29.03.1973
Efri deild: 80. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2855 í B-deild Alþingistíðinda. (2238)

3. mál, bygging og rekstur dagvistunarheimila

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Síðasti ræðumaður kom nokkuð inn á það, sem ég vildi sagt hafa og get ég þess vegna verið stuttorður. Ég tel, að afstaða mín í þessu máli hafi verið skýlaus. Það kom fram á nefndarfundum, að ég vildi gjarnan, að hægt væri að hækka stofnkostnaðarhluta ríkisins, og um það vorum við fleiri sammála, og vel kæmi til greina, að rekstrarkostnaðarhluti af hálfu ríkisins væri því minni. Þessi till. var samþ. í gær, og ég er ekki svo öruggur í þingsköpum, að ég geti fullyrt, en forseti mun þá athuga það, hvort hægt er að koma með brtt. beint í kjölfarið, sem gengur skemur og kippir því til baka strax við 3. umr. Ég beini því til forseti, hvort hægt er að gera slíkt.

Varðandi brtt. á þskj. 461 frá Ragnari Arnalds, sem hann gerði hér grein fyrir áðan, þá er ég honum sammála um þá viðbót, sem þar er. Ég var hins vegar á því og tel það rétta stefnu, sem ég veit ekki annað en hæstv. fjmrh. sé aðili að, að það sé ekki rétt að ávísa á ríkissjóð með samþykkt á byggingarkostnaði félagsheimila og láta svo fjmrh. eða fjárveitingavaldið síðar glíma við þá ávísun, heldur sé tryggt fyrirfram, að fjármagnið sé fyrir hendi, því að vel mætti hugsa sér, að hæstv. menntmrh. stimplaði æðimargar umsóknir, rétt áður en hann færi, og ávísaði þá á komandi ráðh. Fyrir þennan leka vil ég setja, vegna þess að það er hollt fyrir fjvn. og Alþ. að hafa á hreinu, hve mikið fjármagn á að fara í þessar byggingar. Hitt er svo annað mál, að ég vil ekki hefta þá aðila, sem hafa góða og örugga lánfjárútvegun, í að geta hrundið sínum byggingum í framkvæmd. En nauðsynlegt er að hafa þessi mál á hreinu. Ef það er rétt skilið, að viðbótartill. frá hv. 4. þm. Norðurl. v., Ragnari Arnalds, leysi þetta og geri þessum fjársterkari aðilum mögulegt að hefja framkvæmdir, þó án þess að ríkissjóður geti komið þegar inn í dæmið, þá get ég fallizt á það. En það þarf að vera algerlega á hreinu, eins og fyrri liður 15. gr. ber með sér, að ekki er heimilt að hefja framkvæmdir, fyrr en fé hefur verið veitt í fjárl. Við höfum framkvæmt það þannig nú í skólakostnaðarl., að byrjunarfjárveiting, þótt að ekki sé nema 50 þús. eða 100 þús., er afgreidd í fjvn., og þar með er búið að samþykkja framkvæmdina. Hins vegar ef einhver aðili er svo sterkur í sambandi við dagvistunarheimilin, skóladagheimilin, að hann geti fjármagnað þetta á stuttum tíma á þann hátt, sem brtt. gerir ráð fyrir, þá vil ég ekki heldur hefta það. En ég tel óeðlilegt, að þessu sé vísað á ríkissjóð. án þess að um það liggi fyrir nokkur ákveðin regla.