22.03.1973
Efri deild: 73. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2701 í B-deild Alþingistíðinda. (2062)

206. mál, kaup og kjör yfirmanna á botnvörpuskipum

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Það var á sínum tíma hér í hv. d. mikið rætt um togarakaupin og fengum við þáv. stjórnarsinnar orð í eyra fyrir slappleika og margt í kringum það, hvernig á slíkum málum hefur verið haldið undanfarin ár. Það kom fram þá, að til þess að menn hefðu áhuga á að kaupa togara, þyrfti að vera einhver vottur af möguleika til þess að reka skipin. Ég held, að það megi segja almennt, að þótt oft sé deilt á útgerðarmenn fyrir ýmislegt í rekstri, þá séu þeir almennt þannig, að þeir vilji standa við þær skuldbindingar, sem þeir skrifa undir, og reyna að leggja sig fram um það, eins og hægt er, að standa í skilum, hvort sem þeir eru með stór eða lítil tæki undir höndum. Það var hamrað á þessu í kosningabaráttunni ásamt ýmsu fleiru, og það bar þann árangur, að styrkleikahlutföllin á hv. Alþ. breyttust og nýir menn komu inn og tóku við stjórnartaumunum. Maður skyldi nú halda, að allt ætti að vera í blóma miðað við fyrri umsagnir, og þarf ég reyndar ekki að minna á það hér. Það var drepið á það af fyrri ræðumönnum, að af nógu væri að taka, ef við færum að fletta blöðum, svo að ég skal ekki orðlengja það meira.

Ég sagði það í sambandi við umr. um togarakaup á sínum tíma hér að við ættum að fara varlegar en margir vildu, við ættum að taka 3–4 af hverri stærð. 3 gerðir, og reyna þetta eins og tvö ár, 15–16 stykki, og sjá, hvernig fram yndi. Við erum margir minnugir þess, að 1961 hélt ný tækni innreið sína í bátaflotann með stálskipum og nýrri veiðitækni, og það urðu mjög hörð átök um skiptakjör og hvernig ætti að standa að því, hvað tæknin ætti að fá til sín og hvað áhöfnin. Það endaði eftir langt verkfall og hörku með gerðardómi, sem frægt er orðið. Þá fengum við í Alþfl. mjög hvassa ádeilu frá núv. hæstv. félmrh. og flokksmönnum hans, og vantaði ekki, að stóru byssurnar voru hlaðnar og látnar dúndra. Nú stendur hann í þeim sporum að verða að höggva á mikið þjóðfélagslegt vandamál, eins og hann tók fram, sem við erum allir sammála um, að þurfi að höggva á. En það er ekki gert fyrr en undirmenn hafa staðið í verkfalli langan tíma og yfirmenn verið þá á fullu kaupi í heilan mánuð, ef ég veit rétt varðandi þeirra kjarasamninga. Þá fyrst, eftir að verkfallið er búið að standa nærri 6 vikur samtals, fara þeir að ókyrrast yfir þessu vandamáli. Þó sagði hæstv. ráðh., þegar Vestmannaeyjagosið hófst, að nú væri ekki tími til verkfalla. Samt líður vika eftir viku. Hann mælir rétt á þeirri stundu út af fyrir sig. En verkföll eru vandamál, sem allir hafa hliðrað sér við að grípa inn í af hálfu ríkisvaldsins fyrr en tilneyddir.

Það kom fram hjá síðasta ræðumanni mjög rækilega, að ríkisstj. vildi eftir orðum hæstv. sjútvrh., að fyrst yrði samið og svo skyldu þeir sjá um, að rekstur yrði mögulegur. Og ég skildi hæstv. forsrh. þannig, þegar ég hlustaði á hann í Nd. í gær, að velvilji væri meiri hjá hæstv. ríkisstj., ef samningar tækjust fyrr. Þessi afstaða er að vísu ósköp mannleg. En því miður hafa forsvarsmenn útgerðarmanna ekki viljað taka þetta of hátíðlega. Ég segi því miður, miðað við þróun og framgang mála. Dæmið er þannig, að eftir tveggja mánaða hörkuverkfall neyðist ríkisstj. til þess að gefa út lög, sem ganga að kröfu yfirmanna, að því er manni virðist, að mestu eða öllu leyti. En þetta hefur verið rækilega rakið hér, og skal ég ekki orðlengja það sérstaklega út af fyrir sig.

En það sem mér finnst verst í þessu sambandi, er, að það hefur verið gömul venja, a. m. k. á skipum undir 500 tonnum, að þegar fækkun á sér stað á dekki eða í vél, skiptist upp á milli áhafna eftir skiptakjörum. Hér er brugðið út af þeirri venju og þetta ekki gert. Þó að hásetum fækki í veiðiferð, sem oft á sér stað vegna ýmissa orsaka, gera allir kröfu til, að aflahlutur skiptist upp, en komi einnig til hækkun við vél eða hjá yfirmönnum, skulu hásetar engan veginn njóta þess. Eins og ég skil frv., á þetta að vera þannig. Hér munu raskast hlutföll, og mér segir svo hugur um, að margir hásetar muni vera óánægðir með þetta og fara sér hægt um borð til að byrja með a. m. k. Vissulega munu beztu skipin fá mannafla eins og ævinlega, en það mun áreiðanlega ganga seint hjá sumum, einmitt vegna þessarar afstöðu. Þetta er gömul venja. Meira að segja kemur sú venja fram í lögum sem hæstv. félmrh. stóð að í tíð vinstri stjórnarinnar, ef ég man rétt, l. nr. 16 frá 1958, en þar segir, að ekki skuli neitt missa í kjörum, þó að maður falli frá úr hópi manna, sem vinna að sama verkefni. Þetta hefur verið gildandi venja í samningum á bátaflotanum undir 500 tonnum í fjöldamörg ár. Það er einmitt þessi agnúi, sem ég rek augun í og margir fleiri, og mun áreiðanlega verða hart á honum hamrað, þegar samningar verða lausir hjá undirmönnum, hásetum, um n. k. áramót. Ég er alveg viss um, að þetta fordæmi, sem á að lögleiða núna, mun leiða það af sér, að þeir munu ekkert gefa eftir á sínum tíma, þegar kemur að næstu verkfallsátökum, alls ekki neitt. Hví skyldu þeir gefa eftir? Það er ekkert nema bara að sýna nógu mikla þrjósku, þá neyðist viðkomandi ríkisstj., hver sem hún verður, til að láta undan kröfunum, eins og hann undirstrikaði hér áðan um lægsta hugsanlega tilboð, af hálfu þeirra, sem gera kröfur. Það hefur komið fram, að yfirmenn kölluðu sitt lægsta hugsanlega tilboð, og hæstv. ríkisstj. sér sig neydda til að standa að því.

Gott og vel, það varð að skera á hnútinn, og það varð að gera með einhverju móti. En þetta leiðir af sér, að aðrir taka upp sömu vinnubrögð síðar, því miður. Virðist vera aukaatriði að tala hér um rekstrargrundvöll, þrátt fyrir það að þessi skip fái betri lánskjör en önnur útgerð í landinu og beina styrki. Og það er næstum því hlálegt, að það skuli vera vonlaust að reka skipin, áður en þau koma til landsins. Ég man eftir því, að í marz 1963 var útseld vinnustund á þjónustu á vélaverkstæðum og netaverkstæðum gagnvart þessari útgerð 53.60 kr. Það var tilkynnt verð nú fyrir nokkrum dögum, lágmark 330 kr. í dagvinnu. Þarna sjá menn þróun verðlagsmála í landinu. Einnig liggur fyrir hv. Alþ. frv. samið af rn., hæstv. samgrh., varðandi kostnað við hafnirnar í landinu, þar sem stóraukin gjöld eru lögð á þessa útgerð, svo að nemur tugum millj. Ríkissjóður verður að borga brúsann í einu eða öðru formi. Það er ekkert öfundsvert fyrir þá menn, sem bera ábyrgð á þessari útgerð, ef þeir eiga að hafa tékkheftið í vasanum. Ég er hræddur um, að eitthvað geti hoppað af gúmmítékkum gegnum reksturinn undir þessum kringumstæðum. Þeir yrðu ekki öfundsverðir og kynnu að verða magasárir, áður en langt um líður. Þetta er mjög slæm þróun, því miður, og jafnvel þó að lögbinding á þessum samningi leiði ekki til kollsteypingar á útgerðinni út af fyrir sig, þá er hún því miður einn þáttur í því að gera þessa útgerð næstum vonlausa í heilbrigðum rekstri. Það safnast margt saman, og það hefur ekki allt komið fram. Hvort launin eru 55–60% af brúttótekjum, miðað við sölu innanlands, skal ég ekki segja, en fróðlegt hefði verið að sjá það og gefa ákveðnar forsendur, t. d. veiðitúr í 10 daga, löndun hér heima á 2 millj kr. og reikna hlutaskiptin út. Því mátti ekki slíkt fskj. fylgja? Það er ekki lengi gert með allri þeirri tækni sem til er í dag, kortérsvinna, að gera upp slíkan túr, og þá sjáum við það svart á hvítu, hvernig slíkt kæmi út. Síðan mátti gera sér upp túr, sem var 4 millj. í sölu í Þýzkalandi og sá túr tæki 3 vikur. Það mátti líka leggja hann á borðið og gera samanburð til og frá, fyrir og eftir gildistöku þessa frv., með ákveðinn fjölda af mannskap. Þá þyrfti ekki að vera að eyða hér klukkutíma eftir klukkutíma í rifrildi. Þetta lá á borðinu. En það þarf eitthvað að fela, það þarf eitthvað að fara varlega, og síðan á hin góða ríkisstj. að brúa bilið, þrátt fyrir það að framkvæmd laga sé svo erfið og það hafi gengið úr herbúðum þeirra, sem stjórna við ríkiskassann, að allir skuli skera niður um 15%. Samt er verið að auka hér útgjöld ríkissjóðs sem nemur tugum millj. Hann er bæði búinn að taka á sig kvöðina varðandi bátaflotann og nú varðandi togaraflotann. Það væri fróðlegt að heyra hér, því að hér í hv. d. sitja tveir af aðalkommisserum í Framkvæmdastofnuninni, hvað ríkisstj. hefur lagt fram þegar í beinum styrkjum, — ég á ekki við lánin, — til kaupa á 39 togurum, sem eru að koma til landsins, í sambandi við þetta dæmi. Það gæfi okkur ekki litla innsýn í það, hvað þetta er erfið útgerð og hvernig þarf að taka á þeim málum, svo að hún hafi nokkurn minnsta möguleika á að snúast. Síðan er deilan um það, sem á eftir að verða hér viðkvæmt mál fyrir alla, hvort þessir nýju togarar eiga síðan að fara inn fyrir 12 mílurnar. Ef þeir verða settir út fyrir, sem mjög margir vilja og allir fiskifræðingarnir undantekningalaust hafa lýst yfir, munu forsvarsmenn þessarar útgerðar segja: Reksturinn er enn þrengdur. Hér er því um alvarlegt vandamál að ræða. Ég tek undir orð hæstv. ráðh.: Þetta er vissulega mikið vandamál. En þetta eru svo afkastamikil skip, að þau verða að vera í gangi, og þess vegna ber að leysa verkfallið.

Það eru enn að störfum ein eða tvær nefndir, sem eiga að rannsaka rekstrargrundvöllinn og koma með till. Þetta er ekki nýtt fyrirbrigði. Ég man fyrst eftir því, að það var sett n. á fót um áramótin 1954–1955, held ég. Þar voru margir þekktir menn. Hugmyndir þeirra voru þá næsta undarlegar að mati okkar margra. Þeir lögðu 5 þús. kr. skatt á hvern bíl í landinu og færðu þannig til fé handa útveginum, en ekkert róttækt var þá gert til þess að skapa eðlilegan grundvöll. Það er engin lausn að taka féð úr einum vasa og færa það í annan og hafa svo allt meira og minna knúsað, það er engin lausn í sjálfu sér. En það er hægt að halda hlutunum þannig gangandi við illan leik. En þá fer maður að spyrja sig: Er ekki betra að hafa þetta þá bara á einni hendi, af hálfu bæjarfélaga eða ríkissjóðs, og vera ekki að burðast með þetta margbundna rekstrarform? Enginn einstaklingur í dag hefur slíkt fjármagn, hvort sem hann á stóra vinnslustöð eða ekki, að hann geti fært það á milli frá vinnslustöð, að öflunin sem slík standist. Stærsti útgerðarmaður einstaklinga í dag er að gefast upp, og síðustu fréttir eru, að hann hafi selt frystihús sitt. Ég veit ekki, hvort það er rétt, en ég heyrði það þó í gær, að það væri að komast sölusamningur á í því sambandi, þannig að ekki er nú bjart í álinn þeim megin. Nei, það er margslungið mál því miður að reka togara, og það þekkir hæstv. sjútvrh., sem hafði togara á sínum snærum í sínu bæjarfélagi og var þar mikill hvatamaður. Hann gafst upp á sínum tíma, og fór yfir í síldarútgerðina og hefur nú aftur stuðlað að kaupi á stóru skipi í loðnuútgerðinni, — vonandi vegnar því vel, — og er þar gúanóframleiðsla höfð í hávegum. En lögbinding með þessu móti dregur dilk á eftir sér. Hún dregur þann dilk á eftir sér, að undirmenn verða kröfuharðari þegar að því kemur, að samningar þeirra verði lausir. Þá mun verða vitnað til þess, að af kröfum þeirra manna, sem hafa fjórðung til 50% hærri laun, var gengið næstum alveg með stuðningi þeirrar hæstv. ríkisstj., er þá sat.