21.03.1973
Efri deild: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2634 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)
204. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég skal ekki fara að ræða þetta mál ítarlega. Ég vildi aðeins að það kæmu fram vissar aths. við 1. umr. Hér er hreyft miklu og þýðingarmiklu máli, þar sem eru húsnæðismálin og sérstök fyrirgreiðsla við landsbyggðina, þannig að þetta er tímabært að því leyfi. Hins vegar finnst mér, að það sé vafasamt, sem fram kom í röksemdafærslu og viðhorfum hv. 1. þm. Vestf. til þess ákvæðis um Breiðholtsíbúðirnar, sem hann leggur til, að sé nú á ný lögfest sem almennt ákvæði, þannig að það sé hægt að beita því ekki einungis í Reykjavík, heldur og úti um land. Þetta ákvæði gilti fyrir land allt, eins og hv. þm. sagði, en það hefur ekkert verið gert utan Reykjavíkur, eins og við vitum.
Ég skal ekki fara að fjölyrða um það, hverjar ástæðurnar eru fyrir því, að ekkert hefur verið aðhafzt, hvorki í tíð fyrrv. ríkisstj. né þeirrar ríkisstj., sem nú situr. Ef það hefði verið vilji stjórnvaldanna að gera eitthvað í þessum efnum eftir þessum leiðum, hefði verið hægur vandi að fá lagaheimild til þess. En það er staðreynd, að þetta heimildarákvæði var ekki hagnýtt viðkomandi landsbyggðinni. Og þegar lögin um Húsnæðismálastofnun ríkisins voru endurskoðuð árið 1970, var þetta ákvæði, að því er varðar Breiðholtsframkvæmdirnar, sett inn sem bráðabirgðaákvæði, eins og hv. síðasti ræðumaður gat um. Ég skal ekki fullyrða, hvað það voru mikil mistök að taka hið almenna ákvæði út, þar sem það var ekki notað. Af ýmsum ástæðum hygg ég, að það sé vafasamt, að rétt sé að fara eftir þeim leiðum, sem þar var gert ráð fyrir, til þess að rétta hlut dreifbýlisins í þessum efnum, því að sú leið varð upphaflega til fyrir samninga í sambandi við verkfall Dagsbrúnar hér í Reykjavík. En þetta var yfirfært sem heimild á allt landið, af því einmitt að það gat enginn mælt á móti því, að það væri eðlilegt að gera eitthvað hliðstætt víðar en í Reykjavík.
En um leið og þessi almenna heimild var tekin út úr húsnæðislöggjöfinni, var gerð veigamikil breyting á húsnæðislöggjöfinni og sérstaklega varðandi verkamannabústaðina. Kerfi verkamannabústaðanna var umsteypt og þannig gengið frá þeim málum, að talið var, að það væri eins hagkvæmt að byggja eftir þeim ákvæðum og ákvæðunum, sem giltu og voru framkvæmd varðandi framkvæmdir ríkisins og Reykjavíkurborgar í Breiðholti. Í bráðabirgðaákvæði, sem hv. 1. þm. Vestf. vitnaði til, segir, að það sé heimilt að velja um það að ljúka hinum fyrirhuguðu framkvæmdum í Breiðholtinu eftir þeim leiðum, sem ákveðnar voru í upphafi, eða semja um það, að þessum byggingarframkvæmdum yrði lokið samkv. ákvæðum um verkamannabústaði. Þetta var ekki út í loftið. Þetta var svo ákveðið vegna þess, að gagnvart einstaklingunum voru það miklu hagkvæmari kjör, sem boðin voru samkv. kerfi verkamannabústaðanna heldur en Breiðholtskerfinu. Þetta liggur í því, að lánin úr Byggingarsjóði verkamanna eru til 42 ára og með 2% vöxtum, en lánin, sem veitt voru til íbúðanna í Breiðholtsframkvæmdunum, eru til 33 ára og vextirnir gátu þá orðið óhemjuháir, áður en þakið var sett á vísitöluna, en geta nú orðið tæp 8%. Hér er um geysimikinn mun að ræða. Til fróðleiks get ég gefið hér dæmi um það, hvað lántakandi, sem byggði íbúð sem kostaði 1780 þús., væri búinn að greiða mikið þegar hann hefði lokið lánum sínum eftir Breiðholtskerfinu. Af þessari íbúð, sem kostaði 1780 þús., væri hann búinn að greiða 4 millj. 83 þús. En samkv. verkamannabústaðakerfinu væri maður, sem byggði sams konar íbúð á sama verði og fengi lánið samkv. því kerfi, búinn að greiða 2 millj. 853 þús. Það er geysilegur munur á þessu, það sést á þessari upphæð. Auk þess verður að hafa í huga, að lánið til verkamannabústaðanna er til miklu lengri tíma en hin lánin. Ég bendi aðeins á þetta til þess að sýna fram á, að það mál er nokkuð margslungið, sem hér er um að ræða. Þannig er ekki alveg ljóst af því, sem hv.1. þm. Vestf. sagði, að þetta, sem hann er að leggja til núna, sé raunhæfasta leiðin til þess að koma fólkinu úti á landsbyggðinni til aðstoðar. Það ber líka að hafa í huga, að það er ekki nóg að jafna metin á milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar í þessu efni, ef á að aðstoða byggðarlög, sem í vök eiga að verjast og stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Það verður að gera meira fyrir þessi byggðarlög en hin, sem betur eru sett. Það verður að snúa hlutunum við, og gera meira fyrir húsbyggjendur í þessum byggðarlögum í strjálbýlinu, ef á að aðstoða þau þannig, að um muni. Það er ekki nóg, að það komi fram á framkvæmdum einstakra aðila, það þarf að koma fram í framkvæmdum byggingaraðila almennt, hvort sem það eru einstaklingar, byggingarfélög, samvinnufélög, sveitarfélög eða aðrir aðilar. Þannig er þetta mál margslungið.
Ég sagði, að sumt af því, sem hv. 1. þm. Vestf. sagði um þetta, væri þess eðlis, að ástæða væri til að gera nokkrar athugasemdir við það. Ég skal nú stilla máli mínu í hóf. Það er ekki rétt, sem hv. þm. sagði, að Sauðárkrókur hefði hætt við Breiðholtskerfið, vegna þess, að þörfum þess byggðarlags hefði ekki verið sinnt eftir þeim ákvæðum. Sauðárkrókur vildi ekki fara í byggingarframkvæmdir samkv. þessum kjörum, eftir að breytingarnar voru gerðar á verkamannabústaðakerfinu. Það er ein sönnun fyrir því, sem ég var að segja, að það væri miklu hagkvæmara kerfi. Að vísu er rétt að taka fram, að það er einn meinbugur á því kerfi og hann ekki lítill. Segja má, að hann hafi verið í upphafi fyrir bendi, þegar lögin voru sett 1970. En að mínu viti hefur þessi meinbugur vaxið mjög í tíð núv. ríkisstj. Ég á við það, að það eru vissar kvaðir og byrðar, sem eru lagðar á þau sveitarféfög, sem taka þátt í byggingarframkvæmdum samkvæmt verkamannabústaðakerfinu. Það er erfitt fyrir sveitarfélögin að standa undir sínum hlut í því efni, og það er eitt af því, sem þarf að taka til athugunar í þessum málum.
Þessi mál eru, eins og ég hef sagt, margslungin. Ég verð að segja það, að mér finnst þetta nú heldur snöggsoðið hjá vini mínum, hv. 1. þm. Vestf. Ég er nýkominn frá kjördæmi okkar beggja vestur á fjörðum, og ég útlistaði hugmyndir mínar einmitt um bætur í húsnæðismálum á almennum fundi bæði á Flateyri og Þingeyri, þar sem voru ýmsir góðir vinir mínir, m. a. góðir framsóknarmenn. Ég hefði viljað, að hann hefði verið þar, svo að hann hefði heyrt, hvað þar kom fram, þó að hann hafi sjálfsagt fengið skýrslu um þetta, hygg ég, að hann hafi fengið ónákvæmar upplýsingar um það, sem ég ræddi um húsnæðismálin.
En hér er, eins og ég sagði í upphafi máls míns, um þýðingarmikið mál að ræða. Það er sannarlega ekki að ófyrirsynju, að húsnæðismálin eru tekin upp. Það er þakkarvert, í hvaða mynd sem það er gert. En þetta eru mál, sem við þurfum að ræða miklu betur og að mínu viti á miklu víðari grundvelli en þessi till. hv. 1. þm. Vestf. gefur tilefni til. Ég vænti þess að fá tækifæri, þegar ég legg mínar eigin till. fram í þessum efnum, til að ræða málin í heild.