27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2792 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)
299. mál, verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvara
Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson) :
Herra forseti. Á þskj. 335 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. landbrh. um verðlagsgrundvöll landbúnaðarvara. Fsp. er borin fram síðari hluta febr., en kemur nú loks til umr. hér í hv. Alþ. 27. marz. Á þessum tíma hefur það gerzt, eins og kunnugt er, að nýtt verð hefur tekið gildi á landbúnaðarvöru frá 1. marz s. l., og þann sama dag komu þessi mál til umr. hér á Alþ. utan dagskrár. Enn fremur komu verðlagsmál landbúnaðarins eða verðhækkanir á landbúnaðarvörum til umr. hér á hv. Alþ. í gær. Ýmsir kynnu að ætla, að þessi fsp. væri því orðin úrelt. Svo er þó ekki, og er orsökin sú, að hinn nýi verðgrundvöllur búvara, sem upphaflega átti að taka gildi 1. sept. s. l. hefur enn ekki séð dagsins ljós og virðist nú hafa verið frestað í hið þriðja sinn frá þeim tíma og að þessu sinni til næsta hausts. Þær verðhækkanir, sem urðu á búvörum hinn 1. marz s. l., eru einungis framreikningur á gamla grundvellinum, bein afleiðing af þeirri verðbólguþróun, sem geisað hefur í þjóðfélaginu hina síðustu mánuði. Í þeim felast ekki beinar hagsbætur fyrir bændastéttina, heldur er hér um að ræða einn ávöxtinn af hinum mjög svo verðbólguhvetjandi verkum hæstv. ríkisstj., en ýmis slíkir ávextir munu falla til jarðar á næstu mánuðum, ef að líkum lætur.
Það er rétt að ítreka það, sem fram kom í umr. um þessi mál hér á Alþ. í gær, að þær verðhækkanir, sem urðu á landbúnaðarvörum 1. marz eru fjarri því að vera meiri en verðhækkanir á öðrum vörum, og eins og kom fram í umr. í gær, er ekki ástæða til þess fyrir húsmæður að draga við sig kaup þessara vara af þeim orsökum, vegna þess að aðrar vörur hafa yfirleitt hækkað meira.
Ef einhver kynni að ætla, að hér væri misskilningur af minni hálfu um það atriði, að hinn nýi verðgrundvöllur hafi enn ekki tekið gildi, vil ég leyfa mér að vitna til tveggja manna, sem þessi mál þekkja bezt.
Hinn 1. marz sagði hæstv. landbrh. hér á Alþ., með leyfi hæstv. forseta:
„Í fyrsta lagi vil ég geta þess, að engin breyting hefur verið gerð á verðgrundvelli landbúnaðarvara. Sú grundvallarbreyting, sem réttur var til að framkvæma s. l. haust, verður ekki gerð fyrr en á næsta hausti“.
Um þessa frestun verðgrundvallarins segir formaður stéttarsambands bænda í Tímanum hinn 9. marz s. l. m. a. svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Í fyrsta lagi vil ég minna á, að endurskoðun á launakjörum og verðgrundvelli landbúnaðarvara fór síðast fram haustið 1970, en á árinu 1971 voru gerðir almennir launasamningar hjá öðrum stéttum, sem fólu í sér mjög verulegar kjarabætur þeim til handa, og það var gert ráð fyrir því, að bændur fengju hliðstæðar leiðréttingar á kjörum sínum við verðlagssamninga á árinu 1972, sem áttu að fara fram 1. sept. s. l. Með brbl., sem sett voru 11. júlí í fyrrasumar af ríkisstj., var þessi réttur tekinn af bændasamtökunum og frestað til áramóta að framkvæma þessa samninga. Vegna erfiðleika, sem þá voru yfirvofandi og að gerast, þar sem gengisbreytingin var nýafstaðin, þá varð það að samkomulagi í 6 manna n., sem hefur þessa samningagerð með höndum, að fresta gerð nýs grundvallar þann 1. marz. Síðar hafa enn gerzt ýmsir atburðir, sem gert hafa þetta erfitt í framkvæmd.“
Það væri fróðlegt að fá fram í svörum hæstv. ráðh., hvaða atriði það eru, sem hafa komið í veg fyrir, að þessi nýi grundvöllur, sem formaður Stéttarsambands bænda hefur lýst, að bændur hafi rétt á að fá, fékkst ekki. Það hefur komið fram hjá forustumönnum bændasamtakanna, að bændur áttu inni verulegar leiðréttingar á grundvellinum vegna hækkana á fjármagnsliðum. Um þetta segir formaður Stéttarsambands bænda m. a., „að engin breyting hafi orðið á magntölum í verðlagsgrundvelli, sem bændur höfðu þó óskað til þess að fá eðlilegar leiðréttingar og þ. á m. teknar inn breytingar á fjármagnskostnaði við búvöruframleiðsluna, sem eru orðnar gífurlega miklar á undanfarandi tímabili.“ Hér á formaðurinn við, að frá því að núverandi verðgrundvöllur tók gildi 1970, hafa orðið svo gífurlegar verðlagshækkanir í landinu og fjármagn það, sem bundið er í stofnkostnaði við búvöruframleiðsluna, hefur hækkað gífurlega mikið. (Forseti: Þm. hefur talað í 5 mínútur). Ég skal ljúka máli mínu. — Nægir þar að minna á fasteignir og vélar og ýmsa aðra liði.
Í framhaldi af þessu vil ég beina þeim spurningum til hæstv. ráðh., hverju sæti þessi mikli dráttur á gerð grundvallarins og hverjar séu orsakir þess, að grundvöllurinn hefur ekki enn séð dagsins ljós.