26.03.1973
Neðri deild: 70. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2779 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Það tekur því ekki að eyða löngum tíma hér í umr. við þá viðreisnarfélaga, hv. 1. þm. Sunnl., Ingólf Jónsson, og hv. 7. þm. Reykv., Gylfa Þ. Gíslason. Þeir eru afskaplega skemmtilegt par að ræða við, ekki sízt þegar landbúnaðarmál ber á góma, en þeir hafa lengi komið sér saman um að reka ákveðna pólitík í þeim efnum, þótt Gylfi hafi haft sinn hátt á þar og Ingólfur auðvitað haft svolítið annað áralag á stundum. En málflutningur þessara ágætu þm. er býsna furðulegur.
Hv. 7. þm. Reykv. kemur hér auðvitað með ákæruskjal og segir: Þeir lofuðu að efla hag útgerðarinnar, bátanna, frystihúsanna, iðnfyrirtækja, og allt tapar þetta. Allur atvinnurekstur tapar, útgerð, iðnaður, og að sjálfsögðu tapar landbúnaðurinn. — Hv. 1. þm. Sunnl. kemur svo og segir: Það þýðir ekkert að halda því fram, að kaupmáttur launa hafi farið vaxandi, það er ekkert að marka þessa útreikninga. Menn hljóta að finna þetta á buddunni sinni, segir hann. Launþegar tapa. — Auðvitað slæðist það út úr Gylfa í leiðinni, að þjóðartekjurnar hafi aukizt í tíð þessarar stjórnar um 18%. Má maður kannske spyrja um það, hver græði. Hver er það, sem græðir? Vill Gylfi segja það? Það væri gaman að heyra það. Allur atvinnurekstur, allir launþegar, allir tapa, en þjóðarbúið græðir.
Nei, svona skollaleikur þýðir auðvitað afskaplega lítið fyrir þessa hv. þm. Það þýðir ekkert að neita því, að útreikningar sýna það, svo að ekkert fer á milli mála, að kaupmáttur launa hefur farið verulega vaxandi að undanförnu, og það þýðir ekkert að afsaka það með því, að nú hafi kaupið hækkað og síðan hækki verðlag og menn verði að bíða eftir næstu kauphækkun í 3 mánuði. Ætli það hafi ekki verið þannig um langan tíma, að vísitalan hafi verið reiknuð út með þeim hætti? Ætli það sé eitthvað nýtt? Er það einhver ný sönnun í málinu?
Hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason getur auðvitað gert sig að athlægi og þotið til og trúað því, sem einstakir atvinnurekendur segja í vissum tilfellum, að allir séu að tapa. Ég hygg, að hvað svo sem líður tilraunum vissra manna til þess að halda hér uppi óraunhæfu verkfalli á togaraflotanum, þá hafi áhugi manna á að kaupa togara sýnt svolítið annað. Ágætir reikningar liggja fyrir frá ákveðnum togarafélögum, sem sýna allt annað en tap. Ég held líka, að þeir samningar, sem útgerðarmenn hafa staðið að því að gera á frjálsum samningsgrundvelli um kjör sín, séu ekki þannig, að útgerðin í landinu þurfi almennt að kvarta. En það er til samræmis við annað, að þegar þeir Alþfl.-menn eru búnir að halda fyrirlestur af þessu tagi, sem Gylfi var með, að allar greinar útgerðarinnar og atvinnurekstrarins í landinu tapi, tileinka þeir mér sérstakan leiðara í Alþýðublaðinu, sem lesinn er yfir landslýðnum, að ég sé sérstakur ráðh. útgerðarauðvaldsins í landinu og sé alltaf að berjast fyrir hagsmunum þess. Svona er málflutningur þessara manna yfirleitt. Og eftir svona upphlaup eins og hér hefur verið gert koma þeir, eins og hv. 1. þm. Sunnl., og segja, að það sé illa gert — og beinir því að sjálfsögðu til ríkisstj. — að vera að koma húsmæðrunum af stað á þennan hátt, eins og nú er gert. Auðvitað er það ríkisstj. að kenna, að húsmæðurnar hér í Reykjavík hafa haldið fund fyrir utan alþingishúsið. Auðvitað hefur ríkisstj. staðið fyrir þessu öllu saman. Þetta er eitt af hennar strikum, segir Ingólfur Jónsson. Ja, það er illa gert. Sjálfstfl. — eða hans stuðningsmenn — á þarna auðvitað enga hlutdeild að.
Það er rétt, sem kom fram hjá hv. 1. þm. Reykv., Jóhanni Hafstein, hann saknaði þess í fyrri ræðu minni, að ég minntist ekki neitt á þær hækkanir, sem við Íslendingar höfum orðið aðnjótandi í sambandi við útflutningsvörur okkar. Það er alveg rétt. Það er ekki þannig, að það hafi aðeins hækkað verð á innfluttum vörum til landsins, eins og þó var alveg ómótmælanlegt. Verð á útflutningsvörum okkar hefur líka hækkað — hækkað mikið. Það er rétt, að fiskmjölið og loðnumjölið, sem við erum nú að selja úr landi, seljum við á 100% hærra verði en við seldum sams konar vöru á s. l. ári. Við njótum þess nefnilega einnig, ef verð á fóðurvörum fer hækkandi í heiminum. Verð á mjög mörgum útflutningsvörum okkar hefur hækkað nú um skeið á milli 20 og 30%, og að sjálfsögðu gefa þessar verðhækkanir okkur möguleika til þess að mæta þeim vanda, sem við mætum vegna hækkandi innflutningsverðs. En þessar verðhækkanir eru með þessum sérstaka hætti, að það er upplagt að skamma ríkisstj, fyrir verðhækkanir á vörum erlendis, sem við erum að kaupa, en það dettur auðvitað engum í hug að þakka ríkisstj. fyrir hækkun á okkar útflutningsvörum. Það er hægt að láta það liggja á milli hluta.
Það, sem ég vildi benda á, var, að miklar verðhækkanir, sem við fáum ekki ráðið við, hafa gengið yfir okkar þjóðarbúskap og það hefur verið reynt að gera gagnráðstafanir til þess að láta verðlagshækkanir hér innanlands verða sem minnstar, standa gegn kröfum um verðhækkanir. Við höfum eigi að síður ekki getað ráðið við það, að verðlag hækkaði nokkuð. Þó hefur verðlag innanlands tvímælalaust hækkað minna í tíð núv. ríkisstj. en í tíð fyrrv. ríkisstj., þrátt fyrir þessar ytri aðstæður. Þetta er það, sem er mergurinn málsins.
Ég vil nú ætla, að eftir þær umr., sem hér hafa farið fram í dag, komi þeir sér saman um það, Gylfi Þ. Gíslason og Ingólfur Jónsson, að leggja niður skottið og hætta þessum tiltektum í sambandi við kröfugerð varðandi hækkandi landbúnaðarvöruverð.