29.03.1973
Neðri deild: 73. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2861 í B-deild Alþingistíðinda. (2261)

198. mál, sveitarstjórnarlög

Flm. (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Að beiðni stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga hef ég ásamt hv. þm. Ágúst Þorvaldssyni, Karvel Pálmasyni, Karli G. Sigurbergssyni, Stefáni Gunnlaugssyni og Ólafi G. Einarssyni leyft mér að flytja frv. um breyt. á sveitarstjórnarl., nr. 58 frá 29. marz 1961, á þskj. 380. Í grg. frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Forustumenn landshlutasamtaka sveitarfélaga hafa eindregið óskað þess, að Samband ísl. sveitarfélaga hlutaðist til um, að meðfylgjandi frv. fengist flutt og afgreitt á yfirstandandi þingi. Landshlutasamtök sveitarfélaga hafa verið stofnuð og hafa starfað í nokkur ár í öllum landshlutum utan Reykjavíkur. Þykir þeim og Sambandi ísl. sveitarfélaga tími til kominn, að tilvera þeirra verði staðfest í lögum og að í sveitarstjórnarl. séu ákvæði um þau. Að formi til felur frv. í sér viðauka við sveitarstjórnarl., nr. 58 frá 29. marz 1961, en efnislega hefur frv. að geyma ákvæði um landshlutasamtök sveitarfélaga, hver þau séu, um aðild að þeim, um hlutverk þeirra, um kosningu á aðalfund þeirra og um tekjur þeirra. Ákvæði frv. hagga í engu ákvæðum gildandi laga um einstök sveitarfélög og sýslufélög.“

Svo sem hv. þm. er kunnugt, hafa þegar verið stofnuð landshlutasamtök sveitarfélaga um land allt, eins og vikið er að í grg. stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga. Hér er um að ræða algerlega frjáls samtök sveitarstjórnarmanna sjálfra í viðkomandi landshlutum, sem þeir hafa átt frumkvæði um, en stjórn og forustuaðilar Sambands ísl. sveitarfélaga hafa stutt þessa þróun mála með ráðum og dáð, svo sem raunar kemur fram í ósk þessara aðila um flutning á þessu frv. Mér er ekki launung á því, að ég hef verið þess mjög hvetjandi, að sveitarstjórnarmenn í hinum ýmsu landshlutum byndust samtökum og var raunar framkvæmdastjóri slíkra samtaka um skeið. Ég er þeirrar skoðunar, að það hafi verið hárrétt stefna frá hálfu ríkisvaldsins og Sambands ísl. sveitarfélaga að hvetja til þess, að allt frumkvæði í þessum efnum kæmi frá heimamönnum með þeim hætti, sem varð. Á hinn bóginn tel ég nú brýna nauðsyn bera til þess, að hv. Alþ. staðfesti orðinn hlut og samræmi starfsemi landshlutasamtakanna með rammalöggjöf í samráði við þau sjálf og Samband ísl. sveitarfélaga, svo sem nú er freistað með flutningi þessa frv.

Það er ekki sízt nauðsynlegt að sníða þessum samtökum ákveðinn stakk í lögum vegna þess, að þróunarferli þeirra er nú þar komið, að löggjafinn ræðir í sívaxandi mæli um að fela þeim ákveðin verkefni til úrlausnar, og því er óhjákvæmilegt, að samræmdar séu að einhverju leyti reglur um þau, m. a. kjör fulltrúa á aðalfund eða þing samtakanna. Ég tel því, svo sem raunar hefur komið fram hér á hv. Alþ. og m. a. í ræðu hæstv. menntmrh., að það sé forsenda fyrir því að afgreiða grunnskólafrv., sem nú liggur fyrir hv. Nd., að þetta frv. verði að lögum. Margar aðrar ástæður liggja einnig til þess að hraða afgreiðslu þessa frv.

Þegar byggðaáætlanagerð hófst hér á landi á s. l. áratug, kom í ljós, að mikil þörf var á samstarfi sveitarfélaga í þeim landshlutum, sem sú áætlanagerð náði til, svo að heimamenn gætu samræmt sjónarmið sín um þróun landshlutans og komið sameiginlega fram við þær ríkisstofnanir, sem eðli málsins samkv. önnuðust áætlanagerðina. Þau vinnubrögð að taka upp byggðaáætlanagerð höfðu veruleg áhrif í þá átt, að landshlutasamtök sveitarfélaga urðu til. Enginn vafi er á því, að þetta upprunalega hlutverk landshlutasamtakanna að vera samstarfsvettvangur sveitarstjórnarmanna um mótun heildarstefnu í uppbyggingu einstakra landshluta verður um langa hríð eitt af meginverkefnum þessara samtaka. Það hefur því miður verið svo um marga áratugi, að skort hefur mjög á slíkt samstarf, en reipdráttur og hrepparígur einkennt um of samskipti sveitarfélaga á landsbyggðinni. Þetta hefur á stundum gengið svo langt, að staðið hefur fyrir eðlilegri þróun heilla landsfjórðunga. Einasta leiðin til þess að koma í veg fyrir, að slík mistök eigi sér stað, eru samtök heimamanna, sem ná yfir eðlilegt þróunarsvæði. Þar með er að sjálfsögðu ekki sagt, að fundin sé „patent“-lausn á öllum deilumálum milli sveitarfélaga og héraða innan landsfjórðunganna, heldur einungis að fundinn sé vettvangur til viðræðna og samstarfs. Það er áreiðanlega öllum ljóst, sem fylgzt hafa með samstarfi landshlutasamtaka sveitarfélaga, að þau hafa nú þegar unnið mikið stefnumótandi samræmingarstarf til eflingar hinna ýmsu landsfjórðunga, sem hefur komið að ómetanlegu gagni.

Á nýafstöðnum fundi fulltrúaráðs Sambands ísl. sveitarfélaga voru verkefni og staða landshlutasamtaka sveitarfélaga til umræðu. Fyrir fundinum lá ítarlegt nál, um málið. Þetta nál. var ekki útrætt á fundinum, en þar komu fram margar athyglisverðar hugmyndir. Fram kom í nál. og umr., að markmiðin með landshlutasamtökunum fælust í eftirfarandi: 1) Að auka sjálfsforræði byggðarlaga. 2) Að auka þátttöku fólks í stjórnun eigin mála. 3) Að bæta staðbundna þjónustu. 4) Að stuðla að uppbyggingu fjölbreyttara atvinnulífs um landið. 5) Að jafna búsetuskilyrði um landið.

Þótt flestir séu að líkindum sammála um þessi markmið, er jafnlíklegt, að menn greini á um leiðirnar. Ég vil þó leggja áherzlu á, að allir, sem fjallað hafa um það frv., sem hér liggur fyrir, eru sammála um, að rétt sé á þessu stigi að skilgreina hlutverk landshlutasamtakanna eins og segir í 1. gr. frv., þ. e. a. s. þeirri gr. sveitarstjórnarl., sem yrði 112. gr. þeirra l., ef frv. yrði að l., en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Hlutverk landshlutasamtakanna er: a) að vinna að sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaga og héraða í umdæmi sínu og landshlutans alls, b) að vinna að áætlanagerð varðandi landshlutana í samráði við Framkvæmdastofnun ríkisins, c) að vinna að öðrum verkefnum samkv. lögum, d) að vinna að framkvæmdum á samþykktum aðalfundar samtakanna og annast almennt ráðgjafastarf í þeirra þágu.“

Ég endurtek, að um þessa skilgreiningu á hlutverki landshlutasamtakanna eru allir sammála á þessu stigi. Menn gera þá ráð fyrir, að verkefnaþróun samtakanna fari eftir því, sem þeim verður gert samkv. öðrum lögum eða að þessum l. verði breytt, þegar ástæður þættu til og reynsla af starfi samtakanna orðin meiri. Í þessu sambandi vil ég fara fáeinum orðum um nokkrar þær hugmyndir, sem fram hafa komið um frekari þróun og verkefnaskiptingu ríkis og landshlutasamtaka sveitarfélaga og einstakra sveitarfélaga.

Líklegt virðist, að við endurskoðun laga um opinbera starfsemi og framkvæmdir verði vaxandi tilhneiging til þess að dreifa valdi í landinu, líkt og hugmyndin er í grunnskólafrv. Við þessu má búast á sviði skipulagsmála, heilbrigðis-, vega- og hafnamála, svo að nokkuð sé nefnt. Það er ekki vafi á því, að æskilegt væri að tengja deildir ríkisstofnana, sem þannig yrðu til á landsbyggðinni, starfsemi framkvæmdastofnana landshlutasamtakanna og koma þannig á fót þjónustumiðstöðvum um landið, eftir því sem við verður komið. Enn fremur kæmi til greina að fela landshlutasamtökum ákveðin verkefni, sem endanlega yrðu útkljáð hjá þeim. Sem dæmi mætti þar um nefna fasteignamat og fasteignaskráningu. Margt fleira mætti minna á í þessu efni, en þar sem þessi mál eru öll í deiglunni, m. a. hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga, og eins og ég sagði áðan, þetta frv. fjallar ekki um þessi framtíðahlutverk, heldur um þau verkefni, sem ég gat um áðan og eru raunar einungis staðfesting á því, sem landshlutasamtökin vinna nú að, sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um þetta efni, nema sérstakt tilefni gefist til.

Þá vil ég gera örstutta grein fyrir einstökum gr. í þeim kafla sveitarstjórnarlaga, sem frv. nær til, ef að lögum yrði.

Fyrst er sú gr., sem yrði 110. gr. Í 1. mgr. þessarar gr. eru landshlutasamtökin talin upp. Umdæmi þeirra eru einstök kjördæmi nema á Norðurlandi, þar sem Fjórðungssamband Norðlendinga nær yfir bæði kjördæmin. Reykjavíkurborg er utan við landshlutasamtökin, enda eina sveitarfélagið, sem er sérstakt kjördæmi, en rétt þótti, að kveðið væri á um, að ákvæði frv. giltu um Reykjavíkurborg, eftir því sem við ætti. Sýnist þar einkum koma til greina ákvæði b-liðs 112. gr. frv. um áætlanagerð.

Í 1. mgr. 111. gr. felst, að öllum sveitarfélögum er skylt að eiga aðild að landshlutasamtökum. Reyndar er það svo, að langflest sveitarfélög eru þegar orðin aðilar að samtökunum og í sumum umdæmum öll sveitarfélög. Samkv. lögum er öllum sveitarfélögum skylt að eiga aðild að sýslufélögum, og sýnist ekki ástæða til annars en sama regla gildi um aðild að landshlutasamtökum.

Í 2. mgr. 111. gr. er ákvæði um heimild til að veita sýslufélögum aðild að landshlutasamtökunum. Rétt þótti að hafa slíka heimild í frv. til samræmis við gildandi ákvæði laga sumra landshlutasamtakanna, sbr. og 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða og 4. mgr. 113. gr. um kosningu fulltrúa sýslufélaga.

Í 112. gr. er hlutverk landshlutasamtakanna talið í 4 stafliðum, eins og ég nefndi raunar áðan. Er það í samræmi við gildandi lög og samþykktir landshlutasamtakanna, sbr. og 10. gr. l. nr. 93 frá 1971, um Framkvæmdastofnun ríkisins.

Í 113. gr. eru ákvæði um, hvernig háttað skuli kosningu á fulltrúum sveitarfélaganna á aðalfundi landshlutasamtakanna svo og á fulltrúum sýslufélaga, þar sem þau eiga aðild. Í 3. mgr. er einstökum sveitarfélögum heimilað að ákveða fulltrúafjölda með öðrum hætti en samkv. aðalreglunni í 2. mgr., enda staðfesti ráðh. ákvæði í samþykktum þar um. Er þetta talið nauðsynlegt, til þess að unnt verði að taka tillit til breytilegra aðstæðna í landshlutunum.

Í 114. gr. eru ákvæði um yfirstjórn samtakanna, stjórn þeirra og kosningu stjórnar. Vegna mismunandi aðstæðna í landshlutunum þykir ekki rétt að fastákveða fjölda stjórnarmanna, en gert ráð fyrir, að hann verði ákveðinn í samþykktum einstakra landshlutasamtaka.

115. gr. þarfnast ekki skýringa.

Í 116. gr. felast meginákvæði um landshlutasamtök sveitarfélaga. Eru í þessari gr. ákvæði um, að einstök landshlutasamtök setji sér samþykktir eða lög, þar sem nánar verði kveðið á um skipulag og stjórn hverra landshlutasamtaka. Enn fremur verði í samþykktum kveðið á um gerð fjárhagsáætlana og ársreikninga, endurskoðun reikninga þeirra, starfssvið framkvæmdastjóra samtakanna og önnur atriði, sem þurfa þykir. Í gr. eru ákvæði um, að ráðh. staðfesti samþykktir hinna einstöku landshlutasamtaka, til að tryggja, að þau séu í samræmi við lög og að sem mest samræmi verði milli samþykkta einstakra landshlutasamtaka. Þá verði samþykktir birtar í Stjórnartíðindum.

Í ákvæði til bráðabirgða þótti rétt að setja landshlutasamtökunum frest til endurskoðunar samþykkta sinna eða laga til samræmis við ákvæði frv., ef að lögum verður, og þykir þessi frestur hæfilegur til ársloka 1974.

Í 1. mgr. 111. gr. er gert ráð fyrir skylduaðild einstakra sveitarfélaga að landshlutasamtökunum. Rétt þykir þó, sbr. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða, að veita þeim sveitarfélögum, sem standa utan við landshlutasamtökin við gildistöku laga þessara, frest til aðildar, enda sé þeim þá heimilt að fela fulltrúa sýslunefndar, sbr. 2. mgr. 111. gr., að fara með umboð sitt á aðalfundum landshlutasamtakanna til loka kjörtímabils sveitarstjórna 1978, þ. e. a. s. til vors 1978.

Herra forseti. Ég tel, að þetta frv. sé áfangi í þá átt að gera það kleift að færa aukið vald um eigin málefni til fólksins í hinum ýmsu landshlutum. Frá því sjónarmiði, að unnt sé að vinna markvisst að þessu stefnumarki í nánustu framtíð, er brýn nauðsyn að hraða afgreiðslu þessa frv. sem mest hér á hv. Alþ. hví vil ég mjög mælast til þess við báðar hv. d. þingsins, og þær n., sem fá frv. til fyrirgreiðslu, að reynt verði að hraða afgreiðslu þess, þar sem nú er mjög liðið á þingtíma, og þess fastlega vænzt af þeim aðilum, sem beita sér fyrir flutningi frv., að það verði að lögum á þessu þingi.

Ég vil að lokum lesa upp shlj. ályktun nýafstaðins fundar fulltrúaráðs Sambands ísl. sveitarfélaga um þetta frv.:

„21. fulltrúaráðsfundur Sambands ísl. sveitarfélaga, haldinn í Reykjavík 27. og 28. marz 1973, beinir þeim eindregnu tilmælum til hv. Alþ. að samþykkja á þessu þingi framlagt frv. til l. um breyt. á sveitarstjórnarl., um landshlutasamtök sveitarfélaga. Fundurinn bendir á nauðsyn þess, að samtökin öðlist stað í lögunum, þar sem þeim hafa nú þegar verið falin þýðingarmikil verkefni í lögum og gert er ráð fyrir auknu hlutverki þeirra í fyrirliggjandi lagafrv. Loks skal bent á mikilvægi landshlutasamtakanna í málefnum byggðaþróunar í landinu:

Þessi till. var einróma samþykkt á nýafstöðnum fulltrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga.