22.03.1973
Efri deild: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2723 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)

206. mál, kaup og kjör yfirmanna á botnvörpuskipum

Frsm. 1. minni hl. (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Herra forseti. Það er enginn ágreiningur um, að það þurfi að leysa fyrir atbeina löggjafarvaldsins þá togaradeilu, sem mál þetta fjallar um. Togaraverkfallið er að allra áliti búið að standa allt of lengi. Það er aldrei gott, þegar mikilvirk framleiðslutæki eru látin liggja ónotuð, eins og hefur verið gert í þessu tilfelli. Það er mikið tjónið, sem við höfum orðið fyrir frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Ofan á þetta kemur það, að á þessum tíma eða um þetta leyti ber að hina miklu ógæfu í Vestmannaeyjum. Á sama tíma, sem eru framréttar hendur hvarvetna með gjöfum handa okkur, horfum við á það, svo vikum og mánuðum skiptir, að þessi stórvirku framleiðslutæki eru látin vera ónotuð. Þetta er ofan á allt annað okkur til lítils sóma. Það er þess vegna ekki að undra, að við séum allir sammála um, að mál sé, að þessu linni.

Það hefur verið rætt um það og deilt um það, hvernig stendur á því, að þetta verkfall hefur staðið svo lengi. Ég skal ekki fara að fjölyrða um það. Ég hygg, að það standi, sem talsmenn Sjálfstfl. og raunar Alþfl. eða stjórnarandstöðunnar hafa haldið fram, að af hálfu ríkisstj. hefur verið á þessu máli tekið með miklum vettlingatökum. En nú er það, sem máli skiptir, að leysa þessa deilu. En þá kemur það upp, þó að við séum sammála um, að það sé nauðsynlegt að grípa til atbeina löggjafarvaldsins til þess að leysa deiluna, að það er gert með nokkuð öðrum hætti en áður hefur tíðkazt eða ég hygg að dæmi séu til. Venjulega hefur það verið svo, þegar komið hefur til kasta Alþ. að leysa vinnudeilu, að þá hefur það annaðhvort verið gert í því formi, að samþykkt hafi verið lög, sem hafa lögbundið sáttatillögu í málinu, eða þá að sérstakur gerðardómur hefur verið settur til þess að leysa deiluna. Nú er hvorugt gert í þetta sinn, og við það höfum við sjálfstæðismenn að athuga. Við teljum, að það sé óeðlilegt að fara þannig að, að lögbinda, — eins og segir í grg. með frv. þessu, sem hér er til meðferðar, — lokatilboð samninganefndar yfirmanna á togurum.

Hv. síðasti ræðumaður, frsm. meiri hl. félmn., spurði, hvað væri að þessari aðferð, þegar það væri upplýst, eins og hann sagði, að það væri farið að till. yfirmannanna, en jafnframt væri gert ráð fyrir, að ríkið hlypi undir bagga með hinum aðilanum, til þess að hann gæti staðið undir því, sem á milli ber. En málið er bara ekki svo einfalt. Það er fleira, sem varðar rekstur togaranna og hallarekstur, sem allir eru sammála um að sé, heldur en sá munur, sem er á lokatilboði yfirmanna og því, sem útgerðarmenn mundu vilja hafa fallizt á. Og það kann að vera, að það hafi einhver áhrif á það, ef ríkisstj. stendur við fyrirheit sitt að greiða þennan mismun. Það kann að hafa áhrif á aðrar aðgerðir ríkisstj. og hvað annað hún gerir til þess að gera rekstur togaranna mögulegan hallalausan. Þau eru léttvæg þessi rök.

Svo eru önnur rök, sem hv. síðasti ræðumaður færði fram fyrir því, að það væri ekki fært nú að fara hina venjulegu leið, þ. e. a. s. lögbinda sáttatill., vegna þess að það hefði engin sáttatill. verið borin fram. Og hann bætti við, að það væri ekki á valdi ríkisstj. að fyrirskipa sáttasemjara að gera slíkt. Veit ég það. En það er kannske á valdi ríkisstj. að gera eitthvað í sambandi við þessa deilu, sem gæti skapað það ástand, að sáttasemjari hefði séð sér fært að bera fram sáttatill. Það eru fjölmörg atriði, sem koma þar til greina. Maður skyldi ætla, að eitthvað, sem ríkisstj, aðhefðist, gæti haft áhrif á hið almenna ástand og þann grundvöll, sem þyrfti að skapast, til þess að hægt væri að bera fram sáttatill. Nei, þetta eru ekki rök fyrir þeirri afstöðu, að það sé ekki hægt að lögbinda sáttatill. Þvert á móti eru þetta rök fyrir því, sem ég sagði áðan, að ríkisstj. hefði haldið frámunalega slælega á þessu máli og viðhaft hreinustu vettlingatök.

Um gerðardóminn, þá leið, sagði hv. síðasti ræðumaður ýmislegt. En ég ætla ekki að fara að elta ólar við það allt saman. Hann fann greinileg þörf hjá sér til þess að verja hina óvenjulegu aðferð og gefa skýringu á því, hvers vegna hæstv. ríkisstj. og stjórnarliðið getur ekki fallizt á þá eðlilegu lausn, sem við sjálfstæðismenn bendum á, þ. e. a. s. að settur sé sérstakur gerðardómur til þess að leysa deiluna, fyrst ekki er hægt að fara þá leið, sem ég mundi ætla, að hefði verið bezt, að lögbinda sáttatill. En hv. síðasta ræðumanni, frsm. meiri hl. félmn., varð nokkuð tíðrætt um, hvers vegna ekki væri rétt að setja sérstakan gerðardóm í málið. En ég vil benda þessum hv. þm, á það, að það er áreiðanlegt, að ef þessi leið væri farin, þá mundi það liggja óyggjandi og útvírætt fyrir, hver niðurstaða gerðardómsins er. Og þegar öllu er á botninn hvolft, þá skiptir það nokkru máli, að vita, hvað gert er. En hér hafa menn bæði í þessari hv. d. og í hv. Nd. verið að deila einna mest um það, hvað það þýddi, sem þetta frv. inniheldur. Menn hafa verið að deila um það í fyrsta lagi, um hvað mikla kauphækkun væri að ræða hjá yfirmönnunum, og í öðru lagi, hvort kauphækkun yfirmannanna væri hlutfallalega hærri eða lægri en kauphækkun undirmannanna, sem þeir fengu með frjálsum samningum. Þetta er ekkert til þess að státa af. Ég held, að hvernig sem við lítum á þessi mál, þá hefði hvor leiðin sem var, annaðhvort að lögbinda sáttatill. eða fallast á till. okkar sjálfstæðismanna að setja gerðardóm í málið, verið betri en sú leið, sem lagt er til, að farin sé, með frv. Því, sem hér liggur fyrir.

Herra forseti. Eins og hv. frsm. meiri hl. tók fram, klofnaði félmn. í þessu máli. Félmn. beggja d. héldu tvo fundi í gær. Málið var þar allítarlega rætt, en það kom þegar í ljós, að ekki var samstaða í n. Og það var útséð um það á fundi félmn. þessarar hv. d. í dag, að af samstöðu gat ekki orðið. Við hv. 6. þm. Reykv. skilum sérnál. á þskj. 417 og flytjum við frv. brtt. við 2. gr., sem felur í sér, að hæstiréttur tilnefni 3 menn í gerðardóm, sem ákveði kaup og kjör þeirra sem 1. gr. frv. tekur til. Gert er ráð fyrir í till. okkar, að hæstiréttur ákveði, hver hinna þriggja gerðarmanna skuli vera formaður dómsins. Og þá er gert ráð fyrir, að gerðardómurinn kveði upp úrskurð svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 26. marz n. k., þ. e. a. s. það geti ekki orðið nema fjögurra daga dráttur, Þar til úrslit gerðardómsins liggja fyrir. En burtséð frá því, gerir till. okkar ráð fyrir, að kjaraákvæði gerðardómsins skuli gilda frá gildistöku þessara laga. M. ö. o.: það er enginn dráttur á máli þessu, það frestar ekki á neinn hátt, að togararnir geti leyst landfestar og hafið veiðar, þó að þessi leið sé farin. Við hv. 6. þm. Reykv. sjáum ekki neitt mæla gegn því, að farin sé sú leið, sem við leggjum til með þessari brtt. Ánægjulegt væri, ef menn sæju, þó að ekki væri fyrr en á elleftu stundu, að þessi leið er hin eðlilega og rétta.