21.03.1973
Efri deild: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2631 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)
204. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Flm. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Á þskj. 388 hef ég leyft mér að leggja fram frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins, og flyt ég það ásamt hv. þm. Tómasi Árnasyni. Vil ég í örfáum orðum gera grein fyrir þeim breytingum, sem þarna er gert ráð fyrir.
Að undangengnum samningum við verkalýðsfélögin var með l. nr. 97 frá 10. maí 1965 gerð breyting á l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins. Sú breyting, sem ég ætla hér að gera að umræðuefni, felst í 1, gr. þeirra laga. Þar er, með leyfi forseta — svo ákveðið:
„Ríkisstj. getur látið byggja hagkvæmar og ódýrar íbúðir í fjölbýlishúsum í samvinnu við hlutaðeigandi sveitarfélög. Íbúðir þessar skulu vera vandaðar, hagkvæmar og staðlaðar, en án óþarfa íburðar. Ráðh. setur með reglugerð nánari ákvæði um íbúðabyggingar þessar svo og um sölu á þeim o. fl.“
Í framhaldi af setningu þessara laga var gefin út reglugerð um íbúðabyggingar ríkisins og Reykjavíkurborgar, og er sú reglugerð frá 28. apríl 1967. Þannig hófust hinar svokölluðu Breiðholtsframkvæmdir. Leitað mun hafa verið til fleiri sveitarfélaga um samvinnu við byggingu slíkra ódýrra og hagkvæmra íbúða. Tilraun var gerð á Sauðárkróki til þess að koma slíkum byggingum af stað, en tókst ekki, og munu menn sammála um, að því hafi fyrst og fremst um ráðið, að lögð var rík áherzla á, að áfangar yrðu stórir, þannig að umræddri hagkvæmni yrði náð.
Það næsta, sem gerist í lagasmíð þessari, er það, að með l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins, nr. 30 frá 12. maí 1970, eru sameinaðar hinar ýmsu breytingar á l. um þá stofnun í einn lagabálk, og segir þar í 33, gr., með leyfi forseta: „Lög þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi lög nr. 19 1965, um Húsnæðismálastofnun ríkisins, l. nr. 97 1965“ o. s. frv., þ, e. a. s fyrrnefnd lög, þar sem Húsnæðismálastofnuninni eða ríkisstj. réttara sagt er almennt heimilað að láta byggja hinar ódýru íbúðir í fjölbýlishúsum í samvinnu við hlutaðeigandi sveitarfélög, Hins vegar er í þessum nýju l. ákvæði til bráðabirgða, 3. tölul. svo hljóðandi, með leyfi forseta:
„Haldast skulu óbreytt ákvæði laga og reglugerðar um framkvæmd byggingaáætlunar í Reykjavík, en heimilt er ríkisstj., Reykjavíkurborg og fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík að semja svo um, að þær 735 íbúðir í byggingaáætlun þessari, sem eigi er hafin bygging á, eða hluti þeirra verði byggður sem verkamannabústaðir samkv. VI. kafla laga þessara.“
M. ö. o. um leið og heimildin er numin úr gildi, er þó látin standa sú framkvæmd hennar, sem þegar var hafin, þ. e. ákveðin með reglugerðinni, sem ég vísaði í áðan um íbúðabyggingar ríkisins og Reykjavíkurborgar. Þessi heimild nær því, að því er ég fæ bezt séð, eingöngu til bygginga ríkisins og Reykjavíkurborgar, en heimild til þess að byggja slíkar íbúðir með sveitarfélögum úti um land er felld úr gildi.
Í umr., sem orðið hafa upp á síðkastið um dreifbýlið og erfiðleika þess, hefur hvað eftir annað komið greinilega fram hjá fjölmörgum, sem til máls hafa tekið um það mál, bæði hv. þm, og fleirum, að mjög hefur hallað á dreifbýlið og ekki sízt í sambandi við íbúðabyggingar. Mun vera sannleikur, að á því sviði kreppir skórinn einna verst að.
Breiðholtsframkvæmdirnar hafa orðið æðimiklar hér í Reykjavík, og þykir mér rétt að veita nokkrar upplýsingar um þær. Árið 1967 var byrjað á 1. áfanga og þá byggðar 312 íbúðir. Í 2. áfanga, sem einnig var hafinn 1967, voru byggð 23 einbýlishús. í 3. áfanga, sem hefst 1969, eru byggðar 180 íbúðir. Í 4. áfanga, sem hefst 1971, eru byggðar 192 íbúðir, Í 5. áfanga, sem hefst 1972, eru byggðar 200 íbúðir. Þá er íbúðafjöldinn orðinn 907, en ráðgerðar eru þá a. m. k. 314 íbúðir til viðbótar og að þeim byggingum verði lokið í ársbyrjun 1975. Þær íbúðir, sem þannig hafa verið byggðar, eru með lánskjörum, sem eru ólíkt hagkvæmari en þau kjör, sem almennt gilda, eins og greinilegast kemur fram í reglugerð um íbúðabyggingar ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem ég hef fyrr vísað til. Þar segir í 17. gr., með leyfi forseta:
„Greiðsluskilmálar á andvirði þeirra íbúða, sem seldar verða samkv. 15. og 16. gr. reglugerðar þessarar, skulu vera eins og hér segir: a. Kaupandi greiðir 20% af andvirði íbúðarinnar á 4 árum, þannig að 5% greiðast 12 mánuðum áður en íbúðin er fullgerð og afhent kaupanda, síðan greiðir kaupandi 5% af andvirðinu á ári næstu 3 árin á sama gjalddaga og fyrstu afborgunina. Setja skal tryggingu fyrir þessum þremur ársgjöldum, sem veðdeild Landsbanka Íslands metur gilda. b. Afgangur andvirðis íbúðarinnar, eða 80% af söluverðinu, greiðist af láni frá Húsnæðismálastofnun ríkisins, sem vera skal til 33 ára, afborgunarlaust fyrstu 3 árin, en endurgreiðist síðan á 30 árum. Að öðru leyti skulu kjör á þessum lánum vera þau sömu og á lánum frá Húsnæðismálastofnun ríkisins á hverjum tíma:
Ljóst mun öllum hv. alþm. vera, að hér er um töluvert hagkvæmari lánskjör að ræða en við almennar íbúðabyggingar, sömuleiðis byggingar svonefndra verkamannabústaða. Í fyrsta lagi eru lánin ákveðin sem 80% af söluverði íbúðarinnar, en í öðrum tilfellum eru lánin nú ráðgerð 800 þús. kr. á hverja íbúð. Lán þessi eru auk þess til 33 ára, afborgunarlaus fyrstu 3 árin, en önnur lán Húsnæðismálastofnunarinnar eru aðeins til 25 ára. Auk þess er hér í raun og veru lánaður helmingurinn af eftirstöðvunum, þ. e. a. s. 10%, til tveggja ára, eins og fram kom í a-lið þeirrar greinar, sem ég las áðan.
Það er alls ekki verið að amast út í þessar byggingar hér á vegum ríkisins og Reykjavíkurborgar. Þær eru að sjálfsögðu góðra gjalda verðar. En það er staðreynd að þessar byggingar hafa mjög raskað hlutfallinu milli dreifbýlis og þéttbýlis í íbúðabyggingum. Kemur þetta greinilega fram af ýmiss konar samanburði, sem fyrir liggur, m. a. samanburði, sem birtist í dagblaðinu Tímanum laugardaginn 25. nóv. 1972, sem ég vil leyfa mér að vitna til, með leyfi forseta. Þar er gerður samanburður á lánum Húsnæðismálastofnunarinnar í hinum ýmsu kjördæmum, og kemur í ljós, að lán í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi nema að meðaltali 5065 kr. á hvern íbúa, en aðrir landshlutar hljóta aðeins 2840 kr. á hvern íbúa, þ. e. a. s. um það bil 40% af íbúum landsins hljóta aðeins 28% af heildarlánum Húsnæðismálastofnunarinnar á því ári, 1971.
Ég vil einnig leyfa mér að vísa til þess, sem kom fram sem svar við fsp. frá mér í Sþ. nú alveg nýlega um framkvæmd þáltill. minnar o. fl. frá síðasta þingi um byggingu leiguíbúða. Það kom fram í svari hæstv. félmrh., að allir, sem svöruðu, hvöttu mjög til bygginga slíkra leiguíbúða á vegum sveitarfélaga og fleiri aðili leiguíbúða á vegum sveitarfélaga og fleiri aðila efast ég ekki, og ég fagna því, sem fram hefur komið, að í undirbúningi mun vera leiðrétting á þessu með aukinni aðstoð ríkisins gegnum Húsnæðismálastofnun ríkisins til bygginga leiguíbúða. Þar er hins vegar að áliti okkar flm. þessa frv. um nokkuð annað mál að ræða. Við teljum einnig nauðsynlegt að leiðrétta það misræmi, sem hefur orðið með lagasetningunni 1970 á heimild ríkisins til þess að byggja hagkvæmar íbúðir í samvinnu við sveitarfélag víðar en í Reykjavík.
Tilgangurinn með þessu frv. er fyrst og fremst sá að setja að nýju inn í lög um Húsnæðismálastofnun ríkisins heimild, sem nær ekki eingöngu til Reykjavíkurborgar, heldur til landsins alls. Við treystum því vissulega, eins og fram kemur í grg, okkar, með tilvísun til þeirrar knýjandi þarfar, sem er víða og kannske alls staðar í dreifbýlinu fyrir ódýrar og hentugar íbúðir, að hið fyrsta verði ráðizt í slíkar framkvæmdir. Við teljum eðlilegt, að að því verði stefnt, að slíkar framkvæmdir í samvinnu við önnur sveitarfélög geti hafizt eigi síðar en þegar lokið er Breiðholtsframkvæmdunum svonefndu, þ. e. a. s. snemma á árinu 1975. En til þess að það megi takast, veitir áreiðanlega ekki af að hefja undirbúning nú án tafar. Ræða þarf við sveitarfélögin um slíkar framkvæmdir. Semja þarf við sveitarfélögin um þessar framkvæmdir, hanna íbúðirnar, ákveða áfangana o. s. frv. Að sjálfsögðu þarf í öllum tilfellum að stefna að því, að þessar íbúðir, hvort sem þær eru byggðar í litlum einbýlishúsum eða fjölbýlishúsum, verði sem hagkvæmastar, ódýrastar og hentugastar. Því hygg ég, að reynzlan sýni, að til þess að svo megi takast, veiti ekki af, að þegar verði hafizt handa og í undirbúning ráðizt.
Ég hygg, að ég þurfi ekki að fara fleiri orðum um þetta. Það er von mín, að hv. þm. sjái strax, að nánast megi segja, að það hafi orðið um mistök að ræða í lagasetningunni 1970, þegar þetta ákvæði var fellt niður gagnvart öðrum en Reykjavíkurborg. Hér er um algera lágmarksleiðréttingu á lögum um Húsnæðismálastofnunina að ræða.