16.10.1972
Efri deild: 3. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (22)

3. mál, bygging og rekstur dagvistunarheimila

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Ég vil þakka undirtektir hv. þm., sem hér hafa talað, við meginatriði þessa máls og vænti, að þær undirtektir séu forboði þess, að málið hljóti greiða afgreiðslu. En að sjálfsögðu eru í því eins og flestum öðrum málum, sem hér er um fjallað, ýmis álitaatriði og drap hv. 2. þm. Reykv. á nokkur þeirra. Ég tel það vel farið, að einmitt þegar þetta mál er á döfinni hér á þingi, þá skuli liggja fyrir niðurstöður af könnun á þörfinni fyrir dagvistunarstofnanir í Reykjavík, og vissulega væri, eins og hv. þm. gat um, æskilegt, að tilsvarandi tölur um eftirspurn næðu yfir stærra svæði, helzt landið allt. En það er nú ekki eins auðvelt að koma við slíkri könnun eins og í einu borgarfélagi, þótt stórt sé að vísu, og svarið við spurningu hans, hvort menntrn. hafi gengizt fyrir könnun á landsmælikvarða á eftirspurninni eftir dagvistunarheimilum fyrir börn, er það, að slíkt hefur ekki verið gert. Af þeim efnisatriðum, sem hv. þm. fjallaði um, skiptir eitt mestu máli. Það er, hvort gera ber ráð fyrir, að ríkisframlög taki bæði til stofnkostnaðar og rekstrarkostnaðar dagvistunarheimila. Þetta getur vissulega verið álitamál, og að minni hyggju er ekki aðeins um það að ræða að taka annað hvort báða liðina upp í frv. og væntanleg lög á sama grundvelli eða sleppa öðrum hvorum, heldur einnig að hafa báða liðina, en með mismunandi áherzlu. Sem sagt, hugsanlegt er, að framlag til rekstrarkostnaðar yrði að vísu haft með í frv., en miðað við, að það kæmi ekki til framkvæmda, fyrr en stofnframlög þættu hafa bætt úr brýnustu þörfinni fyrir ný dagvistunarheimili.