22.03.1973
Neðri deild: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2732 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)
Umræður utan dagskrár
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. forsrh., að það geta ekki orðið efnisumræður um mál, þegar verið er að finna að afgreiðslu mála eða töfum, sem á afgreiðslu eru í þinginu. En ég vil alvarlega aðvara þm., sem gegna formennsku í n. að afsaka sig í þessum efnum, því að það er í raun og veru ekki verið að sakast við neinn einn þm., hvorki formann né varaformann n., og það hef ég ekki gert. Þegar ég hef gert aths. um þetta, hef ég um leið vakið athygli á því, að þetta er einn af vanköntunum í okkar þingstörfum, það er starfsemi þingnefndanna. Þetta er iðulega þannig, að mál koma fram í byrjun þings og liggja í nefndum, stundum kannske ekki af því, að menn vilji liggja á þeim, ég skal ekkert segja um það, heldur er þetta staðreynd, og svo koma þessi mál á síðari hluta þings og tefja fyrir þingstörfum, en eru þess eðlis mörg hver, að það væri með fljótu bragði hægt að afgreiða þau. Í því sambandi finnst mér, að menn eigi að gera það upp við sig, hvaða afstöðu skuli taka til mála. Ef menn hafa mismunandi skoðanir á málunum, þá verða þar meiri og minni hluti eins og gengur og gerist. En fyrst og fremst ber að leggja kapp á að afgreiða málið. Það mundi greiða fyrir öllum þingstörfum.
Ég tel nú, að þetta hafi verið þarflegar umræður utan dagskrár hér í gær og í dag, til þess að vekja athygli á þessu frv. Miðað við þær undirtektir, sem það hefur fengið, og enda þau tilsvör, sem komu í gær frá hv. form. n., mun þetta mál verða tekið til afgreiðslu alveg á næstunni, og það er það, sem máli skiptir.