28.03.1973
Efri deild: 79. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2832 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)

201. mál, happdrætti Háskóla Íslands

Frsm. (Ragnar Arnalds) :

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til athugunar frv. til l. um stofnun happdrættis fyrir Ísland. Frv. er flutt af ríkisstj. að beiðni háskólarektors, og eins og það kom frá háskólanum fól það fyrst og fremst í sér framlengingu heimildar til happdrættisrekstrar til ársins 1989, en núv. heimild rennur út í lok þessa árs, og er um að ræða framlengingu í 15 ár. Jafnframt er hlutamiðum fækkað úr 65 þús. í 60 þús., þar eð ekki var talin þörf á þeirri tölu, sem er í núgildandi lögum, — er sem sagt breyting, sem enga efnislega þýðingu hefur.

Dómsmrn. sendi n. bréf og benti á nokkrar æskilegar breytingar, sem rétt væri að gera til viðbótar þeim breytingum, sem háskólarektor hafði bent á, og lét þess getið, að rn. hefði ekki talið rétt að gera þær breytingar á frv., eins og það kom frá háskólanum, fyrr en búið væri að sýna frv. frá háskólarektor. Þessar aths. rn. eru allar minni háttar og eru fyrst og fremst í því fólgnar að samræma lagaákvæði um þetta efni breyttum aðstæðum. N. flytur þessar brtt. allar á þskj. 431 og þá um leið þá till., að fyrirsögn frv. verði breytt og það nefnist: Lög um Happdrætti Háskóla Íslands.

Það skal tekið fram að með þessum till. er felld niður 2. gr. núgildandi laga. Í henni segir eitthvað á þá leið, að þegar ekki verði lengur not fyrir tekjur af happdrættinu í þágu Háskóla Íslands, þá skuli tekjur af happdrættinu renna til sérstaks sjóðs, sem nefndur er Byggingarsjóður og ætlaður er til að standa undir uppbyggingu ríkisstofnana. Dómsmrn. benti á, að þetta ákvæði, sem er frá því 1933, væri algerlega úrelt og það væru engar horfur á því, að háskólinn þyrfti ekki á þessum tekjum að halda. En ef svo færi, að hann þyrfti ekki á þeim að halda, væri hægt að breyta því þegar þar að kæmi. Er því lagt til, að þessi gr. verði felld niður.

N. leggur sem sagt til, að frv. verði samþ. með brtt. á þskj. 431.