27.03.1973
Sameinað þing: 63. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2812 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)
58. mál, vegagerð í Mánárskriðum
Gunnar Gíslason:
Herra forseti. Sem meðflm. þessarar till. vil ég leyfa mér að þakka hv. allshn. Sþ. fyrir afgreiðslu málsins. Ég get mjög vel fallizt á þá brtt., sem er borin fram við till., og ég vænti þess, að samþykkt þessarar till. muni leiða til þess, að Siglufjörður komist í enn betra vegasamband en þegar er.