28.03.1973
Efri deild: 79. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2832 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

195. mál, happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Frsm. (Ragnar Arnalds) :

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til athugunar frv. um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Hér er um að ræða að framlengja þá heimild, sem Dvalarheimili aldraðra sjómanna hefur haft til happdrættisrekstrar, og efnisbreytingar frá núgildandi lögum um þetta efni eru engar aðrar en að framlengja þær heimildir, sem fyrir voru.

N. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt.