21.03.1973
Neðri deild: 65. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2644 í B-deild Alþingistíðinda. (2031)

Umræður utan dagskrár

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Þar sem ég er formaður allshn., hljóta menn að skilja orð hv. 1. þm. Reykv. sem gagnrýni á störf mín kannske fyrst og fremst. Ég vil þá fyrst rifja það upp, að ég var fjarverandi vegna setu á þingi Sameinuðu þjóðanna og gegndi því ekki formennsku, þegar mál þetta var lagt fram. Hins vegar fékk ég þær upplýsingar, þegar ég kom aftur og tók við störfum, að beðið væri eftir umsögn frá forstjóra Landhelgisgæzlunnar, Pétri Sigurðssyni. Sú umsögn er ekki enn komin, og ég hygg, að það sé ekki einsdæmi, að bíða þurfi vikum saman eftir umsögnum, því miður. Hitt er rétt, að það hefur ekki verið rekið á eftir því. Hins vegar var þetta mál til umr. á síðasta fundi allshn., eins og hv. þm., Ólafur G. Einarsson, hefði getað upplýst flokksformann sinn um. Hann bað þá um, að málið yrði tekið til umr. En á þeim forsendum, að ég hafði ekki verið viðstödd upphaflegar umr. n. um málið, bað ég um vikufrest. Ég get upplýst hv. 1. þm. Reykv. um það, að allshn. hefur að undanförnu haldið tvo fundi í viku. Það hefur aldrei fallið niður fastur fundartími, og það mun heldur ekki gerast næst. Og eins og ég hef þegar sagt, þá bað ég um þann frest, sem ég þurfti til þess að kynna mér, hvernig þetta mál stæði, og lofaði nm. því, að málið yrði tekið til umr. næsta mánudag kl. 10 fyrir hádegi.