30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2909 í B-deild Alþingistíðinda. (2298)
179. mál, sjónvarp á sveitabæi
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Ég er einn af flm. þeirrar till., sem hv. 1. flm., 5. þm. Vestf., hefur nú gert glögga og ítarlega grein fyrir, og er því ekki þörf á að segja margt í viðbót við það. Það hefur yfirleitt verið talið, að stefna bæri að því markmiði, því meginmarkmiði, að allir þegnar íslenzku þjóðarinnar nytu sambærilegra kjara og byggju við sem jafnasta aðstöðu, hvar sem þeir væru búsettir á landinu. Oft hefur þetta markmið þó verið meira viðhaft í orði en á borði. Á síðari árum hafa augu manna á hinn bóginn opnazt æ betur fyrir þeim geigvænlegu vandamálum, sem leitt getur af óheppilegri byggðaröskun í landinu. Íslendingum fjölgar ár frá ári. Að undanförnu hafa nokkrar byggðir landsins lagzt í auðn af ýmsum ástæðum. Nokkur sveitabýli fara í eyði árlega. Svo hlýtur jafnan að verða. En það virðist full ástæða og sjálfsögð til þess að styrkja þá byggð, sem enn þá er við lýði í landinu. Ég kem ekki auga á neina byggð eða neitt hérað landsins, sem æskilegt er að leggist í eyði. En hin strjála byggð er viðkvæm. Fyrir nokkrum áratugum var sagt, að framtíð hinna einstöku sveitabýla byggðist á því, hvort þau hefðu skilyrði til rafvæðingar. Enn bíða allmörg býli þeirra lífsþæginda, sem raforkan veitir. En það er margt fleira, sem athuga verður í þessu efni. Eitt af því er sjónvarpið. Það verður að viðurkennast, að nú þykir svo sjálfsagt, að allir njóti þeirra gæða, sem það hefur að bjóða, að þeir, sem ekki eiga þess kost enn sem komið er, munu margir hverjir líta á sig sem olnbogabörn þjóðfélagsins, unz úr því er bætt. Fyrir því er stutt að flutningi þessarar þáltill.