðrum atriðum, sem þegar hefur verið drepið á í umr. um þessa þáltill.