22.03.1973
Neðri deild: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2748 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)
25. mál, dvalarheimili aldraðra
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. með því að ræða sérstaklega um efnisatriði þessa máls. Það hefur verið rækilega gert af hv. 10. þm. Reykv., sem er fyrri flm. þeirra brtt. sem hér liggja fyrir til umr.
Ég vil taka fram, að það er alveg óþarft af hæstv. fjmrh. að gera því skóna, að við séum ekki einlæglega fylgjandi því, að þetta mál nái fram að ganga. Og ég get ekki séð, að það sé neitt athugavert við það, þótt þm. beri fram brtt. við mál, og í því felst vitanlega ekki, að það sé neinn bilbugur á fylgi þeirra við málið, þarf a. m. k. ekki að felast, enda gerir það, það ekki í þessu tilfelli.
Það kom fram við þessar umr. nokkur undrun hjá hæstv. fjmrh. yfir því, að við skyldum nú við 3. umr. fara að bera fram þessar margháttuðu brtt. Það á sína skýringu, sem mig minnir, að hv. 10. þm. Reykv. hafi gefið, þegar hann hafði framsögu fyrir brtt. Skýringin er sú, að í fyrsta lagi á ég sæti í heilbr.- og trn., sem hafði þetta mál til meðferðar, en átti þess ekki kost að fjalla um frv. í þeirri n., enda var það svo, að nm. voru allir sammála um nauðsyn á framgangi þessa máls. En af því að ekki hafði gefizt kostur á því að ræða það rækilega þar, þá held ég, að allir hafi áskilið sér rétt til þess að flytja við frv. brtt., ef þeim svo sýndist, hvaða rétt ég notfærði mér.
En ástæðan fyrir því, að þessar brtt. komu svona seint fram, var sú, að við hv. 10. þm. Reykv. vorum veðurtepptir úti á landi, þegar málið kom hér til 2. umr., og gafst þess vegna ekki kostur á að flytja þessar till. fyrr. Þessa skýringu vildi ég gefa, en taka einlæglega undir það, sem hæstv. fjmrh. sagði, að mergurinn málsins er vitanlega sá, að þessi lög komist á, sem verða til stórstuðnings og styrktar þessu mikla mannúðar- og nauðsynjamáli.