21.03.1973
Neðri deild: 67. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2678 í B-deild Alþingistíðinda. (2048)

206. mál, kaup og kjör yfirmanna á botnvörpuskipum

Frsm. 2. minni hl. (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. 20. jan. hófst verkfall á togaraflotanum og eru því nú rösklega tveir mánuðir liðnir frá því að stöðvun togaranna hófst. Þessi stöðvun hefur valdið þjóðinni gífurlegu tjóni, sem vart verður í tölum talið, en auk þess hefur þessi stöðvun valdið þjóðinni álitshnekki. Þess hafa ýmsir orðið varir, að á þessum erfiðu tímum, með þeim hörmungum, sem gengið hafa yfir Vestmannaeyjar, þegar fjöldi manna í ýmsum löndum vilja rétta okkur hjálparhönd, þá hefur það verið til lítils sóma fyrir íslenzku þjóðina, að á sama tíma hefur hinum mikilvirku veiðitækjum, togurunum, verið lagt. Þeir voru því margir, sem fögnuðu því, þegar fréttist, að af hálfu ríkisstj. væri von á till. um lausn á þessari deilu. Í rauninni held ég, að megi fullyrða, að flestir þm. hefðu gjarnan viljað, að þær till. kæmu fyrr. En í svo viðkvæmum málum sem þessum er það nú einu sinni þannig, að ríkisstj., hver sem hún er, verður að hafa þar frumkvæði og forgöngu.

Ég held, að megi fullyrða, að allir alþm. séu sammála um, að löggjafinn verði nú að taka til höndum og gera ráðstafanir til þess að koma togaraflotanum af stað að nýju. En stjfrv., sem á að leysa þessa deilu, hefur valdið vonbrigðum, og því veldur fyrst og fremst sú leið, sem hæstv. ríkisstj. hefur valið. Í þessu frv. er ákveðið að lögfesta, eins og segir í grg. með frv., lokatilboð samninganefndar yfirmanna á togurum. M. ö. o.: í þessari deilu er tekin sú nýbreytni að lögfesta tilboð annars aðila. Þegar Alþ. hefur ákveðið með löggjöf að leysa kjaradeilur, hafa yfirleitt verið farnar tvær leiðir eða önnur hvor þessara tveggja leiða. Önnur er sú, að miðlunartill. frá sáttasemjara ríkisins eða sáttanefnd hefur verið lögfest. Hin er sú, að Alþ. hefur ákveðið með lögum, að gerðardómur skipaður af hæstarétti skuli skera úr. Þessar tvær leiðir hafa verið farnar og í rauninni aðrar ekki nú um langan aldur. Báðar þessar leiðir hafa nokkuð til síns máls. Ég segi fyrir mitt leyti, að yfirleitt felli ég mig betur við þá leiðina, að Alþ. fallist á miðlunartill., sem sáttanefnd er búin að leggja mjög mikla vinnu í af miklum kunnugleika. En þar sem því er ekki til að dreifa, er gerðardómsleiðin vafalaust næstbezt.

Hér er sem sagt farið inn á aðra leið, og við, sem erum í 2. minni hl. félmn. Nd., hv. 11. landsk. þm., Ólafur G. Einarsson, og ég, erum andvígir þessari leið og leggjum því til, að sú leið verði farin, sem felst í brtt. okkar, sem annaðhvort hefur verið útbýtt eða verður útbýtt nú mjög fljótlega í sambandi við nál.

Nú hefur verið upplýst, að miðlunartill. hefur engin verið lögð fram í þessari deilu af hálfu sáttanefndar, og liggur því ekki fyrir sá möguleiki að lögfesta sáttatill., eins og stundum áður hefur verið gert. Við leggjum því til, að farin sé sú leiðin, sem einnig hefur verið notuð, að hæstiréttur tilnefni þrjá menn í gerðardóm, sem ákveði kaup og kjör þeirra manna, sem greinir í 1. gr. frv., að hæstiréttur skuli kveða á um, hver hinna þriggja gerðarmanna skuli vera formaður dómsins, gerðardómurinn skuli kveða upp úrskurð sinn svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 26. marz 1973. Hér er gert ráð fyrir 5 daga fresti fyrir gerðardóminn til þess að starfa og kveða upp sinn úrskurð. En ákvæði gerðardómsins skulu gilda frá gildistökudegi þessara laga til 31. des. 1973, eins og frv gerir ráð fyrir. Ef svo fer fram sem hæstv. ríkisstj. hefur ætlað, að lögin verði samþ. í kvöld eða nótt, þá ganga þau í gildi á morgun.

Ég vil taka fram, að í þessari till. okkar felst að sjálfsögðu, að verkföllum er aflétt, um leið og lögin ganga í gildi, þ. e. a. s. þegar í stað, en ekki þá fyrst, þegar úrskurðurinn kemur.

Ég vil fyrir hönd okkar í 2. minni hl. leggja fram þessa till. og vænti þess, að hún fái góðar undirtektir.

Ég vil undirstrika það, að í rauninni vakir það sama fyrir þm. Allir eru sammála um, að þessa deilu þarf að leysa, en æskilegra væri að fara þessa leið, sem við bendum á, heldur en hina, sem er nýmæli og er að mörgu leyti mjög varhugaverð.