27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2804 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)
203. mál, framlagning gagna við Alþjóðadómstóllinn
Tómas Karlsson:
Herra forseti. Það er athyglisverð ummæli, sem hv. 5. þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen lét falla í umr. um þessa fsp. Hv. þm. Gunnar Thoroddsen taldi mjög mikilvægt, að þessum yfirlýsingum, sem einhverjir ráðherrar höfðu gefið í sambandi við umr. um landhelgissamningana 1961 hér á hv. Alþ. og birtar munu vera í Alþt., hefði verið komið til skila við Alþjóðadóminn eða á þeim vakin athygli þar. En ég vil benda hv. þm., sem átti sæti í þeirri ríkisstj., sem fór með þetta mál 1960 og 1961, á það, að hér stóð þá upp ráðherra í ríkisstj., sem þetta mál heyrði undir, og svaraði fsp. utan dagskrár og á dagskrá frá hv. þm. aðra hverja viku eða svo, allan þann tíma sem hann átti í samningaviðræðum við brezk stjórnvöld um þetta mál, og sagði, að það væri ekki fótur fyrir því, að neins konar samningaviðræður færu fram og engin orðsending eða bréfaskipti ættu sér stað á milli íslenzku og brezku ríkisstjóraanna. Hv. þm. Gunnar Thoroddsen vissi auðvitað mætavel eins og aðrir ráðherrar í þeirri ríkisstj., að þessi ráðherra fór þar með ósannindi. Og það var yfirleitt ekki mikið að marka yfirlýsingar íslenzkra ráðherra á þeim tíma um þetta mál. En þessar yfirlýsingar allar eru líka birtar í Alþt., og það má fletta upp á þeim. Og það er vitað, að þau skjöl og bréf, sem þá fóru á milli, fengust ekki birt.
Það er kokhreysti, segi ég, af hv. 1. þm. Reykv. að koma svo hér í ræðustól og segja, að það beri vott um sérstakt örlyndi hans, að hann hafi fallið frá ósk um að fá nákvæmar skýrslur um það, sem hefur mína farið fram milli íslenzku ríkisstj. og þeirrar brezku um leit að bráðabirgðasamkomulagi í deilunni við Breta. Ég tel það kokhreysti að kalla það sérstakt örlyndi, því að þær umr. hafa farið fram meira og minna fyrir opnum tjöldum og utanrmn. og landhelgisnefndinni hefur af utanrrh. verið gerð grein jafnóðum fyrir þeim umr. og því, sem þar hefur farið fram.