27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2796 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)

299. mál, verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvara

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Það er viðurkennt af formanni Stéttarsambands bænda og fulltrúum bænda í 6 manna n., að þessi fullyrðing hæstv. landbrh., sem áður hefur komið fram í Tímanum, á ekki við rök að styðjast. Það var ekkert gert 1. sept. 1971 annað en það, sem sjálfsagt var að gera og hver ríkisstj. sem hefði verið í landinu var bundin af. Þess vegna var það ekki rétt, sem hæstv. ráðh. sagði.