27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2796 í B-deild Alþingistíðinda. (2159)

299. mál, verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvara

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég verð að gera hæstv. forseta það til leiðinda að taka til máls, en reyni að vera ekki nema 2 mínútur að þessu sinni.

Hæstv. landbrh. sagði, að þess hefði verið gætt, að bændur fengju verðhækkanir á búvörunni í samræmi við hækkanir á launum annarra stétta og rekstrarkostnaði. Hvers vegna var þess gætt? Það eru bein lagaákvæði frá 1966, að þannig skyldi það vera, og reyndar í eldri lögum líka, frá 1960. Lögin hafa ekki verið brotin. En hvernig hefði farið fyrir bændum, ef frv. hæstv. landbrh. hefði verið samþ., sem hann lagði fram á haustdögum 1971, þar sem gert var ráð fyrir að semja um búvöruverðið við ríkisstj. Breyta átti þeim lögum, sem tryggja, að hagsmunir bænda séu ekki fyrir borð bornir. Hæstv. ríkisstj. hefur ekki séð sér fært að brjóta þau lög.