26.03.1973
Neðri deild: 70. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2765 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Hér hafa nú farið fram býsna einkennilegar umr. og nokkuð svo skemmtilegar á köflum, ekki sízt þáttur hv. 1. þm. Sunnl., Ingólfs Jónssonar, þegar hann kom hér og talaði á þann sérkennilega hátt, sem aðeins sjálfstæðismenn geta talað, að hann talaði jöfnum höndum fyrir báða þá aðila, sem virtust vera stríðandi í þessu máli. En sem sagt, hann munar ekki mikið um að segja þrátt fyrir það, sem hefur verið að gerast að undanförnu: Stétt með stétt, og verið svo allir á móti ríkisstj.
En það, sem mig langaði sérstaklega til að ræða um í sambandi við það, sem hér hefur komið fram, er nokkuð almennt um dýrtíðar- og verðlagsmálin. Ég ætla að víkja nokkrum orðum að hv. 7. þm. Reykv., Gylfa Þ. Gíslasyni, og reyndar ýmsum öðrum í leiðinni.
Hv. 7. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, sem lengi hefur verið sérfræðingur í landbúnaðarmálum, eins og menn þekkja, hélt því fram, að allur sá vandi, sem við væri að glíma nú í þessum málum, stafaði af því, að ríkisstj. réði ekki við stefnuna í efnahagsmálum, og dýrtíðin í landinu væri ríkisstj. að kenna. Hann hirðir auðvitað ekkert um, þó að það liggi fyrir, að síðustu 3 árin, sem hann var við völd, hækkaði framfærsluvísitalan um 18.6% á ári að meðaltali, en nú á rúmlega tveggja ára tímabili hefur framfærsluvísitalan ekki hækkað nema um 7.7%. Hann munaði ekki mikið um að stíga yfir þetta. En hann var ekki heldur að greina frá því, hvernig m. a. stendur á þeim hækkunum á verðlagi, sem hér hafa gengið yfir að undanförnu. Það er fróðlegt fyrir þá, sem nú tala mest um hækkandi verðlag, að reyna að átta sig örlítið á því, hvað hefur verið að gerast hér hjá okkur og í nálægum löndum í verðlagsmálum. Við létum nýlega taka saman skýrslu um það í viðskrn., hvað liði verðbreytingum á ýmsum helztu innflutningsvörum okkar erlendis frá á s. l. ári., og ég skal nefna hér nokkrar tölur í þessu sambandi.
Það kom í ljós, að á s. l. ári, þ. e. a. s. frá ársbyrjun 1972 til ársloka, hafði verð á timbri, aðallega mótatimbri, hækkað um 68%. Heldur Gylfi Þ. Gíslason, að þetta sé að kenna íslenzkum stjórnarvöldum? Það kom einnig í ljós, að verð á járni og stáli, sem menn nota hér til margs, hafði hækkað á árinu um 71%. Heldur Gylfi Þ. Gíslason, að þetta sé að kenna íslenzkum stjórnarvöldum? Það kom einnig í ljós, að innflutningsverð á hveiti hafði hækkað um 50%, innflutningsverð á fóðurvörum öllum hafði hækkað um 49%, innflutningsverð á sykri og kaffi hafði hækkað um 45%. Hér hefur verið um það að ræða, að gengið hafa yfir í okkar viðskiptalöndum í hinum stóra heimi gífurlega miklar verðhækkanir, sem eðlilega hafa komið fram í íslenzku verðlagi jafnframt. Við vitum einnig, að á s. l. tveimur árum hefur verðgildi dollarans verið að lækka í verði tvívegis og hefur óhjákvæmilega þýtt það, að innfluttar vörur til Íslands hafa hækkað í verði. Það hefur ekki verið á valdi íslenzkra stjórnarvalda að ráða við þetta. Menn ættu að hafa það í huga, að við eigum meginútflutningsviðskipti okkar við dollarasvæðið, seljum vörur okkar þangað og verðum að búa að því. Ef dollarinn lækkar í verði, hljótum við raunverulega að fá minna fyrir útflutning okkar að verðgildi í öðrum vörum. Þetta hefur verið að ganga yfir á þessu tímabili.
Sannleikurinn er sá, að þegar tekið er tillit til þess, sem hefur verið að gerast í verðlagsmálunum í kringum okkur, þá eru s. l. tvö ár einu árin í langan, langan tíma, sem verðbólgan á Íslandi er minni en í okkar helztu viðskiptalöndum. Opinberar skýrslur sýna, að verðbólgan t. d. í Bretlandi jókst um 11% árið 1971 og 12% árið 1972 eða meira en hér. Það er auðvitað ósköp auðvelt að kenna íslenzkum stjórnarvöldum um allar þessar hækkanir og segja svo á eftir, að íslenzkir ráðh. hafi ekkert við það að gera að stjórna landinu og þeim séu að kenna allar þessar verðhækkanir.
Við vitum einnig, að á þessu tímabili hefur verið óhjákvæmilegt að hækka laun helztu vinnustéttanna í landinu, af því að það átti eftir að hækka laun þeirra til samræmis við það, sem búið var að hækka launin hjá embættismönnum áður. Auðvitað vita allir, að þegar kaup hækkar mikið, þá er engin leið að koma í veg fyrir, að verðlag hækki eitthvað um leið, og enginn ætti að þekkja það betur en hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason, sem samfleytt í 15 ár í ríkisstj. stjórnaði hér einhverri mestu verðbólguöldu, sem yfir Ísland hefur gengið. Þeir ættu að þekkja það, sem koma úr viðreisnarstjórninni, hvað er að glíma við sífellt hækkandi verðlag. Enda hafa þessir herrar ekkert dregið af sér nú að undanförnu, þegar þeir hafa verið að fara fram á hækkandi verðlag á öllum sviðum. Við vitum mætavel, að þeir, sem t. d. stjórna Reykjavíkurborg, hafa ekki verið að draga af sér að undanförnu að heimta hækkanir á öllum sviðum. Heimtuðu þeir ekki nú fyrir stuttu, að strætisvagnagjöld í Reykjavík hækkuðu um 44%, þótt þeir fengju ekki nema 25% hækkun? Heimtuðu þeir ekki, að rafmagnsverð í Reykjavík hækkaði um 22.6%, þótt þeir fengju ekki nema 15%? Heimtuðu þeir ekki, að hitaveitugjöldin í Reykjavík hækkuðu um 29.6%, þótt þeir fengju ekki nema 20%? Og liggja ekki fyrir kröfur frá þeim, sem stjórna Reykjavíkurborg, um að mega hækka daggjöldin á barnaheimilum í borginni um 80% og heimilishjálp um 50%? Þessir aðilar hafa ekkert dregið af sér í því að reyna að hækka verðlagið í landinu, eins og þeir hafa mögulega getað. Það má svo sem minna á það líka, að heildsalarnir í landinu gera kröfu um að fá að hækka heildsöluálagninguna um 36%. Skyldi Sjálfstfl. þekkja eitthvað af þeim mönnum, sem standa á bak við þær kröfur?
Þannig hefur það verið, að þessir aðilar, sem nú tala mest um, að hér hafi hækkað verðlag, hafa manna mest ýtt á eftir hækkandi verðlagi í landinu. Um það leyti, sem var verið að velja leiðir til að ákveða, hvernig við skyldum afla tekna í svonefndan viðlagasjóð til þess að standa undir lausn á þeim vandkvæðum, sem sköpuðust vegna hamfaranna í Vestmannaeyjum, þá kom til mála að fresta tiltekinni kauphækkun, ekki aðeins verkafólks sem nam 6% í 7 mánuði, heldur einnig að fresta kauphækkun opinberra starfsmanna um 7% á sama tíma. Hvað gerðist þá? Þá kom í ljós, að forsvarsmenn Sjálfstfl. og Alþfl., sem nú tala mest um hækkun á verði landbúnaðarafurða, mæltu á móti því, að þessum kauphækkunum yrði frestað í nokkra mánuði, en af því hefði einmitt leitt það, að verðhækkanirnar á landbúnaðarafurðum hefðu ekki heldur gengið yfir nú. Það lá alveg skýrt fyrir. Þeir hins vegar kröfðust þess og börðust fyrir þá að fá þessa hækkun fram, m. a. til þess að allar þessar verðhækkanir gætu gengið yfir. Og þáttur Alþfl. var ekki mergilegri en svo, að hann samþykkti auðvitað fyrst að vera með því að fresta þessari kauphækkun, en sneri svo við á eftir, þegar hann heyrði, að einhverjir aðrir mundu verða á móti þessu, og gaf þá upp sína fyrri stefnu.
En svo er það merkilega í þessu máli, að þegar menn eiga að standa við áður gerða samninga við bændur um verðlagningu landbúnaðarafurða, við lög, þegar á að taka tillit til þess, að kaup bóndans á að hækka í framleiðsluverði landbúnaðarvara alveg eins og kaup annarra stétta, og þegar við eigum að taka fullt tillit til þess við eðlilegan framreikning, hvað ýmsar vörur, sem landbúnaður þarf á að halda til sinnar framleiðslu, hafa hækkað erlendis, þá koma menn og neita að taka þátt í að standa við þennan framreikning, standa við þá samninga, sem áður voru gerðir. Sú mikla hækkun, sem gekk yfir á landbúnaðarafurðum nú fyrir stuttu, þýddi, að verðlagsgrundvöllur landbúnaðarafurða hækkaði um 11.4%. Það var mikið, það er rétt. En hvernig eru þessi 11.4% samansett? Það hefur komið áður fram á Alþ., og má gjarnan endurtaka það. Af þessum 11.4%, sem verð á landbúnaðarafurðum átti að hækka um að meðaltali, stöfuðu 7.9% eingöngu af því, að það varð að hækka laun bóndans nákvæmlega til samræmis við það, sem laun annarra vinnandi stétta í landinu höfðu hækkað um. 7.9% af þessu voru þannig til komin. Og 1.3% stöfuðu eingöngu af hækkun á fóðurvörum erlendis frá. M, ö. o.: 9.2% af 11.4% stöfuðu af því, að það átti að reikna inn í landbúnaðarvöruverðið samkv. lögum og samningum erlenda verðhækkun á fóðurvörum og laun samkv. því, sem samningar sögðu til um. Auðvitað hefði verið miklu betra fyrir alla að fá 6% hækkun á grunnkaup 1. marz og þar að auki 7% hækkun vegna vísitölu, fá 13% kauphækkun og þurfa ekki að borga neina verðhækkun um leið. En það vissu allir, sem stóðu að því að framkvæma þessa kauphækkun 1. marz, að það hlaut að leiða af henni einni kauphækkun til annarra stétta í landinu samkv. gerðum samningum. Því þurfti þessi hækkun á landbúnaðarvörum ekki að koma neinum á óvart. Og ég vil segja í sambandi við það, sem hér hefur áður komið fram, að það er gersamlega þýðingarlaust fyrir stjórnarandstöðuna að ætla að kenna núv. ríkisstj. um þær verðhækkanir, sem hafa verið að ganga yfir í íslenzku þjóðfélagi að undanförnu og stafa af erlendum verðhækkunum eða hljóta eðlilega að fylgja í kjölfar almennra kauphækkana. Það er ekkert annað en neita staðreyndum að neita því, að þessar verðhækkanir hljóti að ganga yfir.
Það er auðvitað enginn vafi á því, að við búum hér við verðmyndunarkerfi á Íslandi, sem er verulega gallað, sem spinnur upp á sig í ýmsum tilvikum og hækkar hér innanlands verðlag umfram það, sem það þyrfti að hækka. Það er rétt. En það hefur ekki reynzt auðvelt að leiðrétta það kerfi, og þeir ættu a. m. k. ekki að ásaka okkur mikið fyrir það kerfi, sem skildu það eftir sig og létu okkur þetta í té. Ég er ekki í neinum vafa um, að í tíð núv, ríkisstj. hefur verið staðið svo gegn margvíslegum verðhækkunum í landinu, sem krafizt hefur verið, að fram næðu að ganga, að það verður varla gengið miklu lengra, enda er óspart ýtt undir það af stjórnarandstöðunni að knýja fram sem mestar verðhækkanir hjá þeim, sem gerast þar kröfuharðastir.
Við þurfum í rauninni ekki að vera neitt hissa á því, þó að þessar verðhækkanir hafi gengið yfir. Þær eru sumpart, eins og ég hef bent á, til komnar af ástæðum, sem við höfum ekki getað ráðið við, og það er vægast sagt ljótur leikur að ætla að ala hér á óánægju á milli framleiðenda og neytenda í sambandi við verðlagninguna á landbúnaðarafurðum eða þær hækkanir, sem þar hafa gengið yfir, því að það er enginn vafi á því, að það er rangt, sem hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason sagði, að verð á íslenzkum landbúnaðarvörum væri orðið óeðlilega hátt. Ef við berum verðið á þeim saman við verð á landbúnaðarvörum í nálægum löndum, er ekki hægt að segja, að verð á mjólk og öðrum landbúnaðarafurðum á Íslandi sé hátt.
En þessu heldur auðvitað áfram. Sjálfstæðismenn koma til með að halda áfram sinni göfugu baráttu um stétt með stétt á þennan sérkennilega hátt, sem þeir eru að vinna að núna, og Alþfl. kemur til með að prédika fyrir ykkur sína nýju landbúnaðarstefnu, sem á eftir að frelsa allt saman. Það kemur eflaust einhvern tíma að því, að Alþfl. fái að framkvæma þessa ágætu stefnu, en hann verður að sætta sig við það í dag, að ákaflega fáir trúa á þessa landbúnaðarstefnu Alþfl.